Biblíulestur 29. apríl – Mrk 4.21–41
Og Jesús sagði við þá: „Ekki bera menn inn ljós og setja það undir mæliker eða bekk. Er það ekki sett á ljósastiku? Því að ekkert er hulið að það verði eigi gert opinbert né leynt að það komi ekki í ljós. Ef einhver hefur eyru að heyra, hann heyri!“
Enn sagði hann við þá: „Gætið að hvað þið heyrið. Með þeim mæli, sem þið mælið, mun ykkur mælt verða og við ykkur bætt. Því að þeim sem hefur mun gefið verða og frá þeim sem eigi hefur mun tekið verða jafnvel það sem hann hefur.“
Þá sagði Jesús: „Svo er Guðs ríki sem maður sái sæði í jörð. Hann sefur síðan og vakir, nætur og daga, en sæðið grær og vex, hann veit ekki með hverjum hætti. Sjálfkrafa ber jörðin ávöxt, fyrst stráið, þá axið og síðan fullvaxið hveiti í axinu. En þá er ávöxturinn er fullþroska lætur hann þegar bera út sigðina því að uppskeran er komin.“
Og Jesús sagði: „Við hvað eigum við að líkja Guðs ríki? Með hvaða dæmi eigum við að lýsa því? Líkt er það mustarðskorni. Þegar því er sáð í mold er það smærra hverju sáðkorni á jörðu. En eftir að því er sáð tekur það að spretta, það verður öllum jurtum meira og fær svo stórar greinar að fuglar himins geta hreiðrað sig í skugga þess.“
Í mörgum slíkum dæmisögum flutti Jesús þeim orðið svo sem þeir gátu numið og án dæmisagna talaði hann ekki til þeirra en fyrir lærisveinum sínum skýrði hann allt þegar þeir voru einir.
Að kvöldi sama dags sagði Jesús við þá: „Förum yfir um vatnið!“ Þeir skildu þá við mannfjöldann, fóru í bátinn þar sem Jesús var og sigldu burt. Aðrir bátar fylgdu þeim eftir. Þá brast á stormhrina mikil og féllu öldurnar inn í bátinn svo við lá að hann fyllti. Jesús var í skutnum og svaf á kodda. Þeir vöktu hann og sögðu við hann: „Meistari, hirðir þú ekki um að við förumst?“
Hann vaknaði, hastaði á vindinn og sagði við vatnið: „Þegi þú, haf hljótt um þig!“ Þá lægði vindinn og gerði stillilogn. Og hann sagði við þá: „Hví eruð þið hræddir, hafið þið enn enga trú?“
En þeir urðu miklum ótta lostnir og sögðu hver við annan: „Hver er þessi? Jafnvel vindur og vatn hlýða honum.“
Biblíulestur 10. janúar – Jóh 6.60–71
Margir af lærisveinum hans, er á hlýddu, sögðu: „Þung er þessi ræða. Hver getur hlustað á hana?“ Jesús vissi með sjálfum sér að kurr var með lærisveinum hans út af [...]
Biblíulestur 9. janúar – Jóh 6.36–44
En ég hef sagt við yður: Þér hafið séð mig og trúið þó ekki. Allt sem faðirinn gefur mér mun koma til mín og þann sem til mín kemur mun [...]
Biblíulestur 8. janúar – Hós 6.1–6
Komið, hverfum aftur til Drottins því að hann reif sundur en mun lækna oss, hann særði en mun gera að sárunum. Hann lífgar oss eftir tvo daga, á þriðja degi [...]
Biblíulestur 7. janúar – Lúk 3.15–17, 21–22
Allir voru nú fullir eftirvæntingar og hugsuðu með sjálfum sér hvort Jóhannes kynni að vera Kristur. En Jóhannes svaraði öllum og sagði: „Ég skíri ykkur með vatni en sá kemur [...]
Biblíulestur 6. janúar – Matt 2.1–12
Þegar Jesús var fæddur í Betlehem í Júdeu á dögum Heródesar konungs komu vitringar frá Austurlöndum til Jerúsalem og sögðu: „Hvar er hinn nýfæddi konungur Gyðinga? Við sáum stjörnu hans [...]
Biblíulestur 5. janúar – Dan 12.1–13
Míkael, leiðtoginn mikli, sem verndar syni þjóðar þinnar, mun þá birtast. Verða þá slíkir hörmungatímar að eigi verður við jafnað frá því að þjóðin varð til. Á þeim tíma mun [...]