Biblíulestur 9. maí – Slm 119.49–64
Minnstu þess orðs við þjón þinn
sem þú gafst mér að vona á,
það er huggun mín í eymd minni
að orð þitt lætur mig lífi halda.
Þeir hrokafullu spotta mig ákaflega
en ég vík eigi frá lögmáli þínu.
Ég minnist boða þinna frá öndverðu, Drottinn,
og læt huggast.
Ofsareiði við óguðlega grípur mig,
við þá er yfirgefa lögmál þitt.
Lög þín eru efni ljóða minna
í því húsi sem ég gisti.
Um nætur minnist ég nafns þíns, Drottinn,
því að ég vil halda lög þín.
Það hefur hlotnast mér
að fylgja fyrirmælum þínum.
Drottinn er hlutskipti mitt,
ég hef heitið að halda boð þín.
Ég ákalla þig af öllu hjarta,
vertu mér náðugur eins og þú hefur heitið.
Ég hef hugað að vegum mínum
og beint skrefum mínum að fyrirmælum þínum.
Ég hef flýtt mér og eigi tafið
að hlýða boðum þínum.
Snörur óguðlegra lykja um mig
en ég gleymi ekki lögmáli þínu.
Um miðnætti rís ég upp til að þakka þér
réttlát ákvæði þín.
Ég er vinur allra sem óttast þig
og halda fyrirmæli þín.
Drottinn, jörðin er full af miskunn þinni,
kenn mér lög þín.
Biblíulestur 10. mars – Jóh 6.52–58
Nú deildu Gyðingar hver við annan og sögðu: „Hvernig getur þessi maður gefið okkur líkama sinn að eta?“ Þá sagði Jesús við þá: „Sannlega, sannlega segi ég yður: Ef þér [...]
Biblíulestur 9. mars – Slm 71.9–16
Útskúfa mér ekki í elli minni, yfirgef mig eigi er þróttur minn þverr. Því að óvinir mínir tala um mig, þeir sem sitja um líf mitt ráða ráðum sínum og [...]
Biblíulestur 8. mars – Mrk 9.33–42
Þeir komu til Kapernaúm. Þegar þeir voru komnir inn spurði Jesús þá: „Hvað voruð þið að ræða á leiðinni?“ En þeir þögðu. Þeir höfðu verið að ræða það sín á [...]
Biblíulestur 7. mars – Jes 8.23-9:6
Engin björgun býðst þeim sem er ofurseldur algjörum sorta. Ekki skal myrkur vera í landinu sem fyrr var í nauðum statt. Fyrrum lét hann vansæmd koma yfir Sebúlonsland og Naftalíland [...]
Biblíulestur 6. mars – Jóh 12.34–50
Mannfjöldinn svaraði honum: „Lögmálið segir okkur að Kristur muni verða til eilífðar. Hvernig getur þú sagt að Mannssonurinn eigi að verða upp hafinn? Hver er þessi Mannssonur?“ Þá sagði Jesús: [...]
Biblíulestur 5. mars – Mík 5.1–8
En þú, Betlehem í Efrata, ein minnsta ættborgin í Júda, frá þér læt ég þann koma er drottna skal í Ísrael. Ævafornt er ætterni hans, frá ómunatíð. Því verður þjóðin [...]