Biblíulestur 9. apríl – Est 6.1–14
Um nóttina varð konungur andvaka. Bauð hann þá að komið væri til sín með Annálabókina, bók þá sem geymdi minnisverð tíðindi, og var lesið úr henni fyrir hann. Þar fannst skráð hvernig Mordekaí hafði komið upp um tvo geldinga konungs, hliðverðina Bigtan og Teres, sem sóst höfðu eftir lífi Xerxesar konungs. Konungur spurði: „Hvaða heiður eða upphefð hlaut Mordekaí fyrir þetta?“ „Hann hlaut ekkert að launum,“ svöruðu konungssveinarnir sem þjónuðu honum.
Þá sagði konungur: „Hver er úti í forgarðinum?“ Haman var þá einmitt á leið inn í ytri forgarð hallarinnar til að tala um það við konung að Mordekaí skyldi festur á gálgann sem hann hafði reist og ætlað honum. Sveinar konungs svöruðu: „Haman er úti í forgarðinum.“ Konungur sagði þeim að vísa honum inn. Þegar Haman gekk inn sagði konungur við hann: „Hvað á að gera fyrir þann mann sem konungur vill sýna heiður?“ Þá hugsaði Haman með sér: „Hvern skyldi konungur vilja heiðra fremur en mig?“ Hann svaraði konungi: „Vilji konungur sýna einhverjum heiður þá skal sækja konungleg skrúðklæði, sem konungur hefur sjálfur borið, og setja konunglegt höfuðdjásn á hest sem konungur hefur riðið. Skrúðklæðin og hestinn skal fá einum æðsta tignamanni konungs. Manninn, sem konungur vill heiðra, skal hann færa í skrúðklæðin, láta hann síðan ríða hestinum um borgartorgið og hrópa fyrir honum: Þannig er gert við þann mann sem konungur vill heiðra.“
Konungur sagði þá við Haman: „Sæktu skrúðklæðin og hestinn tafarlaust eins og þú talaðir um og gerðu eins við Gyðinginn Mordekaí sem situr hér í hallarhliðinu. Og láttu ekkert á vanta af því sem þú varst að telja upp.“ Haman sótti hestinn og skrúðklæðin, færði Mordekaí í þau, lét hann síðan ríða um borgartorgið og hrópaði fyrir honum: „Þannig er gert við þann mann sem konungur vill heiðra.“ Síðan fór Mordekaí aftur að hallarhliðinu en Haman skundaði heim á leið hnugginn í skapi og huldi ásjónu sína. Haman greindi Seres, konu sinni, og vinum sínum frá öllu sem komið hafði fyrir hann. Og kona hans, Seres, og ráðhollir vinir hans sögðu við hann: „Það er farið að halla á þig í samskiptum við Mordekaí þennan. Og sé hann af ætt Gyðinga ert þú einskis megnugur og öruggt að þú bíður lægri hlut fyrir honum.“
Meðan á þessum samræðum stóð komu geldingar konungs og fylgdu Haman í skyndi til veislunnar sem Ester hafði boðið til.
Biblíulestur 9. maí – Lúk 24.44–53
Og hann sagði við þau: „Meðan ég var enn meðal ykkar sagði ég ykkur: Allt sem ritað er um mig í lögmáli Móse, spámönnunum og sálmunum á að rætast.“ Síðan [...]
Biblíulestur 8. maí – Jes 52.13–53.3
Sjá, þjónn minn mun giftusamur verða, hann mun verða mikill og veglegur og hátt upp hafinn. Eins og marga hryllti við honum, svo afskræmdur var hann ásýndum að vart var [...]
Biblíulestur 7. maí – Opb 14.14–20
Og ég sá, og sjá: Hvítt ský og á skýinu einhvern sitja líkan mannssyni. Hann hafði gullkórónu á höfði og beitta sigð í hendi. Og annar engill kom út úr [...]
Biblíulestur 6. maí – 1Pét 4.1–19
Kristur leið líkamlega. Því skuluð þið búast sama hugarfari og hann. Sá sem hefur liðið líkamlega er skilinn við synd. Hann lætur ekki mannlegar fýsnir ná tökum á sér heldur [...]
Biblíulestur 5. maí – Jóh 14.12–14
Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem trúir á mig mun einnig gera þau verk sem ég geri. Og hann mun gera meiri verk en þau því ég fer til [...]
Biblíulestur 4. maí – Slm 74.1–11
Guð, hví hefur þú hafnað oss að fullu, hví rýkur reiði þín gegn gæsluhjörð þinni? Minnstu safnaðar þíns sem þú forðum leystir út þér til eignar, minnstu Síonarfjalls þar sem [...]