Biblíulestur 10. júní – Heb 12.4–17
Enn sem komið er hefur barátta ykkar við syndina ekki kostað ykkur lífið. Hafið þið gleymt hvernig Guð hvetur ykkur eins og börn sín:
Barnið mitt, lítilsvirð ekki aga Drottins
og lát ekki heldur hugfallast er hann tyftar þig.
Því að Drottinn agar þann sem hann elskar
og hirtir harðlega hvert það barn er hann tekur að sér.
Þolið aga. Guð fer með ykkur eins og börn sín. Öll börn búa við aga. Ef Guð agar ykkur ekki þá eruð þið ekki börn hans heldur þrælborin. Við bjuggum við aga jarðneskra foreldra og bárum virðingu fyrir þeim. Skyldum við þá ekki miklu fremur lúta aga himnesks föður okkar og lifa? Foreldrar okkar öguðu okkur um fáa daga eftir því sem þeim leist en okkur til gagns agar Guð okkur svo að við verðum heilög eins og hann. Um stundar sakir virðist allur agi að vísu ekki vera gleðiefni heldur hryggðar en eftir á veitir hann þeim er alist hafa upp við hann friðsamt og réttlátt líf.
Réttið því úr máttvana höndum og magnþrota knjám. Látið fætur ykkar feta beinar brautir til þess að hið fatlaða vindist ekki úr liði en verði heilt.
Stundið frið við alla menn og heilagt líferni því að án þess fær enginn litið Drottin. Hafið gát á að enginn missi af náð Guðs, að engin beiskjurót renni upp sem truflun valdi og margir saurgist af. Gætið þess að eigi sé neinn hórkarl eða vanheilagur eins og Esaú sem fyrir einn málsverð lét af hendi frumburðarrétt sinn. Þið vitið að það fór líka svo fyrir honum að hann var rækur ger þegar hann síðar vildi öðlast blessunina þó að hann grátbændi um hana. Hann fékk ekki færi á að iðrast.
Biblíulestur 23. september – Róm 3.21–31
En nú hefur Guð opinberað réttlæti sitt sem lögmálið og spámennirnir vitna um og byggist ekki á lögmáli. Það er: Réttlæti trúarinnar sem Guð gefur öllum þeim sem trúa á [...]
Biblíulestur 22. september – Mrk 2.15–17
Svo bar við að Jesús sat að borði í húsi hans. Margir tollheimtumenn og bersyndugir sátu þar með honum og lærisveinum hans en margir fylgdu honum. Fræðimenn af flokki farísea, [...]
Biblíulestur 21. september – Slm 81.1–17
Gleðjist fyrir Guði sem er styrkur vor, fagnið fyrir Jakobs Guði. Hefjið lofsöng og berjið bumbur, knýið kliðmjúka lútu og hörpu. Þeytið hafurshorn með nýju tungli, við tunglfylling á hátíðisdegi [...]
Biblíulestur 20. september – Róm 3.1–20
Hvað hefur þá Gyðingurinn fram yfir aðra? Eða hvert er gagn umskurnarinnar? Mikið á allan hátt. Fyrst og helst er það að Guð hefur trúað Gyðingum fyrir orðum sínum. Sumir [...]
Biblíulestur 19. september – 2Þess 3.6–16
En ég býð ykkur, systkin, í nafni Drottins vors Jesú Krists að þið sneiðið hjá hverjum þeim í söfnuðinum sem er iðjulaus og breytir ekki eftir þeirri reglu sem hann [...]
Biblíulestur 18. september – Róm 6.1–11
Hvað merkir nú þetta? Eigum við að vera áfram í syndinni til þess að náðin verði því meiri? Fjarri fer því! Við sem dóum syndinni, hvernig ættum við að lifa [...]