Biblíulestur 20. júní – Slm 119.113–128
Ég hata tvílráða menn
en lögmál þitt elska ég.
Þú ert skjól mitt og skjöldur,
ég vona á orð þitt.
Víkið frá mér, illgjörðamenn,
að ég megi halda boð Guðs míns.
Styð mig með orði þínu, að ég megi lifa
og lát von mína eigi verða til skammar.
Styð mig, að ég megi frelsast
og ætíð gefa gaum að lögum þínum.
Þú hafnar öllum sem villast frá lögum þínum
því að svik þeirra eru til einskis.
Þú metur sem sorp alla óguðlega,
þess vegna elska ég fyrirmæli þín.
Ég nötra af hræðslu við þig
og skelfist dóma þína.
Ég hef iðkað rétt og réttlæti,
sel mig eigi í hendur kúgurum mínum.
Tryggðu þjóni þínum velfarnað,
lát eigi ofstopamennina kúga mig.
Augu mín daprast af þrá eftir hjálp þinni
og réttlátu fyrirheiti þínu.
Far með þjón þinn eftir miskunn þinni
og kenn mér lög þín.
Ég er þjónn þinn, veit mér skilning
til að þekkja reglur þínar.
Tími er kominn fyrir Drottin að taka í taumana,
þeir hafa rofið lögmál þitt.
Þess vegna elska ég boð þín
meira en gull, já skíragull.
Þess vegna fylgi ég öllum fyrirmælum þínum af kostgæfni
og hata sérhvern lygaveg.
Biblíulestur 22. nóvember – Lúk 5.17–26
Dag nokkurn var Jesús að kenna. Þar sátu farísear og lögmálskennendur, komnir úr hverju þorpi í Galíleu og Júdeu og frá Jerúsalem, og kraftur Drottins var með honum til að [...]
Biblíulestur 21. nóvember – Matt 23.16–33
Vei yður, blindir leiðtogar! Þér segið: Ef einhver sver við musterið þá er það ógilt en sverji menn við gullið í musterinu þá er það gildur eiður. Blindu heimskingjar, hvort [...]
Biblíulestur 20. nóvember – Matt 23.1–15
Þá talaði Jesús til mannfjöldans og lærisveina sinna: „Á stóli Móse sitja fræðimenn og farísear. Því skuluð þér gera og halda allt sem þeir segja yður en eftir breytni þeirra [...]
Biblíulestur 19. nóvember – Matt 9.9–17
Þá er hann gekk þaðan sá hann mann sitja hjá tollbúðinni, Matteus að nafni, og hann segir við hann: „Fylg þú mér!“ Og hann stóð upp og fylgdi honum. Nú [...]
Biblíulestur 18. nóvember – Esk 28.16–23
Vegna verslunarumsvifa þinna fylltist þú ofríki svo að þú syndgaðir. Þá rak ég þig, hinn verndandi kerúb, og rak þig af guðafjalli, burt frá hinum glóandi steinum. En fegurð þín [...]
Biblíulestur 17. nóvember – Lúk 12.1–7
Fólk hafði nú flykkst að í tugum þúsunda svo að nærri tróð hver annan undir. Jesús tók þá að tala, fyrst til lærisveina sinna: „Varist súrdeig farísea sem er hræsnin. [...]