Biblíulestur 22. júní – Mrk 9.30–41
Þeir héldu nú brott þaðan og fóru um Galíleu en Jesús vildi ekki að neinn vissi það því að hann var að kenna lærisveinum sínum. Hann sagði þeim: „Mannssonurinn verður framseldur í manna hendur og þeir munu lífláta hann en eftir þrjá daga mun hann rísa upp.“
En þeir skildu ekki það sem hann sagði og þorðu ekki að spyrja hann.
Þeir komu til Kapernaúm. Þegar þeir voru komnir inn spurði Jesús þá: „Hvað voruð þið að ræða á leiðinni?“
En þeir þögðu. Þeir höfðu verið að ræða það sín á milli á leiðinni hver væri mestur.
Hann settist niður, kallaði á þá tólf og sagði við þá: „Hver sem vill vera fremstur sé síðastur allra og þjónn allra.“ Og hann tók lítið barn, setti það meðal þeirra, tók það sér í faðm og sagði við þá: „Hver sem tekur við einu slíku barni í mínu nafni tekur við mér og hver sem tekur við mér tekur ekki aðeins við mér heldur og við þeim er sendi mig.“
Jóhannes sagði við hann: „Meistari, við sáum mann reka út illa anda í þínu nafni og vildum við varna honum þess af því að hann fylgdi okkur ekki.“
Jesús sagði: „Varnið honum þess ekki því að enginn gerir kraftaverk í mínu nafni og fer þegar á eftir að tala illa um mig. Sá sem er ekki á móti okkur er með okkur. Sannlega segi ég ykkur að hver sem gefur ykkur bikar vatns að drekka vegna þess að þið hafið játast Kristi, hann mun alls ekki missa af launum sínum.
Biblíulestur 4. desember – Opb 13.11–18
Og ég sá annað dýr stíga upp af jörðunni og það hafði tvö horn lík lambshornum en það talaði eins og dreki. Fyrra dýrið hefur gefið því allt vald sitt [...]
Biblíulestur 3. desember – Jóh 20.19–29
Um kvöldið þennan fyrsta dag vikunnar voru lærisveinarnir saman og höfðu læst dyrum af ótta við Gyðinga. Þá kom Jesús, stóð mitt á meðal þeirra og sagði við þá: „Friður [...]
Biblíulestur 2. desember – Jón 4.1–11
Jónas fylltist mikilli gremju, honum brann reiðin og hann sagði við Drottin: „Ó, Drottinn! Var það ekki einmitt þetta sem ég sagði áður en ég fór að heiman? Það var [...]
Biblíulestur 1. desember – Matt 21.1–11
Þegar þeir nálguðust Jerúsalem og komu til Betfage við Olíufjallið sendi Jesús tvo lærisveina og sagði við þá: „Farið í þorpið hér fram undan ykkur og jafnskjótt munuð þið finna [...]
Biblíulestur 30. nóvember – Okv 21.1–15
Hjarta konungsins er sem lækir í hendi Drottins, hann sveigir þá hvert sem honum þóknast. Maðurinn telur alla hætti sína rétta en Drottinn vegur hjörtun. Að ástunda réttlæti og rétt [...]
Biblíulestur 29. nóvember – Jón 3.1–10
Orð Drottins kom öðru sinni til Jónasar: „Legg þú af stað og far til Níníve, hinnar miklu borgar, og prédikaðu fyrir henni þann boðskap sem ég mun greina þér frá.“ [...]