Biblíulestur 25. júní – Mrk 10.13–31
Menn færðu börn til Jesú að hann snerti þau en lærisveinarnir átöldu þá. Þegar Jesús sá það sárnaði honum og hann mælti við þá: „Leyfið börnunum að koma til mín, varnið þeim eigi því að slíkra er Guðs ríki. Sannlega segi ég ykkur: Hver sem tekur ekki við Guðs ríki eins og barn mun aldrei inn í það koma.“ Og Jesús tók þau sér í faðm, lagði hendur yfir þau og blessaði þau.
Þegar Jesús var að leggja af stað kom maður hlaupandi, féll á kné fyrir honum og spurði hann: „Góði meistari, hvað á ég að gera til þess að öðlast eilíft líf?“
Jesús sagði við hann: „Hví kallar þú mig góðan? Enginn er góður nema Guð einn. Þú kannt boðorðin: Þú skalt ekki morð fremja, þú skalt ekki drýgja hór, þú skalt ekki stela, þú skalt ekki bera ljúgvitni, þú skalt ekki pretta, heiðra föður þinn og móður.“
Hinn svaraði honum: „Meistari, alls þessa hef ég gætt frá æsku.“
Jesús horfði á hann með ástúð og sagði við hann: „Eins er þér vant. Far þú, sel allt sem þú átt og gef fátækum og munt þú fjársjóð eiga á himni. Kom síðan og fylg mér.“ En hann varð dapur í bragði við þessi orð og fór burt hryggur enda átti hann miklar eignir.
Þá leit Jesús í kring og sagði við lærisveina sína: „Hve torvelt verður þeim sem auðinn hafa að ganga inn í Guðs ríki.“
Lærisveinunum brá mjög við orð Jesú en hann sagði aftur við þá: „Börn, hve torvelt er að komast inn í Guðs ríki. Auðveldara er úlfalda að fara gegnum nálarauga en auðmanni að komast inn í Guðs ríki.“
En þeir urðu steini lostnir og sögðu sín á milli: „Hver getur þá orðið hólpinn?“
Jesús horfði á þá og sagði: „Menn hafa engin ráð til þessa en Guði er ekkert um megn.“
Þá sagði Pétur við hann: „Við yfirgáfum allt og fylgdum þér.“
Jesús sagði: „Sannlega segi ég ykkur að enginn hefur yfirgefið heimili, bræður eða systur, móður eða föður, börn eða akra vegna mín og fagnaðarerindisins án þess að hann fái hundraðfalt aftur, nú á þessum tíma heimili, bræður og systur, mæður, börn og akra, jafnframt ofsóknum, og í hinum komanda heimi eilíft líf. En margir hinir fyrstu munu verða síðastir og hinir síðustu fyrstir.“
Biblíulestur 22. desember – Jóh 1.19–28
Þessi er vitnisburður Jóhannesar þegar ráðamenn í Jerúsalem sendu til hans presta og Levíta til að spyrja hann: „Hver ert þú?“ Hann svaraði ótvírætt og játaði: „Ekki er ég Kristur.“ [...]
Biblíulestur 21. desember – Slm 89.1–19
Um náðarverk Drottins vil ég syngja að eilífu og kunngjöra trúfesti þína með munni mínum frá kyni til kyns. Því að ég segi: Náð þín er traust að eilífu, trúfesti [...]
Biblíulestur 20. desember – Jóh 11.1–16
Maður sá var sjúkur er Lasarus hét, frá Betaníu, þorpi Maríu og Mörtu, systur hennar. En María var sú er smurði Drottin smyrslum og þerraði fætur hans með hári sínu. [...]
Biblíulestur 19. desember – Okv 22.17–21
Hneig eyra þitt og hlusta á orð hinna vitru, veit fræðslu minni athygli. Gott er að þú geymir þau í brjósti þér, að þau verði sífellt á vörum þér. Til [...]
Biblíulestur 18. desember – Jer 17.19–27
Drottinn sagði við mig: Farðu og taktu þér stöðu í hliði, Þjóðhliðinu, sem Júdakonungar fara um þegar þeir koma heim eða fara í hernað, og í öllum borgarhliðum Jerúsalem. Segðu [...]
Biblíulestur 17. desember – Jes 56.1–8
Svo segir Drottinn: Varðveitið réttinn og iðkið réttlæti því að hjálpræði mitt er í nánd og réttlæti mitt birtist bráðlega. Sæll er sá maður sem breytir þannig og heldur fast [...]