Biblíulestur 30. júní – Mrk 11.12–26
Á leiðinni frá Betaníu morguninn eftir kenndi Jesús hungurs. Þá sá hann álengdar laufgað fíkjutré og fór að gá hvort hann fyndi nokkuð á því. En þegar hann kom að því fann hann ekkert nema blöð enda var ekki fíknatíð. Jesús sagði þá við tréð: „Enginn neyti framar ávaxtar af þér að eilífu!“ Þetta heyrðu lærisveinar hans.
Þeir komu til Jerúsalem og Jesús gekk í helgidóminn og tók að reka út þá sem voru að selja þar og kaupa og hratt um borðum víxlaranna og stólum dúfnasalanna. Og engum leyfði hann að bera neitt um helgidóminn. Og hann kenndi þeim og sagði: „Er ekki ritað: Hús mitt á að vera bænahús fyrir allar þjóðir? En þið hafið gert það að ræningjabæli.“
Æðstu prestarnir og fræðimennirnir heyrðu þetta og leituðu fyrir sér hvernig þeir gætu ráðið hann af dögum. Þeim stóð ótti af honum því að allt fólkið hreifst mjög af kenningu hans.
Þegar leið að kvöldi fóru þeir úr borginni.
Árla morguns fóru þeir hjá fíkjutrénu og sáu að það var visnað frá rótum. Pétur minntist þess sem gerst hafði og segir við hann: „Meistari, sjáðu! fíkjutréð, sem þú formæltir, er visnað.“
Jesús svaraði þeim: „Trúið á Guð. Sannlega segi ég ykkur: Hver sem segir við fjall þetta: Lyft þér upp og steyp þér í hafið, og efar ekki í hjarta sínu heldur trúir að svo fari sem hann mælir, þá gerist það. Fyrir því segi ég ykkur: Ef þið biðjið Guð um eitthvað og treystið því að þið öðlist það, þá mun hann veita ykkur það. Og þegar þið eruð að biðja, þá fyrirgefið þeim sem hafa gert eitthvað á hlut ykkar til þess að faðir ykkar á himnum fyrirgefi einnig ykkur misgjörðir ykkar. [ Ef þið fyrirgefið ekki mun faðir ykkar á himnum ekki heldur fyrirgefa misgjörðir ykkar.]“
Biblíulestur – 26. janúar – Matt 8.1–13
Nú gekk Jesús niður af fjallinu og fylgdi honum mikill mannfjöldi. Þá kom til hans líkþrár maður, laut honum og sagði: „Drottinn, ef þú vilt getur þú hreinsað mig.“ Jesús [...]
Biblíulestur – 25. janúar – Okv 22.1–16
Gott mannorð er dýrmætara en mikill auður, vinsældir eru betri en silfur og gull. Ríkur og fátækur mætast en Drottinn skapaði báða. Vitur maður sér ógæfuna og felur sig en [...]
Biblíulestur – 24. janúar – Esk 34.1–16
Orð Drottins kom til mín: Mannssonur, spáðu gegn hirðum Ísraels og segðu við þá: Svo segir Drottinn Guð: Vei hirðum Ísraels sem aðeins hirða um sjálfa sig. Eiga þeir ekki [...]
Biblíulestur – 23. janúar – Job 22.21–30
Náðu sáttum við Guð og lifðu í friði. Þá hlýturðu velgengni. Þiggðu ráð úr munni hans, leggðu þér orð hans á hjarta. Snúirðu þér til Hins almáttka og auðmýkir þig, [...]
Biblíulestur – 22. janúar – Opb 7.9–17
Eftir þetta sá ég, og sjá: Mikill múgur, sem enginn gat tölu á komið, af öllum þjóðum og kynkvíslum, lýðum og tungum, stóð frammi fyrir hásætinu og frammi fyrir lambinu, [...]
Biblíulestur – 21. janúar – 1Pét 2.1–10
Segið því skilið við alla vonsku og alla pretti, hræsni, öfund og allt baktal. Sækist eins og nýfædd börn eftir hinni andlegu, ómenguðu mjólk til þess að þið af henni [...]