Biblíulestur 2. júlí – Mrk 12.13–27
Þá sendu þeir til Jesú nokkra farísea og Heródesarsinna og skyldu þeir veiða hann í orðum. Þeir koma og segja við hann: „Meistari, við vitum að þú ert sannorður og hirðir ekki um álit neins enda gerir þú þér engan mannamun heldur kennir Guðs veg í sannleika. Leyfist að gjalda keisaranum skatt eða ekki? Eigum við að gjalda eða ekki gjalda?“
En Jesús sá hræsni þeirra og sagði við þá: „Hvers vegna leggið þið snörur fyrir mig? Fáið mér denar, látið mig sjá.“
Þeir fengu honum pening. Hann spyr: „Hvers mynd og nafn er á peningnum?“
Þeir svöruðu: „Keisarans.“
En Jesús sagði við þá: „Gjaldið keisaranum það sem keisarans er og Guði það sem Guðs er.“
Og þá furðaði stórlega á honum.
Saddúkear, sem neita því að upprisa sé til, komu til hans og sögðu við hann: „Meistari, Móse segir okkur í ritningunum að deyi maður barnlaus, en láti eftir sig konu, skuli bróðir hans ganga að eiga ekkjuna og vekja honum niðja. Nú voru sjö bræður. Sá fyrsti tók sér konu en dó barnlaus. Annar bróðirinn gekk að eiga hana og dó barnlaus. Eins hinn þriðji og allir sjö urðu barnlausir. Síðast allra dó konan. Kona hvers þeirra verður hún í upprisunni þegar menn rísa upp? Allir sjö höfðu átt hana.“
Jesús svaraði þeim: „Er það ekki þetta sem veldur því að þið villist: Þið þekkið ekki ritningarnar né mátt Guðs? Þegar menn rísa upp frá dauðum kvænast þeir hvorki né giftast. Þeir eru sem englar á himnum. En hafið þið ekki lesið í sögunni um þyrnirunninn í bók Móse að dauðir rísa upp? Guð segir við Móse: Ég er Guð Abrahams, Guð Ísaks og Guð Jakobs. Ekki er hann Guð dauðra heldur lifenda. Þið villist stórlega.“
Biblíulestur – 7. febrúar – Jes 40.9–17
Stíg upp á hátt fjall, Síon, fagnaðarboði. Hef upp raust þína kröftuglega, Jerúsalem, fagnaðarboði. Hef upp raustina og óttast eigi, seg borgunum í Júda: Sjá, Guð yðar kemur í mætti [...]
Biblíulestur – 6. febrúar – Jóh 9.24–31
Nú kölluðu þeir í annað sinn á manninn, sem blindur hafði verið, og sögðu við hann: „Gef þú Guði dýrðina. Við vitum að þessi maður er syndari.“ Hann svaraði: „Ekki [...]
Biblíulestur – 5. febrúar – Jóh 9.13–23
Þeir fara til faríseanna með manninn sem áður var blindur. En þá var hvíldardagur þegar Jesús bjó til leðjuna og opnaði augu hans. Farísearnir spurðu hann nú líka hvernig hann [...]
Biblíulestur – 4. febrúar – Lúk 10.13–24
Vei þér, Korasín! Vei þér, Betsaída! Ef gerst hefðu í Týrus og Sídon kraftaverkin, sem gerðust í ykkur, hefðu þær löngu iðrast og setið í sekk og ösku. En Týrus [...]
Biblíulestur – 3. febrúar – Lúk 10.1–12
Eftir þetta kvaddi Drottinn til aðra, sjötíu og tvo að tölu, og sendi þá á undan sér, tvo og tvo, í hverja þá borg og stað sem hann ætlaði sjálfur [...]
Biblíulestur – 2. febrúar – Matt 8.23–27
Nú fór Jesús í bátinn og lærisveinar hans fylgdu honum. Þá gerði svo mikið veður á vatninu að bylgjurnar gengu yfir bátinn. En Jesús svaf. Þeir fara til, vekja hann [...]