Biblíulestur 10. júlí – Jer 2.10–22
Farið til eyja Kitta og litist um
eða sendið til Kedars og spyrjist rækilega fyrir,
gangið úr skugga um
hvort annað eins hafi nokkru sinni átt sér stað.
Hefur nokkur þjóð skipt um guði
þótt þeir væru engir guðir?
En þjóð mín hefur látið vegsemd sína
fyrir það sem ekkert er.
Hryllið yður, himnar, titrið og nötrið, segir Drottinn,
því að þjóð mín hefur gert tvennt illt:
Hún hefur yfirgefið mig,
uppsprettu lifandi vatns,
og grafið sér brunna,
sprungna brunna sem ekki halda vatni.
Er Ísrael ánauðugur?
Er hann þrælborinn í húsi eiganda síns?
Hvers vegna hefur hann orðið bráð
sem ljón grenjuðu yfir og öskruðu gegn?
Land hans var lagt í eyði,
borgir hans brenndar og yfirgefnar.
Jafnvel menn frá Nóf og Takpanes
munu raka á þér hvirfilinn.
Hefurðu ekki bakað þér þetta allt
með því að yfirgefa Drottin, Guð þinn,
er hann leiddi þig á veginum?
Hvaða ávinning hefurðu af því
að fara til Egyptalands og drekka vatn úr Níl?
Hvað hefurðu upp úr því
að fara til Assýríu og drekka vatn úr Efrat?
Illska þín mun aga þig
og fráhvarf þitt refsa þér.
Játa og ger þér ljóst
að þú líður böl og kvelst
af því að þú sveikst Drottin, Guð þinn,
og óttaðist mig ekki, segir Drottinn, Guð hersveitanna.
Fyrir löngu braust þú af þér okið
og sleist af þér fjötrana.
Þú sagðir: „Ég vil ekki vera þræll.“
En á hverjum háum hól, undir hverju grænu tré,
lagðist þú og hóraðist.
Þegar ég gróðursetti þig
varstu gæðavínviður,
hver græðlingur var af úrvalskyni.
Hvernig gastu breyst í illgresi, úrkynjaðan vínvið?
Þótt þú þvægir þér með lút
og sparaðir ekki sápuna
verður synd þín óafmáanlegur blettur fyrir augum mér,
segir Drottinn, Guð.
Biblíulestur 13. mars – Hlj 1.12–22
Skiptir þetta engu yður sem fram hjá farið? Skyggnist um og sjáið, finnst sú kvöl sem jafnast á við þá sem á mig var lögð, mig sem Drottinn þjakaði á [...]
Biblíulestur – 14. mars – Jóh 6.1–15
Eftir þetta fór Jesús yfir um Galíleuvatn eða Tíberíasvatn. Mikill fjöldi manna fylgdi honum því þeir sáu þau tákn er hann gerði á sjúku fólki. Þá fór Jesús upp á [...]
Biblíulestur 12. mars – Hlj 1.1–11
Ó, hversu einmana er nú borgin sem áður var svo mannmörg, orðin eins og ekkja, sú er voldug var meðal þjóðanna, drottningin meðal héraðanna orðin kvaðarkona. Hún grætur sáran um [...]
Biblíulestur – 13. mars – Jóh 5.31–47
Ef ég vitna sjálfur um mig er vitnisburður minn ekki gildur. Annar er sá sem vitnar um mig og ég veit að sá vitnisburður sem hann ber mér er sannur. [...]
Biblíulestur 11. mars – Opb 22.8–21
Og ég, Jóhannes, er sá sem heyrði og sá þetta. Er ég hafði heyrt það og séð féll ég niður fyrir fótum engilsins sem sýndi mér þetta til þess að [...]
Biblíulestur – 12. mars – Jóh 5.19–30
Þessu svaraði Jesús og sagði við þá: „Sannlega, sannlega segi ég yður: Ekkert getur sonurinn gert af sjálfum sér. Hann gerir það eitt sem hann sér föðurinn gera. Því hvað [...]