Hið afganska biblíufélag í útlegð (AfBSd) hefur formlega tekið upp samstarf við Sameinuðu biblíufélögin. Var það langþráð stund fyrir kristna Afgani um allan heim.

Árum saman höfðu afgönsk þýðingarteymi Biblíunnar látið sig dreyma um innlent biblíufélag í Afganistan til þess að sinna biblíulegum verkefnum í Dari, Pashto og Hazaragi. Undir stjórn Shoaib Ebadi, framkvæmdastjóra, hefur AfBSd lagt sterkan grunn að starfi félagsins og myndað góð tengsl við ýmsa samstarfsaðila, þar á meðal við Biblíufélagið í Kanada.

Þar sem  samstarfsaðild hefur nú verið samþykkt, getur AfBSd eflt þýðingarstarf sitt og útgáfu, auk þess að bjóða Ritninguna á stafrænu formi fyrir Afgani víðs vegar um heim. Þessi áfangi markar nýtt upphaf í að styrkja aðgengi Afgana að Heilagri ritningu sem þeir geta treyst og að biblíufélagi sem talar máli þeirra.

Bæta má við að nú í vor var leitað til Hins íslenska biblíufélags um að útvega nokkrar Biblíur á Dari fyrir einstaklinga sem búa á Íslandi, en Dari er eitt af opinberum tungumálum Afganistan. Hið afganska biblíufélag í dreifingunni var okkur innan handar og kom Biblíunum til Íslands bæði fljótt og vel.


Sameinuðu biblíufélögin (SB) voru stofnuð árið 1946 í kjölfar síðari heimsstyrjaldarinnar. Félögin starfa um allan heim með það að markmiði að gera Biblíuna aðgengilega og fáanlega öllum, alls staðar, á skiljanlegu tungumáli og fjölbreyttum miðlum. Sameinuðu biblíufélögin fagna því á árinu 2026 að hafa í 80 ár unnið að verkefninu „Biblían ætluð öllum“ með því að vera vettvangur fyrir samstarf 156 biblíufélaga í rösklega 240 löndum og landsvæðum.