Íbúar Tókelá, lítillar eyþjóðar í Kyrrahafinu, hafa nú eignast fyrstu heildarútgáfu Biblíunnar á tókeláísku, móðurmáli sínu. Fyrir 1.500 manna þjóð sem býr á þremur einangruðum kóraleyjum er þetta sögulegur áfangi.
Það sem gerir þessa stund sérstaklega veigamikla er sú vegferð sem leiddi til hennar. Tungumálið hefur verið meira eða minna í munnlegri geymd. Af þeim sökum gerði þýðingin miklar kröfur um nána samvinnu við þjóðfélagið, ítarlega málvísindavinnu og 26 ára samvinnu sem reyndi á þolrifin.
Við erum þakklát öllum íbúum Tókelá, Biblíufélaginu á Nýja-Sjálandi (BSNZ) og fjölmörgum sérfræðingum í biblíuþýðingum á heimsvísu sem lögðu sitt af mörkum til þess að þessum áfanga yrði náð.
Framkvæmdastjóri Biblíufélagsins á Nýja-Sjálandi, Neels Janse van Rensburg, lét þessi orð falla: „Þetta afrek ber vott um þann kraft, sem í samvinnu og forsjón Guðs býr.“
Sameinuðu biblíufélögin (SB) voru stofnuð árið 1946 í kjölfar síðari heimsstyrjaldarinnar. Félögin starfa um allan heim með það að markmiði að gera Biblíuna aðgengilega og fáanlega öllum, alls staðar, á skiljanlegu tungumáli og fjölbreyttum miðlum. Sameinuðu biblíufélögin fagna því á árinu 2026 að hafa í 80 ár unnið að verkefninu „Biblían ætluð öllum“ með því að vera vettvangur fyrir samstarf 156 biblíufélaga í rösklega 240 löndum og landsvæðum.
Ljósmynd: Framkvæmdastjóri Biblíufélagsins á Nýja-Sjálandi ásamt íbúum Tókelá.