Sögulegt skref í aðgengi að Biblíunni var stigið þegar Biblíufélagið í Gana gaf út fyrstu heildarútgáfu Biblíunnar á blindraletri á ganverska tungumálinu, Asante Twi, Biblíuna á blindraletri.
Biblían er 82 bindi og tók tæp þrjú ár í vinnslu. Þessi áfangi gerir blindum og sjónskerum kleift að lesa Biblíuna á sínu eigin móðurmáli.
Forsvarsfólk í Gana hefur lýst Biblíunni sem bæði andlegum vatnaskilum og félagslegum áfanga og kölluðu hana „tákn vonar, jafnréttis og viðurkenningar.“
Biblíunum á blindraletri verður dreift ókeypis í skóla fyrir sjónskert börn og bókasöfn á landsvísu auk þess sem lestrarkennslu á blindraletri hefur verið ýtt úr vör.
Þetta er kröftug áminning þess hvernig trúin er að verki óháð sjóninni og Orð Guðs þarf að vera aðgengilegt sérhverju hjarta.
Sameinuðu biblíufélögin (SB) voru stofnuð árið 1946 í kjölfar síðari heimsstyrjaldarinnar. Félögin starfa um allan heim með það að markmiði að gera Biblíuna aðgengilega og fáanlega öllum, alls staðar, á skiljanlegu tungumáli og fjölbreyttum miðlum. Sameinuðu biblíufélögin fagna því á árinu 2026 að hafa í 80 ár unnið að verkefninu „Biblían ætluð öllum“ með því að vera vettvangur fyrir samstarf 156 biblíufélaga í rösklega 240 löndum og landsvæðum.