Um þessar mundir fagna Sameinuðu biblíufélögin (e. United Bible Societies) 80 ára afmæli en þau  voru stofnuð árið 1946, strax í kjölfar síðari heimsstyrjaldarinnar, sem alþjóðleg samtök biblíufélaga er unnu saman að dreifingu Ritningarinnar á heimsvísu.

Í maímánuði 1946 komu fulltrúar frá 13 löndum saman í Ráðstefnumiðstöðinni í Elfinsward, fyrir sunnan London, til þess að stofna formlega til nýrra samtaka. Á meðal þeirra var Eivind Berggrav, biskup í Noregi, sem hafði verið tekinn höndum af nasistum fyrir trú sína og að hafa talað djarflega um Biblíuna sem uppsprettu vonar á þjáningartímum. Fulltrúarnir deildu kröftugum vitnisburðum um biblíutengd verkefni á stríðstímum: Ritningunni hafði verið dreift í leyni, prentsmiðjur höfðu verið eyðilagðar, sjóðir glötuðust en trúin hélst þrátt fyrir ofsóknir.

Á ráðstefnunni var ákveðið að stofnsetja Sameinuðu biblíufélögin sem þverkirkjulegt félag sem einsetti sér að uppfylla skírnarskipunina með því að gera Biblíuna aðgengilega öllum þjóðum, lýð og tungumálum.