Laugardaginn 31. ágúst kl. 11:00 í Lindakirkju verður útgáfufögnuður vegna hljóðbókar Biblíunnar án apókrýfu bókanna. Þar verður útgáfan kynnt og tækifæri gefst til að hlusta á og læra um hljóðbókina. Það væri gaman að sem flestir Biblíuvinir gætu komið og fagnað þessum mikilvæga áfanga með okkur. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Útgáfufögnuðurinn er hluti af Kirkjudögum Þjóðkirkjunnar sem haldnir verða 25. ágúst – 1. september að mestu í Lindakirkju. Biblíufélagið verður með kynningarbás á Kirkjudögunum dagana 30. og 31. ágúst þar sem hægt verður að kynna sér fjölbreytt rafræn verkefni sem félagið hefur stutt á liðnum árum.

Hægt er að fræðast um Kirkjudaga á vefsíðunni www.kirkjudagar.is, og eins má nú þegar hlusta á hljóðbók Biblíunnar á vefsíðu Biblíufélagsins, www.biblian.is/hljodbok. Við hjá Biblíufélaginu erum þakklát fyrir velvild þína í okkar garð og vonum að þú getir komið og fagnað með okkur í tilefni útgáfu hljóðbókar Biblíunnar, laugardagsmorguninn 31. ágúst kl. 11:00 í Lindakirkju.