Í þessari viku var ný vefsíða Sameinuðu biblíufélaganna sett í loftið. Á síðunni er hægt að kynnast fjölbreyttu starfi Biblíufélaga um allan heim.
Á vefsíðunni er hægt að lesa um starf Biblíufélaga, sem miðar að því að öll alstaðar geti lesið Biblíuna. Félögin starfa að þýðingum, útgáfu og dreifingu Biblíutexta ásamt þróun á stafrænu efni. Þá bjóða Biblíufélög víða um heim upp á viðburði og dagskrá sem miðar að því að gera Biblíuna aðgengilega öllu fólki alstaðar.
Hægt er að skoða nýju vefsíðuna á slóðinni https://unitedbiblesocieties.org/.