Fimm hundruð árum eftir að Nýja testamentið var prentað í fyrsta sinn á sænsku, hefur ný þýðing litið dagsins ljós. NT 2026 var kynnt á bókastefnunni í Gautaborg 24. september.

Það var setið í öllum sætum í ráðstefnusal K og fólk stóð meðfram öllum veggjum þegar prentútgáfur af nýju þýðingunni voru kynntar. Fjöldi fólks, þar á meðal Martin Nodéus erkibiskup lúthersku kirkjunnar í Svíþjóð og Åke Bonnier stjórnarformaður sænska biblíufélagsins, kynntu útgáfu nýþýðingar Nýja testamentisins. Í lok kynningarinnar kom þýðingarteymið fram á sviðið og fékk fyrstu eintökin að gjöf.

Fyrir þau sem hafa komið að NT 2026 um árabil, þá var þetta stórkostleg stund.

„Kærar þakkir, þýðendur og systkini í Kristi, fyrir óþreyttandi vinnu við að færa þessa fornu texta í ný klæði“, sagði Anders Göranzon framkvæmdastjóri sænska biblíufélagsins við þýðendurna, „og nú er verkinu lokið. Nú er textinn afhentur þeim sem munu heyra, lesa og nota hann.“

Kynningin vakti almenna athygli í sænskum fjölmiðlum, jafnt í sjónvarpi, útvarpi og dagblöðum sem sögðu frá og birtu gagnrýni á þýðinguna. Biblían varð ein af meginþáttum bókastefnunnar, og viðbrögðin voru fjölbreytt. Allt frá mikilli ánægju yfir vandaðri vinnu, yfir í harkalega gagnrýni vegna einstakra ákvarðana þýðingarteymisins.

Öll viðbrögð eru tekin alvarlega og hjálpa sænska biblíufélaginu við að taka næstu skref.

„Við vonum að þýðingin skapi áhuga og veki forvitni um Biblíuna hjá þjóðinni á þessari stundu,“ var haft eftir Anders Göranzon.

Ljósmynd: Þýðendur sænska Nýja testamentisins taka við fyrstu eintökum nýju þýðingarinnar.