Í 80 ár hafa Sameinuðu biblíufélögin gegnt skýru og varanlegu hlutverki; að gera Biblíuna aðgengilega og fáanlega öllum, alls staðar, á skiljanlegu tungumáli og fjölbreyttum miðlum. Það sem byrjaði sem sameiginleg sannfæring lítils hóps leiðtoga árið 1946, við lok síðari heimsstyrjaldar, hefur vaxið í að verða ein stærsta og fjölþættasta kristniboðshreyfing heimsins.

Í dag mynda Sameinuðu biblíufélögin heimsnet 156 biblíufélaga sem ná yfir rösklega 240 lönd og landsvæði og starfa innan allra helstu kristnu hefða. Samvinnan er um margt sérstök. Biblíufélög starfa sjálfstætt hvert á sínu sviði en eiga í samstarfi í gegnum alþjóðleg verkefni og samræmda starfshætti auk þess að nýta saman  ýmis tæki og tól. Þessi samvinna gerir biblíufélögum kleift að bregðast á markvissan hátt við staðbundnum þörfum og um leið leggja sitt af mörkum til sameinaðs alþjóðlegs verkefnis.

Verkefni Sameinuðu biblíufélaganna snerta á öllum þeim þáttum sem lúta að útbreiðslu Biblíunnar. Forgangsverkefnin er að hraða biblíuþýðingum, einkum fyrstu þýðingum og endurskoðun þeirra; útdeila Ritningunni á fjölbreyttum miðlum, þar á meðal á prenti, stafrænu formi, hljóðbók, blindraletri og táknmáli; bjóða upp á lestrarkennslu svo að fólk geti lesið og tileinkað sér Biblíuna á markvissan hátt; að auka notkun á Biblíunni og byggja upp trúarlegt starf í samstarfi við kirkjur og samfélög; að kynna Biblíuna og mikilvægt menningarlegt hlutverk hennar; að ná til yngri kynslóða með viðeigandi, stafrænum miðlum; og að fjárfesta í sameiginlegum tækjum og alþjóðlegu samstarfi til að auka gæði, skilvirkni og útbreiðslu.

Sé litið til framtíðar, starfa Sameinuðu biblíufélögin í flóknu og síbreytilegu umhverfi. Mörg biblíufélög þjóna í skugga ofsókna eða takmarkana. Þá taka lestrarvenjur á heimsvísu og umhverfi fjármögnunar taka sífelldum breytingum. Samtímis því er vaxandi brýn þörf á að gera yngri kynslóðir handgengnar Biblíunni og að nýta nýjustu tækni til að gera Biblíuna aðgengilega og hagnýta með ábyrgum hætti.

Að þessu leyti  hafa Sameinuðu biblíufélögin einstaka stöðu. Þau ná til nærri alls heimsins og byggja starf sitt á traustu samstarfi, þverkirkjulegri nálgun og sérhvert biblíufélag er umfram allt staðbundið og sjálfstætt. Þetta gerir þeim kleift að bregðast skjótt við sérstökum aðstæðum með þrautseigju, nýsköpun og trú. Sameinuðu biblíufélögin stefna að því á næstu árum að stórauka frumþýðingar, styðja áfram við þátttöku með lestrarkennslu, Boðið verður áfram upp á áfallahjálp og námsaðstoð og stutt við trúarlíf einstaklinga. Efla skal samstarf milli biblíufélaga og séð verður til þess að Ritningin verði aðgengileg og fáanleg fólki á öllum aldri, öllum menningarheimum og við allra hæfi.

Kynning

Fyrir áttatíu árum sameinaðist lítill hópur framsýns fólks í kringum einfalda en þó byltingarkennda sannfæringu; að sérhver maður, hverrar þjóðar sem hann er, ætti að geta gengið að Ritningunni á skiljanlegu tungumáli.

Út frá þeirri sannfæringu urðu Sameinuðu biblíufélögin (SB) til, alheimshreyfing sem í dag eru regnhlífarsamtök 156 biblíufélaga sem þjóna rösklega 240 löndum og landsvæðum. Rætur þeirra ná allt aftur til fyrstu biblíufélaganna sem stofnuð voru snemma á 19. öld. Meðlimir þeirra sameinast um langvarandi hlutverk: Biblían ætluð öllum.

Sameinuðu biblíufélögin þjóna rómverk-kaþólsku kirkjunni , rétttrúnaðarkirkjum, mótmælendum og hvers kyns öðrum kristnum hreyfingum. Biblíufélögin sjá til þess að Biblían verði aðgengileg í fjölbreyttum menningarheimum hvar sem þörf krefur..

Á áttræðisafmæli Sameinuðu biblíufélaganna nemum við staðar í þakklæti fyrir það sem liðið er. Við gleðjumst yfir þeim árangri sem náðst hefur í dag og stígum inn í framtíðina með endurnýjaðri skuldbindingu og von.

Alheimssamtök rótfest í staðbundinni viðveru

Sameinuðu biblíufélögin (SB) eru alheimssamtök 156 biblíufélaga sem hafa skuldbundið sig til að gera Biblíuna aðgengilega og fáanlega öllum sem sækjast eftir henni og þarfnast hennar.

Þar sem Sameinuðu biblíufélögin er að finna í rösklega 240 löndum og landsvæðum, mynda þau eitt stærsta og fjölbreyttasta kristna netkerfi heimsins. Samtökin byggja á aldagamalli þjónustu og laga sig enn sem fyrr með hugrekki og sköpunargáfu að síbreytilegri menningu, tækni og andlegu umhverfi.

Sameinuðu biblíufélögin eru starfrækt sem alheimsnet sjálfstæðra, staðbundinna biblíufélaga — sem lagalega eru óháð hvert öðru en gegna þó sama hlutverki,viðhafa sambærileg vinnubrögð og styðjast við sömu kjarnagildi. Sameinuðu biblíufélögin eru í eðli sínu samkirkjuleg og starfa innan kirkjudeilda með margvíslegar hefðir og játningar og þjóna gjörvallri kirkjunni.

Með samstilltu átaki í biblíuþýðingum, útgáfum og dreifingu sameina Sameinuðu biblíufélögin fjölbreytt kristin samfélög um sameiginlegt markmið. Þessi einstaka uppbygging  styður við sjálfstæði einstakra biblíufélaga, hverra á sínu svæði, menningartengda þjónustu, ábyrga ákvarðanatöku og djúpstæð, traust tengsl við kirkjur og samfélög.

Víðs vegar um heim þýða biblíufélög Ritninguna á móðurmál viðkomandi þjóða og þjóðabrota, dreifa Biblíum með hagkvæmum hætti og á fjölbreyttum miðlum, styðja kirkjur við biblíutengda starfsemi og þjóna viðkvæmum samfélögum með áfallahjálp, lestrarkennslu og ýmsum verkefnum.

Sameinuðu biblíufélögin samþætta:

  • Sjálfstæði einstakra biblíufélaga, hverra á sínu svæði;
  • Alþjóðlegt samstarf í gegnum sameiginleg tæki, sérfræðinga í þýðingum og tæknilegan vettvang;
  • Þverkirkjulega þátttöku með kristnum söfnuðum.

Forgangsröðun verkefna Sameinuðu biblíufélaganna í samtímanum

Nú þegar Sameinuðu biblíufélögin horfa fram til næstu tveggja áratuga, endurspeglar forgangsröðun þeirra bæði órofið framhald hins sögulega hlutverks og viðeigandi viðbrögð vegna nýs veruleika. Markmiðið er skýrt; að sjá til þess að Ritningin verði áfram aðgengileg, aðlaðandi og umbreytandi fyrir fjölbreytt samfélög á heimsvísu, einkum þau sem hafa verið vanrækt í sögulegu samhengi eða horfast nú í augu við nýjar áskoranir.

Sameinuðu biblíufélögin gera einstökum biblíufélögum kleift að þýða, gefa út, dreifa og sjá samfélögum fyrir Biblíum með sameiginlegum gögnum og sérfræðiþekkingu. Árið 2024 studdu samtökin dreifingu 150 milljóna eintaka, þar á meðal 26 milljóna stafrænna Biblía og nýrra, fullbúinna þýðinga á 105 tungumál, sem náðu til rösklega 580 milljóna manna. Sameinuðu biblíufélögin halda úti Stafræna biblíusafninu, öruggri gagnageymslu sem veitir 5,6 milljörðum manna aðgengi í gegnum samstarfsaðila á borð við YouVersion. Sameinuðu biblíufélögin þjálfa um það bil 100.000 manns árlega í lestri og skrift, einkum á svæðum þar sem hlutfall ólæsis er hátt, til þess að gera samfélögum kleift að tileinka sér Ritninguna á eigin vegum. Samtökin sjá þeim einnig fyrir annars konar þjónustu, á borð við áfallahjálp á átakasvæðum.

Innan sérhvers lands og landsvæðis eru nokkrir þjónustuþættir nefndir sem ætíð einkenna starf Sameinuðu biblíufélaganna:

1. Hröðun þýðinga og frumþýðinga

Þar sem nærri 1,5 milljarðar manna eru enn án Biblíunnar í heild á móðurmáli sínu, eru biblíuþýðingar í algjörum forgangi. Sameinuðu biblíufélögin koma með einum eða öðrum hætti að einu stærsta samvinnuverkefni heimsins í biblíuþýðingum.

Í dag styðja Sameinuðu biblíufélögin nærri 400 þýðingaverkefni á heimsvísu. Þar á meðal eru fyrstu þýðingar, endurskoðanir fyrir meiri nákvæmni og skýrleika, stafrænar útgáfur, þýðingar yfir á blindraletur og á táknmál. Þess er gætt að ekkert samfélag sé skilið út undan.

Þar sem þýðingar hafa alltaf verið kjarni starfs Sameinuðu biblíufélaganna, halda aðferðir áfram að þróast. Örar framfarir einkenna starf Sameinuðu biblíufélaganna þar sem notast er við nýjustu þýðingatæknina, stafræn tæki eru efld og verkferlum er hagrætt til þess að auka gæði, hraða og stöðugleika.

2. Biblían á fjölbreyttum miðlum

Það er viðurkennt að ein gerð miðlunar hentar ekki öllum. Sameinuðu biblíufélögin fjárfesta í prentun þar sem aðgangur í bókarformi verður áfram bráðnauðsynlegur, en einnig er vaxandi þörf á hljóðbókum og aðgengilegum miðlum fyrir fólk sem glímir við lestrarörðugleika auk annarra þarfa. Samtímis því sjá Sameinuðu biblíufélögin til þess að Stafræna biblíusafnið geri stafrænar Biblíur í hæsta gæðaflokki aðgengilegar samstarfs- og þjónustuaðilum, auki útbreiðslu á heimsvísu og viðhaldi jafnframt ýtrustu leyfis- og gæðastöðlum.

3. Læsisátak

Sameinuðu biblíufélögin viðurkenna að tækifæri til aðgengis að Biblíunni aukast þegar fólk getur lesið. Þess vegna hafa Sameinuðu biblíufélögin fellt læsisátak inn í alheimsstefnu sína til þess að samfélög ráði við að lesa og skilja Ritninguna á móðurmáli sínu og ekki aðeins fái þau þýdda Biblíu, heldur noti hana á markvissan hátt.

Meðal annars einbeita Sameinuðu biblíufélögin sér að:

  • Lestrarkennslu byggðri á samfélögum þar sem grunnur er lagður að færni í lestri og skrift, sem oft tengist tungumálum svæðanna.
  • Samþættingu læsis með biblíuþýðingum og dreifingu þannig að þegar nýjar þýðingar koma út sé fólk fært um að lesa þær.
  • Aukinni getu staðbundinna biblíufélaga og lestrarkennara (í þjálfun, efni og stuðningi) til að viðhalda stöðugri lestrarkennslu á heimsvísu.
  • Hnitmiðaðri áherslu á sjaldheyrð tungumál og þau samfélög sem tala minnihlutamál, þar á meðal að ná til hópa sem hafa farið á mis við formleg menntakerfi.

Á hverju ári hjálpar læsisþjálfun Sameinuðu biblíufélaganna um það bil 100.000 manns á heimsvísu að ná grundvallarfærni í lestri og skrift. Þetta hjálpar ekki aðeins fólki að dafna í lífinu heldur einnig að tileinka sér Biblíuna með beinum hætti.

4. Tileinkun Biblíunnar og heildræn þjónusta

Auk þýðingar og dreifingar stefna Sameinuðu biblíufélögin að því að hjálpa fólki að tileinka sér Biblíuna svo um munar; menningarlega, félagslega og andlega. Sameinuðu biblíufélögin styðja einnig kirkjur við að hjálpa fólki að tileinka sér Ritninguna.

Megináhersluatriði þessara forgangsverkefna fela í sér:

  • Að þróa heildstæð og menningarlega viðeigandi efni og verkefni til að hjálpa einstaklingum og samfélögum að lesa Ritninguna, íhuga hana og lifa samkvæmt henni.
  • Að bjóða upp á heildræna þjónustu samhliða tileinkun Biblíunnar, þar á meðal áfallahjálp, samfélagsþjónustu og mannúðaraðstoð, sérstaklega þar sem samfélög standa frammi fyrir erfiðleikum eða óstöðugleika.
  • Að styðja kirkjur með tækjum og verkefnum sem styrkja við biblíufræðslu á öllum æviskeiðum.
  • Að búa svo um hnútana að þýðing, læsi, tileinkun og félagsleg þjónusta vinni saman, þannig að Ritningin nái til hjartna, samfélaga og inn í daglegt amstur.

5. Tileinkun æskunnar: Ritningin handa næstu kynslóð

Sameinuðu biblíufélögin styðja markvissa frumkvöðlastarfsemi tengda Biblíunni sem sniðin er að nýjum kynslóðum, þar sem viðurkennt er að yngra fólk tileinkar sér Biblíuna með mismunandi hætti. Þetta felur í sér stytt stafrænt efni, ýmiss konar fræðsluefni fyrir æskulýðsstarf og viðeigandi tæki sem endurspegla menningu samtímans og tungutak sem skilst. Markmiðið er ekki aðeins dreifing, heldur stöðug notkun, að gera kirkjur hæfar til þess að fræða ungt fólk með þeim hætti sem samræmist því hvernig ungt fólk á í samskiptum, lærir og tengist hvert öðru.

6. Sameiginleg tæki og alheimssamstarf

Sameinuðu biblíufélögin gegna lykilhlutverki í að viðhalda og deila tæknibúnaði (þýðingahugbúnaði, Stafræna biblíusafninu og gögnum sem hjálpa til við uppbyggingu starfsins á hverjum stað). Sameinuðu biblíufélögin hvetja til notkunar á sameiginlegum stöðlum sem lúta að gæðum þýðinga og veitingu útgáfuleyfa á biblíutextum. Þetta dregur úr tvítekningu, eykur gæði og flýtir fyrir dreifingu Ritningarinnar til samfélaga sem þarfnast þeirra mest.

Sameinuðu biblíufélögin sjá um:

  • Sameiginlegan þýðingarhugbúnað og tæknilegan vettvang
  • Kerfi leyfisveitinga sem tryggir ábyrga og víðtæka notkun á Biblíunni
  • Að skipst sé á þekkingu á milli svæða og málsamfélaga
  • Alþjóðlega staðla fyrir tryggingu gæða og bestu starfshætti

Hvers vegna Sameinuðu biblíufélögin skipta máli í dag

Í heimi sem hungrar eftir von, skýrleika og sannleika verður Biblían umbreytandi afl. Sameinuðu biblíufélögin eru í einstakri stöðu, menningarlega fjölbreytt, starfa úti um allan heim og hafa sterka stöðu í nærsamfélögum. Þessi einstaka staða nýtist til að hjálpa þessari kynslóð til að eignast Orð Guðs.

Framtíðarsýn næstu áratuga

Hér eftir sem hingað til eru Sameinuðu biblíufélögin staðráðin í að vinna að samræmdri sýn:

  • Að ljúka fleiri frumþýðingum, einkum á fámennari málsvæðum og á tungumál í útrýmingarhættu;
  • Dýpri tileinkun á Biblíunni í gegnum lestarkennslu, læknishjálp og með því að gera textann aðgengilegan og skiljanlegan;
  • Samþætt stafrænt vistkerfi fyrir aðgengi að Biblíunni á öllum miðlum;
  • Öflugri samvinnu milli biblíufélaga á heimsvísu;
  • Ítarlegri áætlun sem miðar að því að ná til fólks, óháð menningu, aldri, getu og samhengi.

Þetta snýst ekki einvörðungu um bækur eða tækni. Þetta snýst um fólk og samfélög sem þrá að heyra Guð tala á móðurmálinu, á aðgengilegum miðlum.

Lokaorð: Tilgangsrík arfleifð, möguleg framtíð

Þegar Sameinuðu biblíufélögin fagna 80 ára afmæli sínu heiðrum við þær kynslóðir sem hafa beðið, þýtt, borið og flutt Biblíur og dreift þeim. Við heiðrum þau sem hafa stutt starfið fjárhagslega, um leið og við skuldbindum okkur gagnvart þeim kynslóðum sem enn bíða.

Heimsmyndin hefur breyst gríðarlega síðan árið 1946, en verkefnið er eins brýnt og knýjandi og áður:

Að gera Biblíuna aðgengilega og fáanlega öllum, á móðurmáli þeirra og fjölbreyttum miðlum.