Á lítilli skrifstofu í Bissau stendur þriggja hjóla mótorhjól tilbúið í nýtt ævintýri. Næsti áfangastaður er ef til vill afskekkt þorp þar sem Biblíur eru fágætar, en hver hjólaferð, hvert ævintýri felst í að koma Orði Guðs út til almennings. Þriggja hjóla mótorhjól lýsir Biblíufélaginu í Gíneu-Bissau ágætlega, lítið félag, með takmarkað fjármagn, en óhagganlegt þegar kemur að því að sinna verkefni sínu í þjónustu við kirkjuna og almenning.

Ferðalagið hófst árið 2015 með skýrri framtíðarsýn. Að stofna Biblíufélag sem myndi þjóna öllu kristnu fólki í Gíneu-Bissau. Fjórum árum síðar var félagið skráð með formlegum hætti hjá stjórnvöldum. Ferðin hefur samt ekki verið auðveld. Félagið hefur glímt við fjárhagslega erfiðleika og sjálfbærni félagsins er mikil áskorun, en markmiðið er skýrt. Félagið hefur fjóra starfsmenn í hlutastarfi sem þjóna af ákveðni og seiglu. Biblíufélagið rekur bókaverslun í höfuðborginni sem selur Biblíur á kreólsku og portúgölsku. Á skrifstofunni er til staðar lítið bókasafn með fræðsluritum og aðstöðu fyrir fólk til að koma og læra, hugleiða og þroska trúarlíf sitt.

En verkefnin eru ekki bara í höfuðborginni Bissau. Biblíufélagið annast dreifingu á Biblíunni á landsbyggðinni, styður við biblíunámskeið og vinnustofur í samstarfi við þá sem þar búa. Biblíufélagið hefur með starfi sínu náð til svæða og hópa þar sem aðgangur að Biblíunni hefur lengi verið takmarkaður. Eitt jákvæðasta merkið um árangur sést í auknu samstarfi mismunandi kirkjudeilda. Þannig starfa kaþólskar- og mótmælendakirkju saman að þýðingu og dreifingu Ritningarinnar á kreólsku. Orð Guðs er þannig lykilþáttur í að styrkja einingu kirkjunnar.

Áskoranir fyrir Biblíufélagið í Gíneu-Bissau eru raunverulegar. En hver ferð sem er farin á litla þriggja hjóla mótorhjólinu er áminning um að útbreiðsla Biblíunnar byggir fyrst og fremst á seiglu og trúfesti. Á viljanum til að halda áfram.


Sameinuðu biblíufélögin (SB) voru stofnuð árið 1946 í kjölfar síðari heimsstyrjaldarinnar. Félögin starfa um allan heim með það að markmiði að gera Biblíuna aðgengilega og fáanlega öllum, alls staðar, á skiljanlegu tungumáli og fjölbreyttum miðlum. Sameinuðu biblíufélögin fagna því á árinu 2026 að hafa í 80 ár unnið að verkefninu „Biblían ætluð öllum“ með því að vera vettvangur fyrir samstarf 156 biblíufélaga í rösklega 240 löndum og landsvæðum.


Ljósmynd frá Gíneu-Bissau tekin af Kaysha og birt á Unsplash.