Í fyrsta sinn hefur Gamla testamentið (Tanakh) í heild verið þýtt á nútímahebresku. Eftir margra ára vinnu hefur Biblíufélagið í Ísrael lokið verki sem tengir saman þúsund ára sögu, en Tanakh hefur nú verið þýtt á þá hebresku sem töluð er á götum úti í Ísrael í dag.
Áhrif þessarar þýðingar eru ekki einvörðungu bundin við útgáfu hefðbundinna bóka. Nýtt, stafrænt frumkvöðlastarf færir Ísraelum Ritninguna hvar sem þeir eru; á netið, í símana og á hljóðbók.
- Biblían í heild á hljóðbók á nútíma hebresku: Allt Gamla testamentið á nútíma hebresku hefur nú verið tekið upp að fullu og gefið út. Sérhvert rit er fáanlegt ókeypis á Spotify, YouTube og haktuvim.co.il.
- Biblíuapp á nútíma hebresku: Sérstakt biblíuapp á nútíma hebresku er nú í þróun. Þetta app mun gefa Ísraelum daglegan, notendavænan aðgang að Ritningunni og margs konar nytsamlegt fræðsluefni fyrir dýpri tileinkun.
- Stafræn Ritning tekur öllu fram: Í hverri viku nær Biblíufélagið til 20.000 til 40.000 manns í gegnum samfélagsmiðla, með því að deila biblíutengdum myndskeiðum, vonarríkum skilaboðum og hlekkjum inn á nýju þýðinguna.
Sameinuðu biblíufélögin (SB) voru stofnuð árið 1946 í kjölfar síðari heimsstyrjaldarinnar. Félögin starfa um allan heim með það að markmiði að gera Biblíuna aðgengilega og fáanlega öllum, alls staðar, á skiljanlegu tungumáli og fjölbreyttum miðlum. Sameinuðu biblíufélögin fagna því á árinu 2026 að hafa í 80 ár unnið að verkefninu „Biblían ætluð öllum“ með því að vera vettvangur fyrir samstarf 156 biblíufélaga í rösklega 240 löndum og landsvæðum.