100 skrefa Fjölskyldubiblían, er verkefni sem Hið hollenska og flæmska biblíufélag hefur þróað. Um er að ræða vandaða Biblíu sem hjálpar fjölskyldum að kynnast Orði Guðs. Biblían hefur verið þýdd og henni hefur verið deilt á 16 tungumálum. Hún hjálpar fjölskyldum að eignast og skilja Biblíuna með einföldum hætti.
Þessi biblíuútgáfa leiðbeinir fjölskyldum í gegnum Gamla og Nýja testamentið. Biblíuútgáfan notast við frásagnir, myndrænt form og gagnvirkt efni sem hefur gert hana að mikilvægri aðstoð við fjölskyldur sem vilja koma á reglulegum biblíuvenjum heima fyrir.
Fyrsta þýðing 100 skrefa Fjölskyldubiblíunnar kom út á spænsku á vegum Biblíufélagsins í Hondúras árið 2019. Síðan þá hafa fleiri biblíufélög slegist í hópinn og þróað efni sem styður við útgáfu og dreifingu Fjölskyldubiblíunnar. Árið 2024 var 100 skrefa Fjölskyldubiblían fáanleg á hollensku, ensku, spænsku, portúgölsku, frönsku, haítíkreólsku, chichewa (Malaví), papiamentu, (Curaçao), papiamento (Arúba), arabísku, sinhala, tamílamáli, bengali, mandarínkínversku, kmeramáli og rúmenskum tungumálum.
Undanfarin fjögur ár hefur 512.000 Fjölskyldubiblíum verið dreift. Við lok þessa árs er áætlað að fjöldinn hafi náð 645.000 eintökum. Þessar Biblíur hjálpa fjölskyldum að efla daglega trúariðkun sína og biblíulestur og mynda varanleg tengsl við Orð Guðs.
100 skrefa Fjölskyldubiblían snýst um meira en útgáfustarfsemi. Hún er alheimshreyfing sem tengir saman fjölskyldur, kirkjur, sjálfboðaliða og teymi biblíufélaga um allan heim. Með því að hjálpa fjölskyldum að eignast Ritninguna á móðurmáli sínu er stuðlað að því að Orð Guðs verði áfram látið ganga til komandi kynslóða.
Sameinuðu biblíufélögin (SB) voru stofnuð árið 1946 í kjölfar síðari heimsstyrjaldarinnar. Félögin starfa um allan heim með það að markmiði að gera Biblíuna aðgengilega og fáanlega öllum, alls staðar, á skiljanlegu tungumáli og fjölbreyttum miðlum. Sameinuðu biblíufélögin fagna því á árinu 2026 að hafa í 80 ár unnið að verkefninu „Biblían ætluð öllum“ með því að vera vettvangur fyrir samstarf 156 biblíufélaga í rösklega 240 löndum og landsvæðum.