Þann 14. maí fagnaði Færeyska biblíufélagið opinberri útgáfu nýrrar færeyskrar þýðingar á Nýja testamentinu. Síðast var Nýja testamentið þýtt á færeysku árið 1937. Hátíðarathöfn var haldin í Vesturkirkjunni, þar sem Jógvan Fríðriksson biskup, forseti Færeyska biblíufélagsins, flutti prédikun. Bergur D. Joensen, stjórnarformaður Færeyska biblíufélagsins ásamt Dánial á Dul Jacobsen varaformaður, og Hallgerður Akurstein stjórnarmaður lásu upp úr nýju þýðingunni. Unglingakór Gotakirkju flutti einnig nokkur lofgjörðarlög. Athöfnin var túlkuð á táknmál og send út í færeyska sjónvarpinu. Verkefnastjóri þýðingarinnar og nýr framkvæmdastjóri Biblíufélagsins Katrin Elisabeth Lydersen Jacobsen sagði frá vinnulaginu við þýðinguna.
Vinna við nýju þýðinguna var leidd af Hans Jacob Joensen í samstarfi við fjölda annarra presta, þar á meðal Kjartan Mørkøre, Jens Vilhelm Danielsen og Dánial á Dul Jacobsen. Þýðingin var gerð út frá gríska frumtextanum. Leitast var við að hafa þýðinguna samkirkjulega og aðgengilega öllum kristnum mönnum óháð kirkjudeild. Þýðingin er gerð með það í huga að nýtast í helgihaldi og notast við orðaforða sem á rætur sínar að rekja til færeyskrar hefðar.
Næst tekur við þýðing á Gamla testamentinu.
Um trúarlíf í Færeyjum
Vegna þess að eyjarnar eru einangraðar og hefur fólkið þróað með sér sterkt og samheldið samfélag. Íbúafjöldi í Færeyjum er rétt um 55.000 á yfir 18 eyjum. Trúarlíf er mikilvægur hornsteinn færeyskrar menningar og samfélags og er verulega samofið daglegu lífi og félagslegum siðum. Færeyingar eru flestir kristnir og lífið mótast mjög af Fólkakirkjunni, sem er evangelísk lútersk kirkja, en um 77% íbúa í Færeyjum tilheyra Fólkakirkjunni. Hún varð að fullu sjálfstæð frá Dönsku kirkjunni árið 2007. Alls eru 62 Fólkakirkjur í Færeyjum. Plymouth-bræðurnir (Brøðrasamkoman) eru næststærsta trúarhefðin, en um 13% íbúanna tilheyra Bræðrasöfnuðinum. Aðrar kirkjudeildir í Færeyjum eru m.a. rómversk-kaþólska kirkjan, hvítasunnukirkjan, Hjálpræðisherinn og Sjöunda dags Aðventistar. Kirkjusókn í Færeyjum er mjög há í samanburði við önnur lönd í Evrópu.