Fundur framkvæmdastjóra Biblíufélaganna á Norðurlöndum og við Eystrasalt var haldinn í Færeyjum dagana 17. og 18. júní. En fundir framkvæmdastjóranna hafa verið haldnir árlega í marga áratugi.

Meginumræðuefnið á fundinum voru Biblíuþýðingar, en nýþýðing á Nýja testamentinu á færeysku er nýkomin út. Sænska biblíufélagið gefur nú í haust út nýja Nýja testamentisþýðingu, Danska biblíufélagið stefnir á nýja opinbera þýðingu árið 1537 og hefur gefið út fyrstu kynningarritin með nýþýðingu á fjórum ritum.

Þá var umræða um stafræna útgáfu Biblíunnar á vefsíðum og í smáforritum, meðal annars með tilliti til evrópskra persónuverndarlaga.

Færeyingar sýndu mikla gestrisni og sköpuðu frábæra umgjörð fyrir umræður sem eru flóknar en mikilvægar fyrir framtíð Biblíuþýðinga og útbreiðslu Guðs orðs.

Halldór Elías Guðmundsson sat fundinn fyrir Hið íslenska biblíufélag.


Myndin er af vef Færeyska bibíufélagsins. Á myndina vantar Petris Eisans frá Letneska biblíufélaginu.