Við stefnum að því að safna fyrir upptökum, lestri, hljóðblöndun og tæknifrágangi fyrir vef og appið á 500 versum fyrir jól. Nú þegar hafa einstaklingar styrkt okkur um 126 vers og aðeins 374 eftir svo við náum markmiðinu okkar. Kostnaður á hvert vers er um 500 krónur.

Biblíufélagið er að vinna að gerð hljóðbóka fyrir átta rit Biblíunnar um þessar mundir. Þóra Karítas Árnadóttir les núna í nóvember Rutarbók, Esterarbók, Harmljóðin og Ljóðaljóðin. Arnar Jónsson mun halda áfram lestri Mósebókanna eftir áramót er hann les 2. Mósebók. Þá mun Eggert Kaaber lesa bókina um Jónas, auk Esra og Nehemía. Hægt verður að nálgast hljóðbækurnar á vef Biblíufélagsins og í Bible.com appinu án endurgjalds. Heildarfjöldi versa í þessum hluta verkefnisins er um 2500. Verkefnið nýtur góðs af stuðningi bakhjarla Biblíunnar.

Taktu þátt í þessu verkefni með okkur.

Hið íslenska biblíufélag er almannaheillafélag. Einstaklingar og fyrirtæki sem styrkja félagið með gjöfum yfir 10.000 krónum á ári fá skattaafslátt. Fyrirtæki geta veitt styrki til almannaheillafélaga fyrir allt að 1,5% af rekstrartekjum ársins. Hið íslenska biblíufélag sendir skattayfirvöldum yfirlit yfir þá einstaklinga og félög sem gefa umfram 10.000 krónur á ári, og er upphæðin færð sjálfvirkt á skattframtal stuðningsaðila.

Það er einnig hægt að styrkja hljóðbókarverkefnið með því að leggja inn á reikning Biblíufélagsins í Landsbankanum. Bankanúmer: 0101-26-622200, kennitala: 620169-7739, merkt: hljodb.