Vinsælustu biblíutextarnir í Bandaríkjunum, samkvæmt biblíuleitarvélinni Bible Gateway, skipta fylkjum landsins í tvo hópa. Þegar horft er framhjá Jóhannesarguðspjalli 3.16, sem reyndist vinsælasta versið í 47 fylkjum, þá eru tvö vers sem skera sig úr í vinsældum. Annars vegar Jeremía 29.11 og hins vegar Filippíbréfið 4.13, en þessir þrír textar voru vinsælustu textarnir í öllum fylkjum Bandaríkjanna þó röðin hafi ekki alltaf verið sú sama.

Samkvæmt ítarlegri úttekt síðunnar þá var Jeremía 29.11, vinsælasta versið í þremur fylkjum og næstvinsælasta versið í 29 fylkjum, meðan að Filippíbréfið 4.13 naut næstmestrar hylli í 18 fylkjum. Fyrir áhugafólk um bandarísk stjórnmál, má sjá kunnuglega skiptingu á landakortinu sem fylgir fréttinni. Starfsfólk Bible Gateway bendir þó á að munurinn hafi verið mjög lítill víða. Bible Gateway, er biblíuleitarvél með yfir 200 biblíuþýðingum á 70 tungumálum.

Jeremía 29.11

Því að ég þekki þær fyrirætlanir, sem ég hefi í hyggju með yður segir Drottinn fyrirætlanir til heilla, en ekki til óhamingju, að veita yður vonarríka framtíð.

Filippíbréfið 4.13

Allt megna ég fyrir hjálp hans, sem mig styrkan gjörir.

Sjá nánar á https://www.biblegateway.com/blog/2017/12/do-you-live-in-a-god-has-a-plan-state-or-an-i-can-do-all-things-state/