1Til söngstjórans. Kóraíta-sálmur.2Þú hefir haft þóknun á landi þínu, Drottinn, snúið við hag Jakobs,3þú hefir fyrirgefið misgjörð lýðs þíns, hulið allar syndir þeirra. Sela4Þú hefir dregið að þér alla bræði þína, látið af heiftarreiði þinni.5Snú þér til vor aftur, þú Guð hjálpræðis vors, og lát af gremju þinni í gegn oss.6Ætlar þú að vera oss reiður um eilífð, láta reiði þína haldast við frá kyni til kyns?7Vilt þú eigi láta oss lifna við aftur, svo að lýður þinn megi gleðjast yfir þér?8Lát oss, Drottinn, sjá miskunn þína og veit oss hjálpræði þitt!9Ég vil hlýða á það sem Guð Drottinn talar. Hann talar frið til lýðs síns og til dýrkenda sinna og til þeirra, er snúa hjarta sínu til hans.10Já, hjálp hans er nálæg þeim er óttast hann, og vegsemdir munu búa í landi voru.11Elska og trúfesti mætast, réttlæti og friður kyssast.12Trúfesti sprettur upp úr jörðunni, og réttlæti lítur niður af himni.13Þá gefur og Drottinn gæði, og land vort veitir afurðir sínar.14Réttlæti fer fyrir honum, og friður fylgir skrefum hans.

85.2 Snúið við hag Jabobs Slm 14.7; sbr Slm 126
85.3 Fyrirgefið misgjörð Slm 32.5
85.4 Glóandi heift Slm 78.38; 2Mós 32.14; Jes 48.9; Esk 20.21-22; Hós 11.9
85.5 Rétt oss við Slm 80.4; Jer 31.18 – frelsari vor Jes 43.3+
85.6 Reiður um aldur og ævi? Slm 79.5
85.9 Hlýða á tal Drottins Hab 2.1; Heb 2.1 – friður Jes 57.19; Slm 125.5; 128.6; Lúk 2.14
85.10 Hjálp hans er nálæg Jes 51.5 – óttast hann Slm 15.4+
85.11 Elska og trúfesti Slm 89.15; sbr 97.2; Ef 4.15
85.12 Trúfesti sprettur upp Jes 45.8
85.13 Gæði og afurðir Slm 67.7; Sak 8.12
85.14 Réttlæti Jes 58.8