1Asafs-maskíl. Hví hefir þú, Guð, hafnað oss að fullu, hví rýkur reiði þín gegn gæsluhjörð þinni?2Haf í minni söfnuð þinn, er þú aflaðir forðum og leystir til þess að vera kynkvísl óðals þíns, haf í minni Síonfjall, þar sem þú hefir tekið þér bústað.3Bein þú skrefum þínum til hinna endalausu rústa: Öllu hafa óvinirnir spillt í helgidóminum!4Fjandmenn þínir grenjuðu inni á samkomustað þínum, reistu upp hermerki sín.5Eins og menn sem reiða hátt axir í þykkum skógi,6höggva þeir allan útskurð, mölva með exi og hamri.7Þeir hafa lagt eld í helgidóm þinn, vanhelgað bústað nafns þíns til grunna.8Þeir hugsuðu með sjálfum sér: Vér skulum tortíma þeim öllum. Þeir brenndu öll samkomuhús Guðs í landinu.9Vér sjáum eigi merki vor, þar er enginn spámaður framar, og enginn er hjá oss sem veit hve lengi.10Hversu lengi, ó Guð, á fjandmaðurinn að hæða, á óvinurinn að spotta nafn þitt um aldur?11Hví dregur þú að þér hönd þína, hví geymir þú hægri hönd þína í barmi þér?12Og þó er Guð konungur minn frá fornum tíðum, sá er framkvæmir hjálpræðisverk á jörðu.13Þú klaufst hafið með mætti þínum, þú braust sundur höfuð drekans á vatninu,14þú molaðir sundur hausa Levjatans, gafst hann dýrum eyðimerkurinnar að æti.15Þú lést lindir og læki spretta upp, þú þurrkaðir upp sírennandi ár.16Þinn er dagurinn og þín er nóttin, þú gjörðir ljós og sól.17Þú settir öll takmörk jarðarinnar, sumar og vetur hefir þú gjört.18Minnst þess, Drottinn, að óvinurinn lastmælir, og heimskur lýður smánar nafn þitt.19Ofursel eigi villidýrunum sál turtildúfu þinnar, gleym eigi um aldur lífi þinna hrjáðu.20Gef gætur að sáttmála þínum, því að skúmaskot landsins eru full af bælum ofríkisins.21Lát eigi þann er kúgun sætir, snúa aftur með svívirðing, lát hina hrjáðu og snauðu lofa nafn þitt.22Rís upp, Guð, berst fyrir málefni þínu, minnst þú háðungar þeirrar, er þú sætir af heimskingjum daginn á enda.23Gleym eigi hrópi fjenda þinna, glaumkæti andstæðinga þinna, þeirri er sífellt stígur upp.

74.1 Asaf Slm 50.1+ – hafna Slm 44.10; 60.12; 77.8; 89.39 – hjörð Guðs Slm 77.21+
74.2 Minnstu Slm 119.49; 132.1; 2Mós 32.13, Hab 3.2; Hlj 5.1 – eignaðist forðum 5Mós 7.6; – erfðahlutur Guðs Slm 28.9; 33.12; 5Mós 32.9; 1Kon 8.53; Jer 10.16; 51.19
74.3 Rústir, helgidóminum spillt 2Kon 25.8-11
74.4 Heiðin merki í musterinu sbr Dan 9.27
74.7 Eldur 2Kon 25.9; Jes 64.10; Jer 52.13
74.9 Enginn spámaður Slm 77.9; Esk 7.26; Hlj 2.9 – hve lengi Slm 6.4+
74.12 Konungur minn Slm 5.3+
74.13 Guð ríkir yfir hafinu Slm 77.17; 89.10-11; 93.3-4; 104.7; 107.29; Jes 51.9; Job 9.13; 26.12
74.14 Levjatan Slm 104.26; Jes 27.1; Am 9.3; Job 3.8; 26.13; 40.25 – 41.25
74.15 Lindir 2Mós 17.1-7; 4Mós 20.2-13 – þurrkaðir upp fljót Jós 3.15-16; sbr Slm 66.6; 114.5
74.22 Rís upp 4Mós 10.35; Slm 132.8; 2Kro 6.41