1Til söngstjórans. Lag: Vitnisburðarliljan. Miktam eftir Davíð, til fræðslu,2þá er hann barðist við Sýrlendinga frá Mesópotamíu og Sýrlendinga frá Sóba, og Jóab sneri við og vann sigur á Edómítum í Saltdalnum, tólf þúsund manns.3Guð, þú hefir útskúfað oss og tvístrað oss, þú reiddist oss snú þér aftur að oss.4Þú lést jörðina gnötra og rofna, gjör við sprungur hennar, því að hún reikar.5Þú lést lýð þinn kenna á hörðu, lést oss drekka vímuvín.6Þú hefir gefið þeim, er óttast þig, hermerki, að þeir mættu flýja undan bogunum. Sela7Hjálpa þú með hægri hendi þinni og bænheyr oss, til þess að ástvinir þínir megi frelsast.8Guð hefir sagt í helgidómi sínum: Ég vil fagna, ég vil skipta Síkem, mæla út Súkkót-dal.9Ég á Gíleað og ég á Manasse, og Efraím er hlíf höfði mínu, Júda veldissproti minn.10Móab er mundlaug mín, í Edóm fleygi ég skónum mínum, yfir Filisteu fagna ég.11Hver vill fara með mig í örugga borg, hver vill flytja mig til Edóm?12Þú hefir útskúfað oss, ó Guð, og þú, Guð, fer eigi út með hersveitum vorum.13Veit oss lið gegn fjandmönnunum, því að mannahjálp er ónýt.14Með Guðs hjálp munum vér hreystiverk vinna, og hann mun troða óvini vora fótum.

60.2 Sýrlendingar sigraðir 2Sam 8.3-5 – sigur yfir Edómítum 2Sam 8.13
60.3 Útskúfað oss Slm 44.10; 74.1; 89.39
60.4 Lést jörðina skjálfa Hag 2.6; sbr Am 1.1; 8.8; Sak 14.5 – hún riðar 24.20; 54.10
60.5 Vín Jes 51.17; Jer 25.15,27; sbr Slm 75.9
60.6 Óttast Guð Slm 15.4+
60.7 Máttarhendi Slm 17.7; 21.9; 44.4; 45.5; 48.11; 77.11; 118.15-16; 139.10
60.9 Veldissproti minn 1Mós 49.10
60.12 Eigi með hersveitum Slm 44.10
60.13 Veit oss lið 2Kro 14.11 – hjálp manna Slm 56.5; sbr 118.8
60.14 Með Guðs hjálp Slm 18.30; 44.6-9; Heb 11.33 – óvinir fótum troðnir Slm 44.6; sbr Róm 16.20