1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur.2Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti, rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.3Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? Sela4Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð, að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.5Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um í hvílum yðar og verið hljóðir. Sela6Færið réttar fórnir og treystið Drottni.7Margir segja: Hver lætur oss hamingju líta? Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.8Þú hefir veitt hjarta mínu meiri gleði en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.9Í friði leggst ég til hvíldar og sofna, því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.

4.2 Svara mér Slm 17.6; 20.10; 102.3
4.4 Drottinn heyrir Slm 34.7; 116.1; 145.19; 2Mós 22.26; Jes 30.19; Jón 2.3
4.5 Skelfist en syndgið ekki Ef 4.26 – verið Hljóðir Slm 39.2-4; Esk 24.17; Job 2.10
4.6 Réttar fórnir Slm 51.21; 5Mós 33.19 – treysta Drottni Slm 9.11+ ; 55.24+
4.7 Ljós auglits þíns 4Mós 6.25; Slm 31.17; 44.4; 80.4; 89.16
4.8 Gleði hjartans Préd 5.19
4.9 Friðsæll svefn Slm 3.6