1Hví stendur þú fjarri, Drottinn, hví byrgir þú augu þín á neyðartímum?2Hinn óguðlegi ofsækir hina hrjáðu í hroka sínum, þeir flækjast í vélum þeim, er þeir hafa upp hugsað.3Hinn óguðlegi lofar Guð fyrir það, er sála hans girnist, og hinn ásælni prísar Drottin, sem hann fyrirlítur.4Hinn óguðlegi segir í drambsemi sinni: Hann hegnir eigi! Guð er ekki til svo hugsar hann í öllu.5Fyrirtæki hans heppnast ætíð, dómar þínir fara hátt yfir höfði hans, alla fjandmenn sína kúgar hann.6Hann segir í hjarta sínu: Ég verð eigi valtur á fótum, frá kyni til kyns mun ég eigi í ógæfu rata.7Munnur hans er fullur af formælingum, svikum og ofbeldi, undir tungu hans býr illska og ranglæti.8Hann situr í launsátri í þorpunum, í skúmaskotinu drepur hann hinn saklausa, augu hans skima eftir hinum bágstöddu.9„Hann gjörir fyrirsát í fylgsninu eins og ljón í skógarrunni; hann gjörir fyrirsát til þess að ná hinum volaða, hann nær honum í snöru sína, í net sitt.“10Kraminn hnígur hann niður, hinn bágstaddi fellur fyrir klóm hans.11Hann segir í hjarta sínu: Guð gleymir því, hann hefir hulið auglit sitt, sér það aldrei.12Rís þú upp, Drottinn! Lyft þú upp hendi þinni, Guð! Gleym eigi hinum voluðu.13Hvers vegna á hinn óguðlegi að sýna Guði fyrirlitningu, segja í hjarta sínu: Þú hegnir eigi?14„Þú gefur gaum að mæðu og böli til þess að taka það í hönd þína. Hinn bágstaddi felur þér það; þú ert hjálpari föðurlausra.“15Brjót þú armlegg hins óguðlega, og er þú leitar að guðleysi hins vonda, finnur þú það eigi framar.16Drottinn er konungur um aldur og ævi, heiðingjum er útrýmt úr landi hans.17Þú hefir heyrt óskir hinna voluðu, Drottinn, þú eykur þeim hugrekki, hneigir eyra þitt.18Þú lætur hina föðurlausu og kúguðu ná rétti sínum. Eigi skulu menn af moldu framar beita kúgun.

10.1 Hví? Slm 22.2
10.3 Lítilsvirðir Drottinn Slm 10.13; 74.10,18
10.4 Guð er ekki til Slm 14.1; 36.2; 73.11; Jer 5.12; Sef 1.12
10.5 Óguðlegum lánast allt Slm 73.4-12- hann forsmáir Slm 12.6; sbr Mrk 14.65
10.6 Skrika fótur Slm 30.7
10.7 Munnur hans … Róm 3.14
10.9 Fyrirsát Slm 17.12; Jer 5.26; Hós 6.9 – net Slm 9.16+
10.11 Guð sér ekki Slm 73.11; 94.7; Esk 9.9; Job 22.13; sbr Slm 44.25; 74.23
10.12 Rís þú upp Slm 3.8+
10.14 Þú gefur gaum að Slm 31.8; sbr 2Mós 3.7
10.16 Konungur um aldur og ævi Slm 9.8+
10.18 Ná rétti sínum Slm 72.4; 82.3; 103.6; 140.13; 146.7; 5Mós 10.18; Jes 1.17; Jer 5.28; Job 36.6