1Hvað hefur þá Gyðingurinn fram yfir? Eða hvert er gagn umskurnarinnar?2Mikið á allan hátt. Fyrst er þá það, að þeim hefur verið trúað fyrir orðum Guðs.3Hvað um það, þótt nokkrir hafi reynst ótrúir? Mundi ótrúmennska þeirra að engu gjöra trúfesti Guðs?4Fjarri fer því. Guð skal reynast sannorður, þótt hver maður reyndist lygari, eins og ritað er: Til þess að þú reynist réttlátur í orðum þínum og vinnir, þegar þú átt mál að verja.5En ef ranglæti vort sannar réttlæti Guðs, hvað eigum vér þá að segja? Hvort mundi Guð vera ranglátur, er hann lætur reiðina yfir dynja? Ég tala á mannlegan hátt.6Fjarri fer því. Hvernig ætti Guð þá að dæma heiminn?7En verði sannleiki Guðs fyrir lygi mína skýrari honum til dýrðar, hvers vegna dæmist ég þá enn sem syndari?8Eigum vér þá ekki að gjöra hið illa, til þess að hið góða komi fram? Sumir bera oss þeim óhróðri að vér kennum þetta. Þeir munu fá verðskuldaðan dóm.9Hvað þá? Höfum vér þá nokkuð fram yfir? Nei, alls ekki. Vér höfum áður gefið bæði Gyðingum og Grikkjum að sök, að þeir væru allir undir synd.10Eins og ritað er: Ekki er neinn réttlátur, ekki einn.11Ekki er neinn vitur, ekki neinn sem leitar Guðs.12Allir eru þeir fallnir frá, allir saman ófærir orðnir. Ekki er neinn sem auðsýnir gæsku, ekki einn einasti.13Opin gröf er barki þeirra, með tungum sínum draga þeir á tálar. Höggorma eitur er innan vara þeirra,14munnur þeirra er fullur bölvunar og beiskju.15Hvatir eru þeir í spori að úthella blóði.16Tortíming og eymd er í slóð þeirra,17og veg friðarins þekkja þeir ekki.18Fyrir augum þeirra er enginn guðsótti.19Vér vitum, að allt sem lögmálið segir, það talar það til þeirra sem eru undir lögmálinu, til þess að sérhver munnur þagni og allur heimurinn verði sekur fyrir Guði,20með því að enginn lifandi maður réttlætist fyrir honum af lögmálsverkum. En fyrir lögmál kemur þekking syndar.21En nú hefur réttlæti Guðs, sem lögmálið og spámennirnir vitna um, verið opinberað án lögmáls.22Það er: Réttlæti Guðs fyrir trú á Jesú Krist öllum þeim til handa, sem trúa. Hér er enginn greinarmunur:23Allir hafa syndgað og skortir Guðs dýrð,24og þeir réttlætast án verðskuldunar af náð hans fyrir endurlausnina, sem er í Kristi Jesú.25Guð setti hann fram, að hann með blóði sínu væri sáttarfórn þeim sem trúa. Þannig sýndi Guð réttlæti sitt, því að hann hafði í umburðarlyndi sínu umborið hinar áður drýgðu syndir,26til þess að auglýsa réttlæti sitt á yfirstandandi tíma, að hann sé sjálfur réttlátur og réttlæti þann, sem trúir á Jesú.27Hvar er þá hrósunin? Hún er úti lokuð. Með hvaða lögmáli? Verkanna? Nei, heldur með lögmáli trúar.28Vér ályktum því, að maðurinn réttlætist af trú án lögmálsverka.29„Eða er Guð einungis Guð Gyðinga? Ekki líka heiðingja? Jú, líka heiðingja;“30svo sannarlega sem Guð er einn, sem mun réttlæta umskorna menn af trú og óumskorna fyrir trúna.31Gjörum vér þá lögmálið að engu með trúnni? Fjarri fer því. Vér staðfestum lögmálið.

3.2 Trúað fyrir orðum Guðs Róm 9.4-5; 5Mós 4.6-8; 32.7-11; Slm 103.7; 147.19-20; Jóh 4.22
3.4 Sbr Slm 51.6 – Guð sannorður Slm 89.31-38; 119.89-90; Hós 1-3; 1Jóh 1.9; Opb 19.11 – maðurinn lygari Slm 116.11; Jóh 3.3
3.10-12 Sbr Slm 14.1-3; 53.2-4 – ekki neinn réttlátur Préd 7.20; 1Jóh 1.8-10
3.13 Sbr Slm 5.10; 140.4
3.14 Sbr Slm 10.7
3.15-17 Sbr Jes 59.7-8; Okv 1.16
3.18 Sbr Slm 36.1
3.20 Sbr Slm 143.2 – þekking syndar Rom 7.7
3.20-24 Réttlæting af trú Róm 1.16-17; 5.1; 9.30; Fil 3.9; Ef 2.4-10 – ekki af lögmálsverkum Gal 2.16
3.23 Dýrð Guðs Esk 10.18-19; 11.22-23; 43.1-9; Jes 60.1-3 – Kristi gefin dýrð Guðs 1Kor 2.8; 2Kor 4.6 – hlutdeild í dýrð Guðs 2Kor 3.18; Róm 8.18-21,30
3.25 Sáttarfórn (friðþæging) 3Mós 16.12-16; Heb 9.5,15; 1Jóh 2.2; 4.10; Ef 1.7 – umburðarlyndi Guðs 2Mós 34.6-7; Slm 103.8; Jes 48.9; Jer 15.15; Róm 2.4+
3.27 Hrósunin Róm 2.17+
3.31 Staðfesta lögmálið Matt 5.17-19