1Hinir óguðlegu flýja, þótt enginn elti þá, en hinir réttlátu eru öruggir eins og ungt ljón.2Þegar land gengur undan drottnara sínum, gjörast þar margir höfðingjar, en meðal skynsamra og hygginna manna mun góð skipan lengi standa.3Maður sem er fátækur og kúgar snauða, er eins og regn, sem skolar burt korninu, en veitir ekkert brauð.4Þeir sem yfirgefa lögmálið, hrósa óguðlegum, en þeir sem varðveita lögmálið, eru æfir út af þeim.5Illmenni skilja ekki hvað rétt er, en þeir sem leita Drottins, skilja allt.6Betri er fátækur maður, sem framgengur í ráðvendni sinni, heldur en sá, sem beitir undirferli og er þó ríkur.7Sá sem varðveitir lögmálið, er hygginn sonur, en sá sem leggur lag sitt við óhófsmenn, gjörir föður sínum smán.8Sá sem eykur auð sinn með fjárleigu og okri, safnar honum handa þeim, sem líknsamur er við fátæka.9Sá sem snýr eyra sínu frá til þess að heyra ekki lögmálið, jafnvel bæn hans er andstyggð.10Sá sem tælir falslausa menn út á vonda leið, hann fellur sjálfur í gröf sína, en ráðvandir munu hljóta góða arfleifð.11Ríkur maður þykist vitur, en snauður maður, sem er hygginn, sér við honum.12Þegar hinir réttlátu fagna, er mikið um dýrðir, en þegar óguðlegir komast upp, fela menn sig.13Sá sem dylur yfirsjónir sínar, verður ekki lángefinn, en sá sem játar þær og lætur af þeim, mun miskunn hljóta.14Sæll er sá maður, sem ávallt er var um sig, en sá sem herðir hjarta sitt, fellur í ógæfu.15Eins og grenjandi ljón og gráðugur björn, svo er óguðlegur drottnari yfir lítilsigldum lýð.16Höfðingi, sem hefir litlar tekjur, er ríkur að kúgun, sá sem hatar rangfenginn ávinning, mun langlífur verða.17„Sá maður, sem blóðsök hvílir þungt á, er á flótta fram á grafarbarminn; enginn dvelji hann.“18Sá sem breytir ráðvandlega, mun frelsast, en sá sem beitir undirferli, fellur í gryfju.19Sá sem yrkir land sitt, mettast af brauði, en sá sem sækist eftir hégómlegum hlutum, mettast af fátækt.20Áreiðanlegur maður blessast ríkulega, en sá sem fljótt vill verða ríkur, sleppur ekki við refsingu.21Hlutdrægni er ljót, en þó fremja menn ranglæti fyrir einn brauðbita.22Öfundsjúkur maður flýtir sér að safna auði og veit ekki að örbirgð muni yfir hann koma.23Sá sem ávítar mann, mun á síðan öðlast meiri hylli heldur er tungumjúkur smjaðrari.24Sá sem rænir foreldra sína og segir: Það er engin synd! hann er stallbróðir eyðandans.25Ágjarn maður vekur deilur, en sá sem treystir Drottni, mettast ríkulega.26Sá sem treystir eigin hyggjuviti, er heimskingi, en sá sem breytir viturlega, mun undan komast.27Sá sem gefur fátækum, líður engan skort, en þeim sem byrgir augu sín, koma margar óbænir.28Þegar hinir óguðlegu komast upp, fela menn sig, en þegar þeir tortímast, fjölgar réttlátum.

28.3 Regn sbr Slm 72.6
28.5 Skilja allt SSal 3.9
28.8 Fjárleiga og okur 2Mós 22.25+
28.10 Í eigin gröf Okv 26.27+
28.13 Játa yfirsjónir sínar Slm 32.5+ ; Sír 4.26; Lúk 18.9-14
28.21 Hlutdrægni Okv 24.23-24+
28.24 Skyldur við foreldra Sír 3.1-16; sbr Okv 20.20+
28.27 Gefa fátækum Okv 14.21+