1Vertu ekki hróðugur af morgundeginum, því að þú veist ekki, hvað dagurinn ber í skauti sínu.2Lát aðra hrósa þér og ekki þinn eigin munn, óviðkomandi menn, en ekki þínar eigin varir.3Steinar eru þungir, og sandurinn sígur í, en gremja afglapans er þyngri en hvort tveggja.4Heiftin er grimm, og reiðin er svæsin, en hver fær staðist öfundina?5Betri er opinber ofanígjöf en elska sem leynt er.6Vel meint eru vinar sárin, en viðbjóðslegir kossar hatursmannsins.7Saddur maður treður hunangsseim undir fótum, en hungruðum manni þykir allt beiskt sætt.8Eins og fugl, sem floginn er burt úr hreiðri sínu, svo er maður, sem flúinn er burt af heimili sínu.9Ilmolía og reykelsi gleðja hjartað, en indælli er vinur en ilmandi viður.10Yfirgef eigi vin þinn né vin föður þíns og gakk eigi í hús bróður þíns á óheilladegi þínum. Betri er nábúi í nánd en bróðir í fjarlægð.11Vertu vitur, sonur minn, og gleð hjarta mitt, svo að ég geti svarað þeim orði, sem smána mig.12Vitur maður sér ógæfuna og felur sig, en einfeldningarnir halda áfram og fá að kenna á því.13Tak þú skikkjuna af þeim manni, sem hefir gengið í ábyrgð fyrir ókunnugan, tak veð af þeim manni, sem hefir gengið í ábyrgð fyrir útlending.14Hver sem blessar náunga sinn snemma morguns með hárri raustu, það skal metið við hann sem formæling.15Sífelldur þakleki í rigningatíð og þrasgjörn kona er hvað öðru líkt.16Sá er hana stöðvaði, gæti stöðvað vindinn og haldið olíu í hægri hendi sinni.17Járn brýnir járn, og maður brýnir mann.18Sá sem gætir fíkjutrés, mun eta ávöxt þess, og sá sem þjónar húsbónda sínum með virktum, mun heiður hljóta.19Eins og andlit horfir við andliti í vatni, svo er hjarta eins manns gagnvart öðrum.20Dánarheimar og undirdjúpin eru óseðjandi, svo eru og augu mannsins óseðjandi.21Deiglan er fyrir silfrið og bræðsluofninn fyrir gullið, og maðurinn er dæmdur eftir orðstír hans.22Þótt þú steyttir afglapann í mortéli með stauti innan um grjón, þá mundi fíflska hans ekki við hann skilja.23Haf nákvæmar gætur á útliti sauða þinna og veit hjörðunum athygli þína.24Því að auður varir ekki eilíflega, né heldur kóróna frá kyni til kyns.25Sé heyið komið undan og grængresi komið í ljós, og hafi jurtir fjallanna verið hirtar,26þá átt þú lömb þér til klæðnaðar og geithafra til þess að kaupa fyrir akur27og nóga geitamjólk þér til fæðslu, til fæðslu heimili þínu, og til viðurlífis þernum þínum.

27.2 Vera lítillátur Okv 11.2+
27.10 Vinur og bróðir Okv 17.17; 18.24
27.13 Gengið i ábyrgð Okv 6.1-5+
27.15 Þrasgjörn kona Okv 19.13+
27.20 Óseðjandi Okv 30.15-16
27.23 Umhyggja fyrir jörðinni Okv 12.10; Sír 7.22