1Þeir komu nú yfir um vatnið í byggð Gerasena.2Og um leið og Jesús sté úr bátnum, kom maður á móti honum frá gröfunum, haldinn óhreinum anda.3Hann hafðist við í gröfunum, og enginn gat lengur bundið hann, ekki einu sinni með hlekkjum.4Oft hafði hann verið fjötraður á fótum og höndum, en hann braut jafnóðum af sér hlekkina og sleit fjötrana, og gat enginn ráðið við hann.5Allar nætur og daga var hann í gröfunum eða á fjöllum, æpti og lamdi sig grjóti.6Þegar hann sá Jesú álengdar, hljóp hann og féll fram fyrir honum7og æpti hárri röddu: Hvað vilt þú mér, Jesús, sonur Guðs hins hæsta? Ég særi þig við Guð, kvel þú mig eigi!8Því að Jesús hafði sagt við hann: Þú óhreini andi, far út af manninum.9Jesús spurði hann þá: Hvað heitir þú? Hinn svaraði: Hersing heiti ég, vér erum margir.10Og hann bað Jesú ákaft að senda þá ekki brott úr héraðinu.11En þar í fjallinu var mikil svínahjörð á beit.12Og þeir báðu hann: Send oss í svínin, lát oss fara í þau!13Hann leyfði þeim það, og fóru þá óhreinu andarnir út og í svínin, og hjörðin, nær tveim þúsundum, ruddist fram af hamrinum í vatnið og drukknaði þar.14En hirðarnir flýðu og sögðu tíðindin í borginni og sveitinni. Menn fóru þá að sjá, hvað gjörst hafði,15komu til Jesú og sáu haldna manninn, sem hersingin hafði verið í, sitja þar klæddan og heilvita. Og þeir urðu hræddir.16En sjónarvottar sögðu þeim, hvað fram hafði farið við haldna manninn, og frá svínunum.17Og þeir tóku að biðja Jesú að fara burt úr héruðum þeirra.18Þá er hann sté í bátinn, bað sá, er haldinn hafði verið, að fá að vera með honum.19En Jesús leyfði honum það eigi, heldur sagði: Far heim til þín og þinna, og seg þeim, hve mikið Drottinn hefur gjört fyrir þig og verið þér miskunnsamur.20Hann fór og tók að kunngjöra í Dekapólis, hve mikið Jesús hafði fyrir hann gjört, og undruðust það allir.21Þegar Jesús kom aftur yfir um á bátnum, safnaðist að honum mikill mannfjöldi, þar sem hann var við vatnið.22Þar kom og einn af samkundustjórunum, Jaírus að nafni, og er hann sá Jesú, féll hann til fóta honum,23bað hann ákaft og sagði: Dóttir mín litla er að dauða komin. Kom og legg hendur yfir hana, að hún læknist og lifi.24Jesús fór með honum. Og mikill mannfjöldi fylgdi honum, og var þröng um hann.25Þar var kona, sem hafði haft blóðlát í tólf ár.26Hún hafði orðið margt að þola hjá mörgum læknum, kostað til aleigu sinni, en engan bata fengið, öllu heldur versnað.27Hún heyrði um Jesú og kom nú í mannþrönginni að baki honum og snart klæði hans.28Hún hugsaði: Ef ég fæ aðeins snert klæði hans, mun ég heil verða.29Jafnskjótt þvarr blóðlát hennar, og hún fann það á sér, að hún var heil af meini sínu.30Jesús fann þegar á sjálfum sér, að kraftur hafði farið út frá honum, og hann sneri sér við í mannþrönginni og sagði: Hver snart klæði mín?31Lærisveinar hans sögðu við hann: Þú sérð, að mannfjöldinn þrengir að þér, og spyrð þó: Hver snart mig?32Hann litaðist um til að sjá, hver þetta hefði gjört,33en konan, sem vissi, hvað fram við sig hafði farið, kom hrædd og skjálfandi, féll til fóta honum og sagði honum allan sannleikann.34Jesús sagði við hana: Dóttir, trú þín hefur bjargað þér. Far þú í friði, og ver heil meina þinna.35Meðan hann var að segja þetta, koma menn heiman frá samkundustjóranum og segja: Dóttir þín er látin, hví ómakar þú meistarann lengur?36Jesús heyrði, hvað þeir sögðu, en gaf ekki um, heldur sagði við samkundustjórann: Óttast ekki, trú þú aðeins.37Og nú leyfði hann engum að fylgja sér nema Pétri og þeim bræðrum Jakobi og Jóhannesi.38Þeir koma að húsi samkundustjórans. Þar sér hann, að allt er í uppnámi, grátur mikill og kveinan.39Hann gengur inn og segir við þá: Hví hafið þér svo hátt og grátið? Barnið er ekki dáið, það sefur.40En þeir hlógu að honum. Þá lét hann alla fara út og tók með sér föður barnsins og móður og þá sem með honum voru, og gekk þar inn, sem barnið var.41Og hann tók hönd barnsins og sagði: Talíþa kúm! Það þýðir: Stúlka litla, ég segi þér, rís upp!42Jafnskjótt reis stúlkan upp og fór að ganga um, en hún var tólf ára. Og menn urðu frá sér numdir af undrun.43En hann lagði ríkt á við þá að láta engan vita þetta og bauð að gefa henni að eta.

5.1-20 Hlst. Matt 8.28-34; Lúk 8.26-39
5.2 Haldinn óhreinum anda Mrk 1.23 – frá gröfunum Jes 65.4
5.7 Hvað vilt þú mér? Matt 8.29+ – sonur Guðs Matt 14.33+ ; Mrk 1.1+ ; sbr 1.24; 3.11 – sonur Hins Hæsta Lúk 1.32+; 6.35 – ég bið þig Matt 26.63
5.9 Fjöldi illra anda Matt 12.45; Lúk 8.2,27; 11.26
5.18 Vera með Jesú Mrk 3.14
5.19 Far heim til þín Matt 9.6; Mrk 8.26; Lúk 5.24; 8.39
5.20 Kunngera Matt 3.1+ ; Mrk 1.4+
5.21-43 Hlst. Matt 9.18-26; Lúk 8.40-56
5.23 Leggja hendur yfir Matt 9.18+ ; Lúk 4.40; Post 9.12,17; 28.8
5.27 Snart klæði hans Matt 14.36; Mrk 6.56
5.28 Snerting læknar Matt 14.36; Mrk 3.10; 6.56; Lúk 6.19; Post 5.15; 19.11-12
5.30 Kraftur Lúk 6.19
5.34 Trú þín Mrk 10.52 og hlst.; Lúk 7.50; 17.19; sbr Matt 9.22+ – far í friði 1Sam 1.17; 20.42; 2Sam 15.9; 2Kon 5.19; Lúk 7.50; Post 16.36; Jak 2.16
5.35 Hví ómaka? Jóh 11.21,32
5.36 Óttast ekki Mrk 16.6+
5.37 Pétur, Jakob og Jóhannes Matt 17.1 og hlst.+ ; Mrk 1.29; 9.2; 14.33
5.39 Svefn og dauði Matt 9.24+ ; 27.52; 1Kor 11.30; 15.6
5.41 Vekja, reisa upp Matt 9.25+
5.43 Halda leyndu Matt 8.4+