1Þá svaraði Bildad frá Súa og sagði:2Hversu lengi ætlar þú slíkt að mæla og orðin í munni þínum að vera hvass vindur?3Hallar þá Guð réttinum, eða hallar hinn Almáttki réttlætinu?4Hafi börn þín syndgað móti honum, þá hefir hann selt þau misgjörð þeirra á vald.5En ef þú leitar Guðs og biður hinn Almáttka miskunnar6ef þú ert hreinn og einlægur já, þá mun hann þegar vakna til að sinna þér og endurreisa bústað þíns réttlætis.7Þá mun þinn fyrri hagur virðast lítilfjörlegur, en framtíðarhagur þinn vaxa stórum.8Spyr þú hina fyrri kynslóð og gef þú gaum að reynslu feðranna.9Vér erum síðan í gær og vitum ekkert, því að skuggi eru dagar vorir á jörðunni.10En þeir munu fræða þig, segja þér það og bera fram orð úr sjóði hjarta síns:11Sprettur pappírssefið þar sem engin mýri er? vex störin nema í vatni?12Enn stendur hún í blóma og verður eigi slegin, en hún skrælnar fyrr en nokkurt annað gras.13Svo fer fyrir hverjum þeim, sem gleymir Guði, og von hins guðlausa verður að engu.14Athvarf hans brestur sundur, og köngullóarvefur er það, sem hann treystir.15Hann styðst við hús sitt, en það stendur ekki, hann heldur sér fast í það, en það stenst ekki.16Hann er safarík skríðandi flétta í sólskini, sem teygir jarðstöngla sína um garðinn17og vefur rótum sínum um grjóthrúgur og læsir sig milli steinanna.18En ef hann er upprættur frá stað sínum, þá afneitar staðurinn honum og segir: Ég hefi aldrei séð þig!19Sjá, þetta er öll gleði hans, og aðrir spretta í staðinn upp úr moldinni.20Sjá, Guð hafnar ekki hinum ráðvanda og heldur ekki í hönd illgjörðamanna.21Enn mun hann fylla munn þinn hlátri og varir þínar fagnaðarópi.22Þeir sem hata þig, munu skömminni klæðast, og tjald hinna óguðlegu mun horfið vera.

8.3 Réttur Guðs og réttlæti Job 34.10-12; 5Mós 32.4; Slm 89.15
8.6 Endurreisa Job 42.10 sbr 9.28-29
8.8 Spyrja fyrri kynslóð Job 12.12; 32.7; 5Mós 32.7; Sír 8.9
8.9 Lífið er stutt Job 7.7+
8.12 Lífið, skrælnandi jurt Job 14.2; Jes 40.6-8; Slm 90.5-6
8.13 Gleyma Guði Slm 9.18 – von guðleysingjans Okv 10.28
8.15 Stendur ekki Esk 13.10-14; Matt 7.26-27
8.18 Staðurinn hafnar honum Job 7.10+
8.20 Hafnar ekki sbr Job 9.23-24 – styður ekki illvirkja sbr Job 9.24
8.22 Hyljast smán Slm 35.26; 132.18 – tjald guðleysingja Okv 14.11