1Á þeim degi mun Drottinn með hinu harða, mikla og sterka sverði sínu hegna Levjatan, hinum flughraða dreka, Levjatan, hinum bugðótta dreka, og bana sjóskrímslinu.2Á þeim degi skuluð þér kveða um hinn yndislega víngarð:3Ég, Drottinn, er vörður hans, ég vökva hann á hverri stundu. Ég gæti hans nótt og dag, til þess að enginn vinni þar spell.4Mér er ekki reiði í hug, en finni ég þyrna og þistla ræðst ég á þá og brenni þá til ösku5nema menn leiti hælis hjá mér og gjöri frið við mig, gjöri frið við mig.6Á komandi tímum mun Jakob festa rætur, Ísrael blómgast og frjóvgast, og þeir munu fylla jarðarkringluna með ávöxtum.7Hefir Drottinn lostið lýðinn annað eins högg og það, er hann lýstur þá, sem lustu hann? Eða hefir Ísrael myrtur verið, eins og banamenn hans eru myrtir?8Með því að reka lýðinn frá þér, með því að láta hann frá þér, hegnir þú honum. Hann hreif hann burt með hinum hvassa vindi sínum, þegar austanstormurinn geisaði.9Þess vegna verður misgjörð Jakobs með því afplánuð og með því er synd hans algjörlega burt numin, að hann lætur alla altarissteinana verða sem brotna kalksteina, svo að asérurnar og sólsúlurnar rísa ekki upp framar.10Hin víggirta borg er komin í eyði, eins og mannauður og yfirgefinn áfangastaður í eyðimörkinni. Kálfar ganga þar á beit og liggja þar og bíta þar kvisti.11Þegar greinarnar þorna, eru þær brotnar, konur koma og kveikja eld við þær. Því að hún var óvitur þjóð, fyrir því getur hann, sem skóp hana, ekki verið henni miskunnsamur, og hann, sem myndaði hana, ekki verið henni líknsamur.12Á þeim degi mun Drottinn slá kornið úr axinu, allt í frá straumi Efrats til Egyptalandsár, og þér munuð saman tíndir verða einn og einn, Ísraelsmenn!13Á þeim degi mun blásið verða í mikinn lúður, og þá munu þeir koma, hinir töpuðu í Assýríu og hinir burtreknu í Egyptalandi, og þeir munu tilbiðja Drottin á fjallinu helga í Jerúsalem.

27.1 Sverð Drottins Jes 34.5+ – Levjatan Slm 74.14+ – drekinn og hafið Jes 51.9-10; Slm 74.13; Job 7.12
27.2 Víngarð Jes 5.1-7
27.4 Þyrna og þistla Jes 5.6+
27.5 Hælis Jes 26.1; Slm 46.2 – frið Jes 9.6-7; 26.3,12
27.7 Þá, sem lustu hann Jes 10.24-26
27.8 Veðurofsi Jes 40.6-8 – austanstormurinn Esk 17.10
27.9 Ölturu brotin 5Mós 7.5; 2Kon 23.4,15 – asérustólpar og reykelisölturu Jes 17.8
27.10 Borgir traðkaðar Jes 7.25+ – gefnar villidýrum Jes 13.21+
27.11 Skilningslaus þjóð 5Mós 32.6; Hós 4.6; Sír 50.26 – engin miskunn Hós 1.6 – sá sem mótaði hana Jes 43.1,7
27.12 Frá Efrat til Nílar 1Mós 15.18; 2Kon 24.7; sbr 4Mós 34.5
27.13 Hafurshorn þeytt 1) til orrustu Jes 18.3+ ; 2) lýðurinn kallaður saman 2Mós 19.16,19; 20.18; 3Mós 25.9; 4Mós 10.2,10; 2Sam 6.15; 1Kon 1.34-41; Jl 2.15; Slm 47.6; 98.6; 150.3; 3) merki dóms Jl 2.1; Sef 1.16; Matt 24.31+ ; Opb 11.15 – heimakoma frá Assýríu og Egyptalandi Hós 11.11