1Spádómur um Babýlon, er vitraðist Jesaja Amozsyni.2Reisið merki á skóglausri hæð! Kallið hárri röddu til þeirra! Bendið þeim með hendinni, að þeir fari inn um hlið harðstjóranna!3Ég er sá, sem boðið hefi út vígðum liðsmönnum mínum og kallað á kappa mína til að framkvæma reiðidóm minn, þessa hreyknu og hróðugu menn mína.4Heyr þysinn á fjöllunum, eins og af mannmergð, heyr gnýinn af hinum samansöfnuðu þjóðum. Drottinn allsherjar er að kanna liðið.5Þeir koma frá fjarlægu landi, frá himins enda, Drottinn með verkfæri reiði sinnar, til þess að leggja í eyði gjörvalla jörðina.6„Kveinið, því að dagur Drottins er nálægur; hann kemur sem eyðing frá hinum Almáttka.“7Þess vegna verða allar hendur lémagna og sérhvert mannshjarta bráðnar.8Þeir skelfast, harmkvæli og þrautir gagntaka þá, þeir hafa hríðir eins og jóðsjúk kona. Angistarfullir stara þeir hver á annan, andlit þeirra eru sem eldslogi.9Sjá, dagur Drottins kemur, grimmilegur, með heift og brennandi reiði, til að gjöra jörðina að auðn og afmá syndarana af henni.10Stjörnur himinsins og stjörnumerkin láta eigi ljós sitt skína, sólin er myrk í uppgöngu sinni og tunglið ber eigi birtu sína.11Ég vil hegna jarðríki fyrir illsku þess og hinum óguðlegu fyrir misgjörðir þeirra, ég vil niðurkefja ofdramb hinna ríkilátu og lægja hroka ofbeldismannanna.12Ég vil láta menn verða sjaldgæfari en skíragull og mannfólkið torgætara en Ófír-gull.13Þess vegna vil ég hrista himininn, og jörðin skal hrærast úr stöðvum sínum fyrir heift Drottins allsherjar og á degi hans brennandi reiði.14Eins og fældar skógargeitur og eins og smalalaus hjörð skulu þeir hverfa aftur, hver til sinnar þjóðar, og flýja hver heim í sitt land.15Hver sem fundinn verður, mun lagður verða í gegn, og hver sem gripinn verður, mun fyrir sverði falla.16Ungbörn þeirra munu knosuð verða fyrir augum þeirra, hús þeirra verða rænd og konur þeirra smánaðar.17Sjá, ég æsi upp Medíumenn gegn þeim. Þeir meta einskis silfrið og þá langar ekki í gullið.18Bogar þeirra rota unga menn til dauða. Þeir þyrma ekki lífsafkvæmum, og líta ekki miskunnaraugum til ungbarna.19Svo skal fara fyrir Babýlon, þessari prýði konungsríkjanna og drembidjásni Kaldea, sem þá er Guð umturnaði Sódómu og Gómorru.20Hún skal aldrei framar af mönnum byggð vera, kynslóð eftir kynslóð skal þar enginn búa. Enginn Arabi skal slá þar tjöldum sínum og engir hjarðmenn bæla þar fénað sinn.21Urðarkettir skulu liggja þar og húsin fyllast af uglum. Strútsfuglar skulu halda þar til og skógartröll stökkva þar um.22Sjakalar skulu kallast á í höllunum og úlfar í bílífis-sölunum. Tími hennar nálægist og dagar hennar munu eigi undan dragast.

13.1 Boðskapur Jes 15.1; 17.1; 30.6; Nah 1.1; Hab 1.1; Sak 9.1; 12.1; Mal 1.1; Hlj 2.14 – um Babýlon Jes 21.1-10; Jer 50-51; Opb 17-18
13.2 Hermerki Jes 5.26+
13.4 Mannmergð Jer 50.9; sbr Slm 2.1
13.6 Dagur Drottins Am 5.18+
13.7 Hugleysi Jer 6.24; Esk 7.17
13.8 Skelfdir Jes 29.9; Hab 1.5; Job 26.11
13.9 Dagur Drottins Jl 1.15+
13.10 Stjörnur Am 5.8; Job 9.9; 38.31 – himintungl myrkvast Jer 4.23; Am 5.18; Sef 1.15 – máninn Matt 24.29
13.11 Harðstjórar Jes 25.4, 29.5; Slm 54.5
13.12 Ófírgull 1Kon 9.28; 10.11; 22.49; Slm 45.10; Job 22.24; 28.16
13.14 Smalalaus hjörð 1Kon 22.17; Esk 34.5; Mrk 6.34
13.17 Medar Jer 51.11-28
13.21 Auðn, bústaður villidýra Jes 14.23; 27.10; 32.14; 34.11; Jer 10.22; 50.39; Sef 2.14 – bústaður óvætta Jes 34.14; Bar 4.35
13.22 Tími hennar færist nær Jer 27.7; Esk 22.4; sbr Jóh 2.4+