1Um Ammóníta. Svo segir Drottinn: Á þá Ísrael enga sonu, eða á hann engan erfingja? Hví hefir Milkóm erft Gað og hví hefir lýður hans setst að í borgum hans?2Sjá, þeir dagar munu koma segir Drottinn að ég læt heróp heyrast til Rabba, borgar Ammóníta, og hún skal verða að grjóthrúgu og dæturnar eyðast í eldi, og þá skal Ísrael erfa aftur erfingja sína segir Drottinn.3Hljóða þú, Hesbon, yfir því að borgin er unnin! Kveinið Rabbadætur! Gyrðist hærusekk, harmið og reikið um innan fjárgirðinganna, því að Milkóm verður að fara í útlegð, prestar hans og höfðingjar hverjir með öðrum.4Hví stærir þú þig af dölunum, af frjósemi dals þíns, fráhverfa dóttir, sem reiðir sig á fjársjóðu sína og segir: Hver skyldi ráða á mig?5Sjá, ég læt skelfingu koma yfir þig segir herrann, Drottinn allsherjar úr öllum áttum í kringum þig, og þér skuluð verða reknir brott, hver það sem horfir, og enginn safnar þeim saman, er flýja.6En síðar meir mun ég leiða heim aftur hina herleiddu af Ammónítum segir Drottinn.7Um Edóm. Svo segir Drottinn allsherjar: Er þá engin viska framar í Teman? Eru góð ráð horfin hinum hyggnu, er viska þeirra þrotin?8Flýið, hverfið brott, felið yður djúpt niðri, þér íbúar Dedans! Því að Esaús glötun læt ég yfir hann koma, þá er ég hegni honum.9Ef vínlestursmenn ráðast á þig, þá skilja þeir ekki neinn eftirtíning eftir. Ef þjófar koma að þér á náttarþeli, þá skemma þeir, þar til er þeim nægir.10En af því að ég sjálfur afhjúpa Esaú, gjöri ber fylgsni hans, svo að hann getur ekki falið sig, þá verða niðjar hans unnir og frændþjóðir hans og nábúar, og úti er um hann.11Yfirgef munaðarleysingja þína, ég mun halda lífinu í þeim, og ekkjur þínar mega reiða sig á mig!12Svo segir Drottinn: Sjá, þeim sem eigi bar að drekka bikarinn, þeir urðu að drekka hann og þú ættir að sleppa óhegndur? Þú munt ekki sleppa óhegndur, heldur skalt þú drekka.13Því að ég sver við sjálfan mig segir Drottinn, að Bosra skal verða að skelfing, háðung, undrun og formæling, og allar borgir hennar skulu verða að eilífum rústum.14Ég hefi fengið vitneskju frá Drottni, og boðberi er sendur meðal þjóðanna! Safnist saman og farið gegn borginni og búist til bardaga!15Sjá, ég vil gjöra þig litla meðal þjóðanna, fyrirlitna meðal mannanna.16Skelfingin, sem þú skaust öðrum í brjóst, og hroki hjarta þíns hafa dregið þig á tálar, þú sem átt byggð í klettaskorum, situr á háa hnúknum. Þó að þú byggðir hreiður þitt hátt, eins og örninn, þá steypi ég þér þaðan niður segir Drottinn.17Edóm skal verða að skelfingu, hver sem fer þar um mun skelfast og hæðast að öllum áföllunum, er hann hefir orðið fyrir.18Eins og Sódómu og Gómorru og nágrannaborgunum var umturnað, segir Drottinn, svo skal og enginn maður búa þar, né nokkurt mannsbarn hafast þar við.19Sjá, eins og ljón, sem kemur út úr kjarrinu á Jórdanbökkum og stígur upp á sígrænt engið, svo mun ég skyndilega reka hann burt þaðan, og hvern þann, sem útvalinn er, mun ég setja yfir hana. Því að hver er minn líki? Hver vill stefna mér? Hver er sá hirðir, er fái staðist fyrir mér?20Heyrið því ráðsályktun Drottins, er hann hefir gjört viðvíkjandi Edóm, og þær fyrirætlanir, er hann hefir í huga viðvíkjandi Teman-búum: Sannarlega munu þeir draga hina lítilmótlegustu úr hjörðinni burt. Sannarlega skal haglendi þeirra verða agndofa yfir þeim.21Af dyn falls þeirra nötrar jörðin, neyðarkveinið ómurinn af því heyrist við Rauðahafið.22Sjá, sem örn stígur hann upp og flýgur hingað og breiðir út vængi sína yfir Bosra, og hjarta Edóms kappa mun á þeim degi verða eins og hjarta konu, sem er í barnsnauð.23Um Damaskus. Hamat og Arpad eru agndofa, því að þær hafa spurt ill tíðindi, þær eru hræddar, fullar af óró, eins og hafið, sem getur ekki verið kyrrt.24Damaskus er orðin huglaus, hefir snúist á flótta, og ótti hefir gripið hana, angist og kvalir hafa altekið hana, eins og jóðsjúka konu.25Hví var hún ekki yfirgefin, hin vegsamaða borg, ununar-borgin mín?26Fyrir því verða nú æskumenn hennar að falla á torgunum og allir hermenn hennar að farast á þeim degi segir Drottinn allsherjar.27Og ég kveiki eld við múra Damaskus, til þess að hann eyði höllum Benhadads.28Um Kedar og konungsríki Hasórs, er Nebúkadresar Babelkonungur vann. Svo segir Drottinn: Standið upp, farið á móti Kedar og herjið á austurbyggja.29Tjöld þeirra og sauði munu þeir taka, og tjalddúka þeirra og öll áhöld og úlfalda þeirra munu þeir flytja burt frá þeim. Þá munu menn hrópa yfir þeim: Skelfing allt um kring!30Leggið á flótta, flýið sem hraðast, felið yður djúpt niðri, þér íbúar Hasórs segir Drottinn, því að Nebúkadresar Babelkonungur hefir gjört ráðsályktun gegn yður og hefir í huga ráðagjörð gegn yður.31Af stað! Farið á móti meinlausri þjóð, sem býr örugg segir Drottinn, og hvorki hefir hurðir né slagbranda. Þeir búa einir sér.32Úlfaldar þeirra skulu verða að ránsfeng og mergð nautahjarða þeirra að herfangi, og ég mun dreifa þeim fyrir öllum vindum, þeim sem skera hár sitt við vangann, og láta ógæfu hvaðanæva yfir þá koma segir Drottinn.33Hasór skal verða að sjakalabæli, að auðn um eilífð. Enginn maður mun framar búa þar og ekkert mannsbarn hafast þar við.34Þetta birtist Jeremía spámanni sem orð Drottins um Elam í upphafi ríkisstjórnar Sedekía Júdakonungs:35Svo segir Drottinn allsherjar: Sjá, ég brýt sundur boga Elamíta, meginstyrk þeirra.36Og ég hleypi á Elamíta fjórum vindum úr fjórum áttum himins og tvístra þeim fyrir öllum þessum vindum, og engin skal sú þjóð til vera, að þangað komi ekki flóttamenn frá Elam.37Ég læt Elamíta skelfast fyrir óvinum þeirra og fyrir þeim, er sækjast eftir lífi þeirra, og leiði yfir þá óhamingju, mína brennandi reiði segir Drottinn og sendi sverðið á eftir þeim, uns ég hefi gjöreytt þeim.38Ég reisi hásæti mitt í Elam og eyði þaðan konungi og höfðingjum segir Drottinn.39En þá er fram líða stundir mun ég snúa við högum Elams segir Drottinn.

49.2 Rabba 5Mós 3.11; 2Sam 11.1; Esk 21.25; 25.5 – heróp Jer 4.19; 50.15; sbr Jes 42.13 – eyddar í eldi Am 1.14
49.3 Hesbon sbr Jer 48.2+ – hærusekkur Jer 4.8+ – Milkóm í útlegð Jer 48.7
49.4 Stært þig Jer 48.7+
49.5 Skelfing Jer 48.44
49.6 Snúa við högum Jer 12.15+
49.7-16 sbr Ób 1-6
49.7 Um Edóm Jer 25.21; Am 1.11+ ; Slm 137.7+ ; sbr 1Mós 25.30; 2Sam 8.14; 2Kon 8.20-22; 16.6; Hlj 4.21 – speki í Teman Bar 3.22
49.8 Dedan Jer 25.23; Jes 21.13; Esk 25.13; 27.20 – gera upp sakir Jer 8.12+
49.10 Afhjúpað Esaú Ób 6
49.12 Verða að drekka Jer 25.15+ ; Jes 63.6 – ekki hlíft Jer 25.29
49.13 Drottinn sver Jer 22.5+ – Bosra 1Mós 36.33; Jes 34.6 – bölvun Jer 24.9+
49.17 Blístra háðslega Jer 22.8; 50.13 – skelfingu lostinn Jer 18.16; 19.8
49.18 Eins og … Jer 50.40 – Sódóma og Gómorra 1Mós 19.24-25; Jes 1.9+
49.19-21 sbr Jer 50.44-46
49.19 Guðs líki Jes 40.18+ – krefur… SSal 12.12; sbr Job 9.19
49.20 Ákvörðun Drottins Jer 18.11; 50.45; 51.12; Mík 4.12
49.22 Eins og örn Jer 48.40
49.23 Um Damaskus 2Sam 8.5; 2Kon 14.28; Jes 7.8; 17.1-3 – Hamat Jer 39.5; 2Kon 14.28; 18.34; Jes 10.9 – Arpad 2Kon 19.13
49.24 Eins og jóðsjúk kona Jer 50.43; Jes 13.8
49.28 Arabía (Kedar) Jer 2.10+ ; 25.24; Jes 21.13-17 – Hasór Jós 11.10; Dóm 4.2; 1Kon 9.15; 2Kon 15.29
49.29 Skelfing úr öllum áttum Jer 6.25+
49.30 Nebúkadresar Jer 21.2+
49.32 Klippa Jer 9.25; 25.23
49.34 Elam Jer 25.25; Jes 11.11; 21.2; Esk 32.24-25
49.35 Bogi Elamíta Jes 22.6
49.37 Logandi reiði Jer 12.13 – sendi sverðið Jer 9.16
49.39 Snúa við högum Jer 12.15+