1Orðið sem kom til Jeremía frá Drottni, þegar Sedekía konungur sendi þá Pashúr Malkíason og Sefanía prest Maasejason til hans með þessa orðsendingu:2Nebúkadresar Babelkonungur herjar á oss. Gakk til frétta við Drottin fyrir oss, hvort Drottinn muni við oss gjöra samkvæmt öllum sínum dásemdarverkum, svo að hann fari burt frá oss aftur.3Þá sagði Jeremía við þá: Segið svo Sedekía:4Svo segir Drottinn, Ísraels Guð: Sjá, ég sný við hervopnunum í höndum yðar, sem þér berjist með við Babelkonung og við Kaldea, sem að yður kreppa fyrir utan borgarmúrinn. Ég safna þeim saman inni í þessari borg,5og ég mun sjálfur berjast við yður með útréttri hendi og sterkum armlegg og með reiði, heift og mikilli gremi.6Ég mun ljósta íbúa þessarar borgar, bæði menn og skepnur, þeir skulu deyja af mikilli drepsótt.7En eftir það segir Drottinn mun ég selja Sedekía Júdakonung og þjóna hans og lýðinn, þá er eftir verða í þessari borg eftir drepsóttina, sverðið og hungrið, í hendur Nebúkadresars Babelkonungs og í hendur óvina þeirra og í hendur þeirra, er sækjast eftir lífi þeirra, og hann mun drepa þá með sverðseggjum hlífðarlaust, vægðarlaust og miskunnarlaust.8En við lýð þennan skalt þú segja: Svo segir Drottinn: Sjá, ég legg fyrir yður veg lífsins og veg dauðans.9Þeir sem verða kyrrir í þessari borg, munu deyja fyrir sverði, af hungri og af drepsótt, en þeir sem fara út og ganga á vald Kaldeum, sem að yður kreppa, þeir munu lífi halda og hljóta líf sitt að herfangi.10Því að ég hefi snúið andliti mínu gegn þessari borg, til óheilla og ekki til heilla segir Drottinn. Hún skal ofurseld verða Babelkonungi, og hann skal brenna hana í eldi.11Um hús konungsins í Júda. Heyrið orð Drottins! Davíðs hús,12svo segir Drottinn: Haldið rétt að morgni dags og frelsið hinn rænda af hendi kúgarans, til þess að heiftarreiði mín brjótist ekki út eins og eldur og brenni, svo að enginn fái slökkt sakir illverka yðar!13Sjá, ég skal finna þig, þú sem býr í dalnum, kletturinn á sléttunni segir Drottinn yður sem segið: Hver skyldi koma ofan gegn oss og hver skyldi brjótast inn í bústaði vora?14Og ég skal vitja yðar samkvæmt ávöxtum verka yðar segir Drottinn og leggja eld í skóg yðar, og hann skal eyða öllu, sem umhverfis hana er.

21.1 Orðið Jer 18.1 – Pashúr Jer 38.1 – Sefanía prestur Jer 29.25; 37.3; 52.24 – Sedekía Jer 1.3+
21.2 Leita ráða Jer 37.7; 1Kon 22.8,13-14 – Nebúkadresar Jer 24.1; 27.8; 28.3; 29.1; 34.1; 35.11; 37.1; 39.1; 43.10; 52.4 – kraftaverk 2Kon 19.35-36; sbr Slm 105.2,5
21.5 Með sterkum armi Jer 27.5; 32.17; 5Mós 4.34; 5.15; Slm 136.12; Jes 62.8
21.7 Dauðdagi Sedekía Jer 34.5; sbr 32.5 – drepsótt, sverð og hungur Jer 14.12+ – vægðarlaust Jer 13.14+
21.8 Velja líf eða dauða Jer 17.5-8; 38.2; 5Mós 30.15-20; sbr 11.26-28
21.9 Munu lifa Jer 38.2; 39.18; 45.5
21.10 Andsnúinn Jer 44.11; 3Mós 20.3; Esk 14.8; sbr Am 9.4
21.12 Bjarga hinum rænda Jer 22.3 – frá kúgaranum Jer 22.13
21.13-14 Leggja eld að Jer 22.6-7
21.13 Ráðast gegn Jer 50.31; 51.25; sbr Nah 2.14; 3.5
21.14 Verk yðar Jer 17.10+