1Drottinn sagði við mig: Far enn og elska konu, sem elskar annan mann og haft hefir fram hjá, eins og Drottinn elskar Ísraelsmenn, þótt þeir hneigist að öðrum guðum og þyki rúsínukökur góðar.2Þá keypti ég mér hana fyrir fimmtán sikla silfurs og hálfan annan kómer byggs3og sagði við hana: Langan tíma skalt þú sitja ein án þess að drýgja hór og án þess að heyra nokkrum manni til. Svo skal ég og vera gagnvart þér.4Þannig munu Ísraelsmenn langan tíma sitja einir án konungs og án höfðingja, án fórnar og án merkissteins, án hökuls og húsguða.5Eftir það munu Ísraelsmenn snúa sér og leita Drottins, Guðs síns, og Davíðs, konungs síns, og þeir munu á hinum síðustu dögum flýja til Drottins og til hans blessunar.

3.1 Halda framhjá Hós 2.4 – með öðrum guðum 2Mós 20.3; 5Mós 5.7; 6.4
3.4 Hökull, húsguðir Dóm 17.5; 18.14-17
3.5 Drottinn … og Davíð Jer 30.9; Esk 37.24-25