1Lögmálið geymir aðeins skugga hins góða, sem er í vændum, ekki skýra mynd þess. Ár eftir ár eru bornar fram sömu fórnir, sem geta aldrei gjört þá fullkomna til frambúðar, sem ganga fram fyrir Guð.2Annars hefðu þeir hætt að bera þær fram. Dýrkendurnir hefðu þá ekki framar verið sér meðvitandi um synd, ef þeir hefðu í eitt skipti fyrir öll orðið hreinir.3En með þessum fórnum er minnt á syndirnar ár hvert.4Því að blóð nauta og hafra getur með engu móti numið burt syndir.5Því er það, að Kristur segir, þegar hann kemur í heiminn: Fórn og gjafir hefur þú eigi viljað, en líkama hefur þú búið mér.6Brennifórnir og syndafórnir geðjuðust þér ekki.7Þá sagði ég: Sjá, ég er kominn í bókinni er það ritað um mig ég er kominn til að gjöra þinn vilja, Guð minn!8Fyrst segir hann: Fórnir og gjafir og brennifórnir og syndafórnir hefur þú eigi viljað, og eigi geðjaðist þér að þeim. En það eru einmitt þær, sem fram eru bornar samkvæmt lögmálinu.9Síðan segir hann: Sjá, ég er kominn til að gjöra vilja þinn. Hann tekur burt hið fyrra til þess að staðfesta hið síðara.10Og samkvæmt þessum vilja erum vér helgaðir með því, að líkama Jesú Krists var fórnað í eitt skipti fyrir öll.11Og svo er því farið um hvern prest, að hann er dag hvern bundinn við helgiþjónustu sína og ber fram margsinnis hinar sömu fórnir, þær sem þó geta aldrei afmáð syndir.12En Jesús bar fram eina fórn fyrir syndirnar og settist um aldur við hægri hönd Guðs13og bíður þess síðan, að óvinir hans verði gjörðir að fótskör hans.14Því að með einni fórn hefur hann um aldur fullkomnað þá, er helgaðir verða.15Og einnig heilagur andi vitnar fyrir oss. Fyrst segir hann:16Þetta er sáttmálinn, er ég mun gjöra við þá eftir þá daga, segir Drottinn. Lög mín vil ég leggja í hjörtu þeirra, og í hugskot þeirra vil ég rita þau.17Síðan segir hann: Ég mun aldrei framar minnast synda þeirra eða lögmálsbrota.18En þar sem syndirnar eru fyrirgefnar, þar þarf ekki framar fórn fyrir synd.19Vér megum nú, bræður, fyrir Jesú blóð með djörfung ganga inn í hið heilaga,20þangað sem hann vígði oss veginn, nýjan veg og lifandi inn í gegnum fortjaldið, það er að segja líkama sinn.21Vér höfum mikinn prest yfir húsi Guðs.22Látum oss því ganga fram fyrir Guð með einlægum hjörtum, í öruggu trúartrausti, með hjörtum, sem hreinsuð hafa verið og eru laus við meðvitund um synd, og með líkömum, sem laugaðir hafa verið í hreinu vatni.23Höldum fast við játningu vonar vorrar án þess að hvika, því að trúr er sá, sem fyrirheitið hefur gefið.24Gefum gætur hver að öðrum og hvetjum hver annan til kærleika og góðra verka.25Vanrækið ekki safnaðarsamkomur yðar eins og sumra er siður, heldur uppörvið hver annan, og það því fremur sem þér sjáið að dagurinn færist nær.26Því að ef vér syndgum af ásettu ráði, eftir að vér höfum öðlast þekkingu sannleikans, þá er úr því enga fórn að fá fyrir syndirnar,27heldur er það óttaleg bið eftir dómi og grimmilegur eldur, sem eyða mun andstæðingum Guðs.28Sá, er að engu hefur lögmál Móse, verður vægðarlaust líflátinn, ef tveir eða þrír vottar bera.29Hve miklu þyngri hegning ætlið þér þá ekki að sá muni vera talinn verðskulda, er fótum treður son Guðs og vanhelgar blóð sáttmálans, er hann var helgaður í, og smánar anda náðarinnar?30Vér þekkjum þann, er sagt hefur: Mín er hefndin, ég mun endurgjalda. Og á öðrum stað: Drottinn mun dæma lýð sinn.31Óttalegt er að falla í hendur lifanda Guðs.32Minnist fyrri daga, er þér höfðuð tekið á móti ljósinu, hvernig þér urðuð að þola mikla raun þjáninga.33Það var ýmist, að þér sjálfir, smánaðir og aðþrengdir, voruð hafðir að augnagamni, eða þá hitt, að þér tókuð þátt í kjörum þeirra, er áttu slíku að sæta.34Þér þjáðust með bandingjum, og tókuð því með gleði, er þér voruð rændir eignum yðar, því að þér vissuð, að þér áttuð sjálfir betri eign og varanlega.35Varpið því eigi frá yður djörfung yðar. Hún mun hljóta mikla umbun.36Þolgæðis hafið þér þörf, til þess að þér gjörið Guðs vilja og öðlist fyrirheitið.37Því að: Innan harla skamms tíma mun sá koma, sem koma á, og ekki dvelst honum.38Minn réttláti mun lifa fyrir trúna, en skjóti hann sér undan, þá hefur sála mín ekki velþóknun á honum.39En vér skjótum oss ekki undan og glötumst, heldur trúum vér og frelsumst.

10.1 Fánýtar fórnir Jes 1.11-13; Jer 6.20; 7.22; Am 5.21-25; Hós 6.6; Mík 6.6-8
10.5-7 Sbr Slm 40.7-9
10.11 Daglegar fórnir 2Mós 29.38
10.12-13 Sbr Slm 110.1; Matt 22.44+
10.16-17 Sbr Jer 31.31-34; Heb 8.10-12
10.19 Blóð Krists Heb 9.12,14+
10.22 Laugaðir í vatni Esk 36.25; Ef 5.26
10.28 Tveir eða þrír vottar 5Mós 17.6; 19.15; Matt 18.16; 2Kor 13.1; 1Tím 5.19
10.29 Blóð sáttmálans Heb 9.20+
10.30 Sbr 5Mós 32.35-36; Róm 12.19
10.32 Taka á móti ljósinu Heb 6.4+
10.37 Sbr Jes 26.20
10.38 Sbr Hab 2.3-4; Róm 1.17; gal 3.11