1Er Samúel var orðinn gamall, setti hann sonu sína dómara yfir Ísrael.2Frumgetinn sonur hans hét Jóel, en annar sonur hans Abía. Þeir dæmdu í Beerseba.3En synir hans fetuðu ekki í fótspor hans, heldur hneigðust þeir til ágirndar og þágu mútur og hölluðu réttinum.4Þá söfnuðust allir öldungar Ísraels saman og fóru á fund Samúels í Rama5og sögðu við hann: Sjá, þú ert nú orðinn gamall og synir þínir feta ekki í fótspor þín. Set oss því konung til að dæma oss, eins og er hjá öllum öðrum þjóðum.6En Samúel mislíkaði það, að þeir sögðu: Gef oss konung til þess að dæma oss! Og Samúel bað til Drottins.7Drottinn sagði við Samúel: Lát þú að orðum lýðsins í öllu því, sem þeir biðja þig um, því að þeir hafa ekki hafnað þér, heldur hafa þeir hafnað mér, að ég skuli ekki lengur vera konungur yfir þeim.8Svona hafa þeir ávallt breytt frá þeim degi, er ég leiddi þá út af Egyptalandi, allt fram á þennan dag. Þeir hafa yfirgefið mig og þjónað öðrum guðum. Öldungis á sama hátt fara þeir nú og með þig.9Lát því nú að orðum þeirra. Þó skalt þú vara þá alvarlega við, og segja þeim háttu konungsins, sem ríkja á yfir þeim.10Þá sagði Samúel lýðnum, sem heimti af honum konung, öll orð Drottins11og mælti: Þessi mun verða háttur konungsins, sem yfir yður á að ríkja: Sonu yðar mun hann taka og setja þá við vagn sinn og á hesta sína, og þeir munu hlaupa fyrir vagni hans,12og hann mun skipa þá höfuðsmenn yfir þúsund og höfuðsmenn yfir fimmtíu, og setja þá til að plægja akurland sitt og skera upp korn sitt og gjöra hernaðartygi sín og ökutygi.13Og dætur yðar mun hann taka og láta þær búa til smyrsl, elda og baka.14Og bestu lendur yðar, víngarða og olífugarða mun hann taka og gefa þjónum sínum,15og af sáðlöndum yðar og víngörðum mun hann taka tíund og gefa hana geldingum sínum og þjónum sínum.16Og þræla yðar og ambáttir og hina bestu uxa yðar og asna yðar mun hann taka og hafa til sinna verka.17Af sauðfénaði yðar mun hann taka tíund, en sjálfir munuð þér verða þrælar hans.18Þá munuð þér hrópa undan konungi yðar, er þér þá hafið kjörið yður, en þá mun Drottinn ekki svara yður.19En fólkið vildi ekki hlýða fortölum Samúels og sagði: Nei, konungur skal yfir oss vera,20svo að vér séum eins og allar aðrar þjóðir, og konungur vor skal dæma oss og vera fyrirliði vor og heyja bardaga vora.21Samúel hlýddi á öll ummæli lýðsins og tjáði þau fyrir Drottni.22En Drottinn sagði við Samúel: Lát þú að orðum þeirra og set yfir þá konung. Þá sagði Samúel við Ísraelsmenn: Farið burt, hver til síns heimkynnis.

8.3 Þiggja mútur 1Sam 2.12; 2Mós 23.8; 3Mós 19.15; 5Mós 16.19; Jes 5.23
8.5 Eins og allar aðrar þjóðir 1Sam 8.20; 5Mós 17.14; Esk 20.32; sbr Est 3.8
8.7 Ég er konungur ykkar 1Sam 12.12; Dóm 8.23; Slm 47.9
8.8 Þjóna öðrum guðum 1Sam 26.19; Dóm 10.13; 1Kon 9.9
8.11 Hlaupa á undan vagni 2Sam 15.1; 1Kon 1.5
8.14 Tekur víngarða yðar 1Kon 21
8.18 Kveina undan konunginum 1Kon 12.4; Mík 3.4