1„Drottinn sagði við Samúel: Hversu lengi ætlar þú að vera sorgmæddur út af Sál, þar sem ég hefi þó hafnað honum og svipt hann konungdómi yfir Ísrael? Fyll þú horn þitt olíu og legg af stað; ég sendi þig til Ísaí Betlehemíta, því að ég hefi kjörið mér konung meðal sona hans.“2Samúel svaraði: Hversu má ég fara? Frétti Sál það, mun hann drepa mig. En Drottinn sagði: Tak þú með þér kvígu og segðu: Ég er kominn til þess að færa Drottni fórn.3Og bjóð þú Ísaí til fórnarmáltíðarinnar, og ég skal sjálfur láta þig vita, hvað þú átt að gjöra, og þú skalt smyrja mér þann, sem ég mun segja þér.4Samúel gjörði það, sem Drottinn sagði. Og er hann kom til Betlehem, gengu öldungar borgarinnar í móti honum hræddir í huga og sögðu: Kemur þú góðu heilli?5Hann svaraði: Já, ég er kominn til þess að færa Drottni fórn. Helgið yður og komið með mér til fórnarmáltíðarinnar. Og hann helgaði Ísaí og sonu hans og bauð þeim til fórnarmáltíðarinnar.6En er þeir komu, sá Samúel Elíab og hugsaði: Vissulega stendur hér frammi fyrir Drottni hans smurði.7En Drottinn sagði við Samúel: Lít þú ekki á skapnað hans og háan vöxt því að ég hefi hafnað honum. Guð lítur ekki á það, sem mennirnir líta á. Mennirnir líta á útlitið, en Drottinn lítur á hjartað.8Þá kallaði Ísaí á Abínadab og leiddi hann fyrir Samúel. En hann mælti: Ekki hefir Drottinn heldur kjörið þennan.9Þá leiddi Ísaí fram Samma. En Samúel mælti: Ekki hefir Drottinn heldur kjörið þennan.10Þannig leiddi Ísaí fram sjö sonu sína fyrir Samúel, en Samúel sagði við Ísaí: Engan af þessum hefir Drottinn kjörið.11Og Samúel sagði við Ísaí: Eru þetta allir sveinarnir? Hann svaraði: Enn er hinn yngsti eftir, og sjá, hann gætir sauða. Samúel sagði við Ísaí: Send eftir honum og lát sækja hann, því að vér setjumst ekki til borðs fyrr en hann er kominn hingað.12Þá sendi hann eftir honum og lét hann koma, en hann var rauðleitur, fagureygur og vel vaxinn. Og Drottinn sagði: Statt þú upp, smyr hann, því að þessi er það.13Þá tók Samúel olíuhornið og smurði hann mitt á meðal bræðra hans. Og andi Drottins kom yfir Davíð upp frá þeim degi. En Samúel tók sig upp og fór til Rama.14Andi Drottins var vikinn frá Sál, en illur andi frá Drottni sturlaði hann.15Þá sögðu þjónar Sáls við hann: Illur andi frá Guði sturlar þig.16„Herra vor þarf ekki nema að skipa; þjónar þínir standa frammi fyrir þér og munu leita upp mann, sem kann að leika hörpu. Þá mun svo fara, að þegar hinn illi andi frá Guði kemur yfir þig, og hann leikur hörpuna hendi sinni, þá mun þér batna.“17Og Sál sagði við þjóna sína: Finnið mér mann, sem vel leikur á strengjahljóðfæri, og færið mér hann.18Þá svaraði einn af sveinunum og mælti: Sjá, ég hefi séð son Ísaí Betlehemíta, sem kann að leika á strengjahljóðfæri og er hreystimenni og bardagamaður, vel máli farinn og vaxinn vel, og Drottinn er með honum.19Þá gjörði Sál menn til Ísaí og lét segja honum: Sendu Davíð son þinn til mín, þann er sauðanna gætir.20Þá tók Ísaí tíu brauð, vínbelg og einn geithafur og sendi Sál með Davíð syni sínum.21Og Davíð kom til Sáls og þjónaði honum. Lagði Sál mikinn þokka á hann og gjörði hann að skjaldsveini sínum.22Þá sendi Sál til Ísaí og lét segja honum: Lát þú Davíð ganga í þjónustu mína, því að hann fellur mér vel í geð.23Og jafnan þegar hinn illi andi frá Guði kom yfir Sál, þá tók Davíð hörpuna og lék hana hendi sinni. Þá bráði af Sál og honum batnaði, og hinn illi andi vék frá honum.

16.1 Fylltu horn þitt olíu 2Kon 9.1,3 – Ísaí Jes 11.1; Rut 4.17-22; Post 13.22; Róm 15.12
16.3 Ég læt þig vita 5Mós 17.15
16.7 Hár vöxtur 1Sam 9.2+ – Drottinn horfir á hjartað 1Kon 8.39; Jer 11.20; 12.3; Slm 7.10; 17.3; Okv 15.11; 17.3
16.11 Davíð situr eftir fénu 1Sam 16.19; 17.15,40; Sír 47.3; sbr Slm 23
16.13 Smurði hann 1Sam 10.1; 1Kon 1.39; 2Kon 9.6 – andi Drottins 1Sam 11.6+
16.14 Illur andi 1Sam 18.10; 19.9
16.17 Sem leikur vel 2Kon 3.15; sbr Sír 47.8
16.18 Davíð er hraustmenni Slm 89.20