1Er ég ekki frjáls? Er ég ekki postuli? Hef ég ekki séð Jesú, Drottin vorn? Eruð þér ekki verk mitt, sem ég hef unnið fyrir Drottin?2Þótt ekki væri ég postuli fyrir aðra, þá er ég það fyrir yður. Þér eruð staðfesting Drottins á postuladómi mínum.3Þetta er vörn mín gagnvart þeim, sem dæma um mig.4Höfum vér ekki rétt til að eta og drekka?5Höfum vér ekki rétt til að ferðast um með kristna eiginkonu, alveg eins og hinir postularnir og bræður Drottins og Kefas?6Eða erum við Barnabas þeir einu, sem eru ekki undanþegnir því að vinna?7Hver tekst nokkurn tíma herþjónustu á hendur á sjálfs sín mála? Hver plantar víngarð og neytir ekki ávaxtar hans? Hver gætir hjarðar og neytir ekki af mjólk hjarðarinnar?8Tala ég þetta á mannlegan hátt, eða segir ekki einnig lögmálið það?9Ritað er í lögmáli Móse: Þú skalt ekki múlbinda uxann, er hann þreskir. Hvort lætur Guð sér annt um uxana?10Eða segir hann það ekki að öllu leyti vor vegna? Jú, vor vegna stendur skrifað, að sá sem plægir og sá sem þreskir eigi að gjöra það með von um hlutdeild í uppskerunni.11Ef vér nú höfum sáð hjá yður því, sem andlegt er, er það þá of mikið að vér uppskerum hjá yður það, sem líkamlegt er?12Ef aðrir hafa þennan rétt hjá yður, höfum vér hann þá ekki miklu fremur? En vér höfum ekki hagnýtt oss þennan rétt, heldur sættum oss við allt, til þess að tálma ekki fagnaðarerindinu um Krist.13Vitið þér ekki, að þeir, sem vinna við helgidóminn, lifa af því, sem kemur úr helgidóminum, og þeir, sem starfa við altarið, taka hlut með altarinu?14Þannig hefur Drottinn einnig fyrirskipað að þeir, sem prédika fagnaðarerindið, skuli lifa af fagnaðarerindinu.15En ég hef ekki hagnýtt mér neitt af þessu og ég skrifa þetta ekki heldur til þess, að svo verði við mig gjört. Mér væri betra að deyja, enginn skal ónýta það, sem ég hrósa mér af.16Þótt ég sé að boða fagnaðarerindið, þá er það mér ekki neitt hrósunarefni, því að skyldukvöð hvílir á mér. Já, vei mér, ef ég boðaði ekki fagnaðarerindið.17Því að gjöri ég þetta af frjálsum vilja, þá fæ ég laun, en gjöri ég það tilknúður, þá hefur mér verið trúað fyrir ráðsmennsku.18Hver eru þá laun mín? Að ég boða fagnaðarerindið án endurgjalds og hagnýti mér ekki það, sem ég á rétt á.19Þótt ég sé öllum óháður, hef ég gjört sjálfan mig að þræli allra, til þess að ávinna sem flesta.20Ég hef verið Gyðingunum sem Gyðingur, til þess að ávinna Gyðinga. Þeim, sem eru undir lögmálinu, hef ég verið eins og sá, sem er undir lögmálinu, enda þótt ég sjálfur sé ekki undir lögmálinu, til þess að ávinna þá, sem eru undir lögmálinu.21Hinum lögmálslausu hef ég verið sem lögmálslaus, þótt ég sé ekki laus við lögmál Guðs, heldur bundinn lögmáli Krists, til þess að ávinna hina lögmálslausu.22Hinum óstyrku hef ég verið óstyrkur til þess að ávinna hina óstyrku. Ég hef verið öllum allt, til þess að ég geti að minnsta kosti frelsað nokkra.23Ég gjöri allt vegna fagnaðarerindisins, til þess að ég fái hlutdeild með því.24Vitið þér ekki, að þeir, sem keppa á íþróttavelli, hlaupa að sönnu allir, en einn fær sigurlaunin? Hlaupið þannig, að þér hljótið þau.25Sérhver, sem tekur þátt í kappleikjum, neitar sér um allt. Þeir sem keppa gjöra það til þess að hljóta forgengilegan sigursveig, en vér óforgengilegan.26Þess vegna hleyp ég ekki stefnulaust. Ég berst eins og hnefaleikamaður, sem engin vindhögg slær.27Ég leik líkama minn hart og gjöri hann að þræli mínum, til þess að ég, sem hef prédikað fyrir öðrum, skuli ekki sjálfur verða gjörður rækur.

9.1 Frelsi postulans 1Kor 9.19 – Páll hefur séð Drottin Post 22.17-18; 26.16; 1Kor 15.8
9.2 Staðfesting á postuladómi sbr 2Kor 3.2-3
9.4 Réttur postula Lúk 10.8; 1Kor 9.13-14
9.5 Kefas 1Kor 1.12+
9.6 Barnabas Post 4.36+
9.9 Ekki múlbinda … 5Mós 25.4; 1Tím 5.18
9.10 Hlutdeild 2Tím 2.6
9.11 Andlegt og líkamlegt Róm 15.27
9.12 Ekki hagnýtt mér Post 20.34-35; 2Kor 11.9 – sætti mig við 1Kor 13.7
9.13 Réttur þeirra sem vinna við helgidóminn 3Mós 6.9,19; 4Mós 18.8,31; 5Mós 18.1-3
9.14 Drottinn fyrirskipar … 1Kor 7.10-11; 11.23-25 – lifa af fagnaðarerindinu Matt 10.10; Lúk 10.7; Gal 6.6
9.15 Ekki hagnýtt Post 18.3; sbr 1Kor 9.12+
9.16 Knúinn til Jer 20.9
9.17 Ráðsmennska 1Kor 4.1
9.19 Þræll Matt 20.26-27
9.20 Gyðingum sem Gyðingur Post 16.3; 21.20-26
9.21 Þekkja ekki lögmálið Gal 2.3
9.22 Hinum óstyrku óstyrkur 2Kor 11.29; sbr Róm 14.1-15.3 – til að frelsa nokkur Róm 11.14
9.24 Hlaupið og fáið sigurlaun sbr Gal 2.2; 5.7; Fil 2.16; 3.14; 2Tím 4.7; Heb 12.1; 2Tím 2.5
9.25 Leggur hart að sér 2Tím 2.4-5 – óforgengilegur sigursveigur Fil 3.14; 2Tím 4.8; Jak 1.12; 1Pét 5.4; Opb 2.10
9.27 Aga líkamann Róm 8.13; 13.14