1Er kanverski konungurinn í Arad, sem bjó í Suður-Kanaan, spurði, að Ísrael kæmi Atarím-veginn, þá réðst hann á Ísrael og hertók nokkra þeirra.2Þá gjörði Ísrael Drottni heit og sagði: Ef þú gefur lýð þennan á mitt vald, skal ég banni helga borgir þeirra.3Og Drottinn heyrði raust Ísraels og seldi Kanaanítana þeim í hendur. Og þeir helguðu þá banni og borgir þeirra, og var staðurinn kallaður Horma.4Lögðu þeir þá upp frá Hórfjalli leiðina til Rauðahafs til þess að fara í kringum Edómland. En lýðnum féllst hugur á leiðinni.5Og lýðurinn talaði í gegn Guði og í gegn Móse: Hví leidduð þið oss brott af Egyptalandi, til þess að vér dæjum í eyðimörkinni. Hér er hvorki brauð né vatn, og vér erum orðnir leiðir á þessu léttmeti.6Þá sendi Drottinn eitraða höggorma meðal lýðsins, og þeir bitu fólkið, svo að margt manna dó af Ísrael.7Þá gekk lýðurinn til Móse og sagði: Vér höfum syndgað, því að vér höfum talað í gegn Drottni og í gegn þér. Bið þú til Drottins, að hann taki höggormana frá oss. Móse bað þá fyrir lýðnum.8Og Drottinn sagði við Móse: Gjör þér eiturorm og set hann á stöng, og það skal verða, að hver sem bitinn er og lítur á hann, skal lífi halda.9Móse gjörði höggorm af eiri og setti á stöng. Og það varð, að ef höggormur hafði bitið einhvern og hann leit til eirormsins, þá hélt hann lífi.10Eftir þetta lögðu Ísraelsmenn upp og settu búðir sínar í Óbót.11Og þeir lögðu upp frá Óbót og settu búðir sínar í Íje-Haabarím í eyðimörkinni, sem er fyrir austan Móab.12Þaðan lögðu þeir upp og settu búðir sínar í Sered-dal.13Þaðan lögðu þeir upp og settu búðir sínar hinum megin við Arnon, sem er í eyðimörkinni og kemur upp í landi Amoríta. Arnon skilur lönd Móabíta og Amoríta.14Fyrir því segir svo í bókinni um bardaga Drottins: Vaheb í Súfa og Arnondalir15og dalahlíðarnar, er ná þangað, sem Ar liggur, og liggja upp að löndum Móabíta.16Þaðan héldu þeir til Beer. Það er brunnurinn, sem Drottinn talaði um við Móse: Safna saman lýðnum, ég vil gefa þeim vatn.17Þá söng Ísrael þetta kvæði: Vell þú upp, brunnur! Syngið í móti honum!18Brunnur, sem höfðingjarnir grófu og göfugmenni þjóðarinnar holuðu innan með veldissprota, með stöfum sínum. Frá eyðimörkinni héldu þeir til Mattana,19og frá Mattana til Nahalíel, og frá Nahalíel til Bamót,20og frá Bamót í dalinn, sem liggur í Móabslandi, að Pisgatindi, sem mænir yfir öræfin.21Ísrael sendi menn á fund Síhons Amorítakonungs og lét segja honum:22Leyf mér að fara um land þitt. Eigi munum vér hneigja af út á akra né víngarða, og eigi munum vér drekka vatn úr brunnum, heldur munum vér fara Konungsveg, þar til vér erum komnir út úr landi þínu.23En Síhon leyfði eigi Ísrael að fara um land sitt. Hann safnaði að sér öllum lýð sínum og fór í móti Ísrael inn í eyðimörkina. Og er hann kom til Jahsa, lagði hann til orustu við Ísrael.24En Ísrael vann sigur á honum með sverðseggjum og lagði undir sig land hans frá Arnon til Jabbok, allt að Ammónítum, því að landamerki Ammóníta voru ekki auðunnin.25Ísrael tók allar þessar borgir og settist að í öllum borgum Amoríta, í Hesbon og öllum þorpunum þar í kring.26Hesbon var borg Síhons Amorítakonungs. Hafði hann átt í ófriði við hinn fyrri konung Móabíta og tekið frá honum allt land hans að Arnon.27Fyrir því sögðu háðskáldin: Komið til Hesbon! Endurreist og grundvölluð verði borg Síhons!28Því að eldur gekk út frá Hesbon, logi frá borg Síhons. Hann eyddi Ar í Móab, lávörðum Arnonhæða.29Vei þér, Móab! Það er úti um þig, Kamoss lýður! Kamos lét sonu sína verða flóttamenn og dætur sínar herteknar verða af Síhon, Amorítakonungi.30Vér skutum á þá. Gjöreydd var Hesbon allt til Díbon, og vér fórum herskildi yfir, svo að eldurinn bálaðist upp allt til Medeba.31Ísrael settist nú að í landi Amoríta.32En Móse sendi njósnarmenn til Jaser, og þeir unnu hana og þorpin þar í kring og ráku burt Amorítana, sem þar bjuggu.33Sneru þeir nú við og héldu veginn, sem liggur til Basan. En Óg, konungur í Basan, fór í móti þeim með öllu liði sínu til þess að heyja bardaga hjá Edreí.34Þá sagði Drottinn við Móse: Eigi skalt þú óttast hann, því að ég gef hann og lið hans allt og land hans í þínar hendur, og skalt þú svo fara með hann, eins og þú fórst með Síhon, Amorítakonung, er bjó í Hesbon.35Og þeir felldu hann og sonu hans og allt hans lið, svo að enginn var eftir skilinn, er undan kæmist, og lögðu þeir land hans undir sig. 22.-24. kap.

21.1 Konungur í Arad 4Mós 33.40; Jós 12.14
21.4 Leiðin 5Mós 2.1; Dóm 11.18
21.5 Möglað gegn Móse 4Mós 14.2+
21.6 Eitraðir höggormar 5Mós 8.15; SSal 16.5,10; 1Kor 10.9
21.9 Höggormar af eiri 2Kon 18.4; SSal 16.6-7; Jóh 3.14-15
21.21 Land Amoríta 5Mós 2.26-3.7; Dóm 11.19-20
21.22-32 Síhon neitar 4Mós 20.14-21
21.28-29 Eldur Jer 48.45-46+