1Þegar allt þetta, blessunin og bölvunin, sem ég hefi lagt fyrir þig í dag, kemur fram við þig, og þú hugfestir það meðal allra þeirra þjóða, er Drottinn Guð þinn rekur þig til,2og þú snýr þér aftur til Drottins Guðs þíns og hlýðir raustu hans í öllu, sem ég býð þér í dag, bæði þú og börn þín, af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni,3þá mun Drottinn Guð þinn snúa við högum þínum og miskunna þér og safna þér aftur saman frá öllum þjóðum, þeim er Drottinn Guð þinn hefir dreift þér á meðal.4Þótt þínir brottreknu væru yst við skaut himins, þá mun Drottinn Guð þinn saman safna þér þaðan og sækja þig þangað.5Og Drottinn Guð þinn mun leiða þig inn í landið, sem feður þínir áttu, og þú skalt taka það til eignar, og hann mun gjöra enn betur til þín og fjölga þér enn meir en feðrum þínum.6Drottinn Guð þinn mun umskera hjarta þitt og hjarta niðja þinna, svo að þú elskir Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni, til þess að þú megir lifa.7Og Drottinn Guð þinn mun láta allar þessar bölvanir bitna á óvinum þínum og fjendum, þeim er hafa ofsótt þig.8En þú munt aftur hlýða raustu Drottins og halda allar skipanir hans, þær er ég legg fyrir þig í dag.9Drottinn Guð þinn mun veita þér gnægð gæða í öllu, sem þú tekur þér fyrir hendur, í ávexti kviðar þíns og í ávexti fénaðar þíns og í ávexti lands þíns, því að Drottinn mun aftur gleðjast yfir þér, þér til heilla, eins og hann gladdist yfir feðrum þínum,10ef þú hlýðir raustu Drottins Guðs þíns og varðveitir skipanir hans og lög, sem rituð eru í þessari lögmálsbók, ef þú snýr þér til Drottins Guðs þíns af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni.11Þetta boðorð, sem ég legg fyrir þig í dag, er þér eigi um megn, og það er eigi fjarlægt þér.12Ekki er það uppi í himninum, svo að þú þurfir að segja: Hver ætli fari fyrir oss upp í himininn og sæki það handa oss og kunngjöri oss það, svo að vér megum breyta eftir því?13Og það er eigi hinumegin hafsins, svo að þú þurfir að segja: Hver ætli fari fyrir oss yfir hafið og sæki það handa oss og kunngjöri oss það, svo að vér megum breyta eftir því?14Heldur er orðið harla nærri þér, í munni þínum og hjarta þínu, svo að þú getur breytt eftir því.15Sjá, ég hefi í dag lagt fyrir þig líf og heill, dauða og óheill.16Ef þú hlýðir skipunum Drottins Guðs þíns, þeim er ég legg fyrir þig í dag, að elska Drottin Guð þinn, ganga á hans vegum og varðveita skipanir hans, lög og ákvæði, þá munt þú lifa og margfaldast, og Drottinn Guð þinn mun blessa þig í landi því, er þú heldur nú inn í til þess að taka það til eignar.17En ef hjarta þitt gjörist fráhverft og þú verður óhlýðinn og lætur tælast til að falla fram fyrir öðrum guðum og dýrka þá,18þá boða ég yður í dag, að þér munuð gjörsamlega farast. Þér munuð þá eigi lifa mörg árin í landi því, er þér haldið nú inn í yfir Jórdan til þess að taka það til eignar.19Ég kveð í dag bæði himin og jörð til vitnis móti yður, að ég hefi lagt fyrir þig lífið og dauðann, blessunina og bölvunina. Veldu þá lífið, til þess að þú og niðjar þínir megi lifa,20með því að elska Drottin Guð þinn, hlýða raustu hans og halda þér fast við hann, því að undir því er líf þitt komið og langgæður aldur þinn, svo að þú megir búa í landinu, sem Drottinn sór feðrum þínum, Abraham, Ísak og Jakob, að gefa þeim.

30.1 Blessun og bölvun 5Mós 11.26+ – minnast (festa í huga) 5Mós 4.39; Sír 14.20-21; sbr 5Mós 6.6; 11.18
30.2 Snúa aftur til Drottins 5Mós 4.30+ – hlýða boði hans 5Mós 4.30+ – af öllu hjarta 5Mós 4.29+ – sem ég býð þér 5Mós 4.2+
30.3 Snúa við högum Esk 29.14; Hós 6.11; Am 9.14; sbr Esk 36.3-38 – miskunnsamur Guð 5Mós 4.31+ – safna saman Esk 11.17; 28.25; 37.21
30.4 Endimörk himins Matt 24.31+
30.5 Farnast betur sbr 5Mós 4.40
30.6 Elska Guð af öllu hjarta 5Mós 6.5+ – að þú megir lifa 5Mós 4.1+ ; 30.16-20
30.9 Gnægð gæða 5Mós 2.7+ ; 28.8 – ávöxtur 5Mós 28.4+ – Drottinn mun gleðjast 5Mós 28.63
30.10 Lögmálsbókin 5Mós 28.61+
30.11-14 Orð Guðs er nálægt Sír 51.26; Róm 10.6-8
30.11 Boðorðið … 5Mós 4.2+ – framkvæmanlegt boðorð Matt 11.30; 1Jóh 5.3; sbr Sír 51.26
30.12 Ekki uppi í himninum Róm 10.6-8
30.15-20 Lögmál lífsins 5Mós 32.47; Sír 45.5, sbr 5Mós 4.1+
30.15 Líf og dauði Sír 37.18 – heill og óheill 5Mós 11.26-28
30.16 Ég set þér 5Mós 4.2+ – elska Guð 5.10+ – halda boð Guðs og lifa 5Mós 4.1+ – taka land til eignar 5Mós 1.21+
30.17 Gerast fráhverfur 5Mós 29.17 – aðrir guðir 2Mós 20.3+
30.18 Gereyða 5Mós 4.26+ – lifa 5Mós 4.26+
30.19 Vitni 5Mós 4.26+ – að þú megir lifa 5Mós 30.6+
30.20 Elska Drottin 5Mós 6.5 – hlýða boði Drottins 5Mós 4.30+ – halda sér fast 5Mós 10.20+ – fyrirheitna landið 5Mós 1.8+