1Ef þú hlýðir grandgæfilega raustu Drottins Guðs þíns, svo að þú varðveitir og heldur allar skipanir hans, þær er ég legg fyrir þig í dag, þá mun Drottinn Guð þinn hefja þig yfir allar þjóðir á jörðu,2og þá munu fram við þig koma og á þér rætast allar þessar blessanir, ef þú hlýðir raustu Drottins Guðs þíns:3Blessaður ert þú í borginni og blessaður ert þú á akrinum.4Blessaður er ávöxtur kviðar þíns og ávöxtur lands þíns og ávöxtur fénaðar þíns, viðkoma nautgripa þinna og burðir hjarðar þinnar.5Blessuð er karfa þín og deigtrog þitt.6Blessaður ert þú, þegar þú gengur inn, og blessaður ert þú, þegar þú gengur út.7Drottinn mun láta óvini þína bíða ósigur fyrir þér, þá er upp rísa í móti þér. Um einn veg munu þeir fara í móti þér, en um sjö vegu munu þeir flýja undan þér.8Drottinn láti blessun fylgja þér í forðabúrum þínum og í öllu, sem þú tekur þér fyrir hendur, og hann blessi þig í landinu, sem Drottinn Guð þinn gefur þér.9Drottinn gjöri þig að lýð, sem heilagur er fyrir honum, eins og hann hefir svarið þér, ef þú varðveitir skipanir Drottins Guðs þíns og gengur á hans vegum.10Og allar þjóðir á jörðinni munu þá sjá, að þú hefir nefndur verið eftir nafni Drottins, og þær munu óttast þig.11Drottinn mun veita þér gnægð gæða í ávexti kviðar þíns og í ávexti fénaðar þíns og í ávexti lands þíns í landi því, sem Drottinn sór feðrum þínum að gefa þér.12Drottinn mun upp ljúka fyrir þér forðabúrinu sínu hinu góða, himninum, til þess að gefa landi þínu regn á réttum tíma og blessa öll verk handa þinna, og þú munt fé lána mörgum þjóðum, en sjálfur eigi þurfa að taka fé að láni.13Drottinn mun gjöra þig að höfði og eigi að hala, og þú skalt stöðugt stíga upp á við, en aldrei færast niður á við, ef þú hlýðir skipunum Drottins Guðs þíns, þeim er ég legg fyrir þig í dag, til þess að þú varðveitir þær og breytir eftir þeim,14og ef þú víkur ekki frá neinu boðorða þeirra, er ég legg fyrir yður í dag, hvorki til hægri né vinstri, til þess að elta aðra guði og þjóna þeim.15En ef þú hlýðir ekki raustu Drottins Guðs þíns, svo að þú varðveitir og haldir allar skipanir hans og lög, er ég legg fyrir þig í dag, þá munu fram við þig koma og á þér hrína allar þessar bölvanir:16Bölvaður ert þú í borginni og bölvaður ert þú á akrinum.17Bölvuð er karfa þín og deigtrog þitt.18Bölvaður er ávöxtur kviðar þíns og ávöxtur lands þíns, viðkoma nautgripa þinna og burðir hjarðar þinnar.19Bölvaður ert þú, þegar þú gengur inn, og bölvaður ert þú, þegar þú gengur út.20Drottinn mun senda yfir þig bölvun, skelfing og ógnun í öllu því, er þú tekur þér fyrir hendur að gjöra, uns þú gjöreyðist og fyrirferst skyndilega sökum illra verka þinna sökum þess, að þú yfirgafst mig.21Drottinn mun láta drepsóttina við þig loða, þar til er hann eyðir þér úr landi því, er þú heldur nú inn í til þess að taka það til eignar.22Drottinn mun slá þig með tæring og köldu, hita og bruna, með ofþurrki, korndrepi og gulnan, og mun þetta ásækja þig uns þú líður undir lok.23Himinninn yfir höfði þér skal verða sem eir og jörðin undir fótum þér sem járn.24„Í stað regns mun Drottinn láta ryk og sandfok koma yfir land þitt; það mun falla yfir þig af himni, uns þú ert gjöreyddur.“25Drottinn mun láta þig bíða ósigur fyrir óvinum þínum. Um einn veg munt þú fara í móti þeim, en um sjö vegu munt þú flýja undan þeim, og þú munt verða grýla fyrir öll konungsríki jarðarinnar.26Og hræ þín munu verða æti fyrir alla fugla himinsins og fyrir dýr jarðarinnar, og enginn mun fæla þau burt.27Drottinn mun slá þig með egypskum kaunum: með kýlum, kláða og útbrotum, svo að þú skalt verða ólæknandi.28Drottinn mun slá þig með vitfirring, blindni og hugarsturlan.29Þú munt fálma um hábjartan dag, eins og blindur maður fálmar í myrkri, og þú munt enga gæfu hljóta á vegum þínum, og þú munt alla daga sæta tómri undirokun og ránskap, og enginn mun hjálpa þér.30Þú munt festa þér konu, en annar maður mun leggjast með henni. Þú munt reisa hús, en eigi búa í því. Þú munt planta víngarð, en engar hans nytjar hafa.31Uxa þínum mun slátrað verða fyrir augunum á þér, en þú munt ekki fá neitt af honum að eta. Asna þínum mun rænt verða að þér ásjáandi, en hann mun eigi hverfa aftur til þín. Sauðir þínir munu seldir verða í hendur óvinum þínum, og enginn mun hjálpa þér.32Synir þínir og dætur munu seldar verða í hendur annarri þjóð, og augu þín skulu horfa á það og daprast af þrá eftir þeim allan daginn, en þú skalt eigi fá að gjört.33Ávöxt lands þíns og allt það, er þú hefir aflað þér með striti þínu, mun þjóð ein eta, sem þú ekki þekkir, og þú munt sæta áþján einni og undirokun alla daga,34og þú munt verða vitstola út af því, er þú verður að horfa upp á.35Drottinn mun slá þig með illkynjuðum ólæknandi kaunum á knjám og fótleggjum, frá iljum og allt upp á hvirfil.36Drottinn mun leiða þig og konung þinn, þann er þú munt taka yfir þig, til þeirrar þjóðar, er hvorki þú né feður þínir hafa þekkt, og þar munt þú þjóna öðrum guðum, stokkum og steinum.37Og þú munt verða að undri, orðskvið og spotti meðal allra þjóða, þeirra er Drottinn leiðir þig til.38Mikið kornsæði munt þú færa út á akrana, en litlu skalt þú aftur inn safna, því að engisprettur skulu upp eta það.39Þú munt planta víngarða og yrkja þá, en vín munt þú hvorki drekka né leggja fyrir til geymslu, því að maðkurinn mun eyða því.40Þú munt hafa olíutré um allt land þitt, en með olíu munt þú eigi smyrja þig, því að olífur þínar munu detta af.41Þú munt geta sonu og dætur, en ekki fá að njóta þeirra, því að þau munu fara í útlegð.42Öll tré þín og ávöxt lands þíns munu engispretturnar leggja undir sig.43Útlendingurinn, sem hjá þér er, mun stíga hærra og hærra upp yfir þig, en þú færast lengra og lengra niður á við.44Hann mun lána þér, en þú munt eigi lána honum, hann mun verða höfuðið, en þú munt verða halinn.45Allar þessar bölvanir munu koma fram á þér, elta þig og á þér hrína, uns þú ert gjöreyddur, af því að þú hlýddir ekki raustu Drottins Guðs þíns, að varðveita skipanir hans og lög, þau er hann fyrir þig lagði,46og þær skulu fylgja þér og niðjum þínum ævinlega sem tákn og undur.47Fyrir því að þú þjónaðir ekki Drottni Guði þínum með gleði og fúsu geði, af því að þú hafðir allsnægtir,48þá skalt þú þjóna óvinum þínum, þeim er Drottinn sendir í móti þér, hungraður og þyrstur, klæðlaus og farandi alls á mis, og hann mun leggja járnok á háls þér, uns hann hefir gjöreytt þér.49Drottinn mun stefna í móti þér þjóð einni úr fjarlægð, frá enda jarðarinnar, og kemur hún fljúgandi eins og örn, þjóð, hverrar tungu þú ekki skilur,50illúðlegri þjóð, sem eigi skeytir manngrein gamalmenna og enga vægð sýnir ungmennum.51Og hún mun eta ávöxt fénaðar þíns og ávöxt lands þíns, uns þú ert gjöreyddur. Hún mun ekki leifa þér korni, aldinlegi og olíu, viðkomu nauta þinna né burði hjarðar þinnar, uns hún hefir gjört út af við þig.52Hún mun gjöra umsát um þig í öllum borgum þínum, uns hinir háu og rammgjörvu múrar þínir, sem þú treystir á, eru hrundir um land þitt allt. Og hún mun gjöra umsát um þig í öllum borgum þínum alls staðar í landi þínu, því er Drottinn Guð þinn gefur þér.53Og þú munt eta ávöxt kviðar þíns, holdið af sonum þínum og dætrum, þeim er Drottinn Guð þinn hefir gefið þér. Svo nærri mönnum mun umsátrið ganga og þær hörmungar, er þú munt sæta af óvinum þínum.54Jafnvel sá maður meðal þín, sem mjúklífur er og mjög kveifarlegur, mun óblíðu auga líta bróður sinn, konuna í faðmi sínum og þau börnin sín, er hann enn á eftir,55og eigi tíma að gefa neinu af þeim neitt af holdi barna sinna, sem hann etur, af því að hann hefir ekkert annað til. Svo nærri mönnum mun umsátrið ganga og þær hörmungar, er þú munt sæta af óvinum þínum í öllum borgum þínum.56Mjúklíf og kveifarleg kona meðal þín, sem aldrei hefir reynt að tylla fæti sínum á jörðina af kveifarhætti og tepruskap, mun óblíðu auga líta manninn í faðmi sínum, son sinn og dóttur sína,57og fylgjuna, sem út gengur af skauti hennar, og börn sín, þau er hún elur, því að hún etur þau sjálf á laun, þegar allar bjargir eru bannaðar. Svo nærri mönnum mun umsátrið ganga og þær hörmungar, er þú munt sæta af óvinum þínum í öllum borgum þínum.58Ef þú gætir þess eigi að halda öll fyrirmæli þessa lögmáls, þau er rituð eru í þessari bók, með því að óttast þetta dýrlega og hræðilega nafn, DROTTINN GUÐ ÞINN,59þá mun Drottinn slá þig og niðja þína með feiknaplágum, með miklum plágum og þrálátum, með illkynjuðum sjúkdómum og þrálátum,60og hann mun aftur láta yfir þig koma allar hinar egypsku sóttir, þær er þú hræðist, og þær munu við þig loða.61Auk þess mun Drottinn láta yfir þig koma alla þá sjúkdóma og allar þær plágur, sem ekki eru ritaðar í þessari lögmálsbók, uns þú ert gjöreyddur.62Aðeins fámennur hópur skal eftir verða af yður, í stað þess að þér áður voruð sem stjörnur himins að fjölda til, af því að þú hlýddir eigi raustu Drottins Guðs þíns.63Og eins og Drottinn áður fyrri hafði yndi af því að gjöra vel við yður og margfalda yður, eins mun Drottinn hafa yndi af að tortíma yður og gjöreyða, og þér munuð verða reknir burt úr því landi, er þér haldið nú inn í til þess að taka það til eignar.64Og Drottinn mun dreifa þér meðal þjóðanna frá einu heimsskauti til annars, og þar munt þú þjóna öðrum guðum, sem hvorki þú né feður þínir hafa þekkt, stokkum og steinum.65Og meðal þessara þjóða munt þú eigi mega búa í næði, og hvergi mun hvíldarstaður vera á fæti þínum, heldur mun Drottinn gefa þér þar skjálfandi hjarta, þrotnandi augu og ráðþrota sál.66Líf þitt mun leika fyrir þér sem á þræði, og þú munt hræddur vera nótt og dag og aldrei vera ugglaus um líf þitt.67Á morgnana muntu segja: Ó, að það væri komið kveld! og á kveldin muntu segja: Ó, að það væri kominn morgunn! sökum hræðslu þeirrar, er gagntekið hefir hjarta þitt, og sökum þess, er þú verður að horfa upp á.68Drottinn mun flytja þig aftur til Egyptalands á skipum, þá leið, er ég sagði um við þig: Þú skalt aldrei framar líta hana! Og þar munuð þér boðnir verða óvinum yðar til kaups að þrælum og ambáttum, en enginn vilja kaupa.

28.1 Hlýða boði Drottins 5Mós 4.30+ – varðveita og halda 5Mós 5.1+ – fyrirmælin 5Mós 4.2+
28.2 Blessanir 5Mós 11.26-30; 30.15-20; 2Mós 23.20-33; 3Mós 26.3-13+
28.3 Í borginni, á akrinum 5Mós 28.16
28.4 Ávöxtur 5Mós 7.13, 28.11,18,51; Lúk 1.42
28.5 Karfa, deigtrog 5Mós 28.17
28.6 Kemur heim, gengur út 5Mós 28.19
28.7 Fjandmenn 5Mós 28.25
28.8 Taka sér fyrir hendur 5Mós 28.20
28.9 Heilög þjóð 5Mós 7.6+
28.10 Kennd við nafn Drottins Jer 7.10, Dan 9.18-19; sbr 5Mós 7.6
28.11 Fyrirheitna landið 5Mós 1.8+
28.12 Guð gefur regnið 5Mós 11.14+ ; 28.23-24 – lána 5Mós 28.44
28.13 Aldrei verða undir 5Mós 28.43 – varðveita og halda 5Mós 5.1+
28.14 Víkja ekki 5Mós 5.32+ – aðrir guðir 2Mós 20.3+
28.15 Hlýða Drottni 5Mós 4.30+ – varðveita og halda 5Mós 5.1+ – boð og lög 5Mós 4.2+ – hlýða ekki Drottni 5Mós 8.20+ – bölvanir 5Mós 11.26-30; 30.19; 3Mós 26.14-38+
28.16 Í borginni, á akrinum 5Mós 28.3
28.17 Karfa, deigtrog 5Mós 28.5
28.18 Ávöxtur 5Mós 28.4+
28.19 Kemur heim, gengur út 5Mós 28.6
28.20 Taka sér fyrir hendur 5Mós 28.8 – afmáður skyndilega 5Mós 11.17 – svíkja Drottin
Jes 1.4; Jer 2.13
28.21 Taka land til eignar 5Mós 1.21+
28.22 Korndrep og gulnan Am 4.9
28.23 Eir, járn, sbr 3Mós 26.19
28.24 Guð gefur regnið 5Mós 11.14+ ; 28.12
28.25 Fjandmenn 5Mós 28.7
28.26 Æti fyrir fugla og dýr Jer 7.33; 16.4
28.27 Kaun 5Mós 28.5; 2Mós 9.8+
28.28 Vitfirring, blindni Sak 12.4
28.29 Kúgun 5Mós 28.33
28.30 Hús, víngarður Am 5.11
28.32 Augun daprast 5Mós 28.65; 3Mós 26.16
28.35 Kaun 5Mós 28.27+
28.36 Útlegð sbr 5Mós 4.27-28; 28.64 – aðrir guðir 2Mós 20.3+ – óþekktir guðir 5Mós 4.28; 28.64; 29.25
28.37 Vekja hroll sbr 5Mós 28.25 – spott 2Mós 32.25+
28.38 Uppskera ekki Mík 6.15; Hag 1.6 – engisprettur Jl 1.4
28.39 Víngarður Am 5.11
28.43 Stígur hærra, niðurlægist meira 5Mós 28.13
28.44 Lána 5Mós 28.12
28.45 Hlýða boði Drottins 5Mós 4.30+
28.46 Tákn og stórmerki 5Mós 4.34+
28.48 Fara alls á mis 5Mós 28.57 – járnok Jer 28.14
28.49 Stefna gegn þér Jer 5.15-17
28.51 Ávöxtur 5Mós 28.4+ – gjöreyða 5Mós 8.19
28.53 Eta börn sín 3Mós 26.29+
28.57 Fara alls á mis 5Mós 28.48
28.58 Lotning (óttast) 5Mós 4.10+ – gæta þess að halda 5Mós 5.1+ – öll ákvæði þessa lögmáls 5Mós 27.3+
28.60 Sóttir 5Mós 7.15; 2Mós 7.8-11.9
28.61 Lögmálsbókin 5Mós 29.20; 30.10; 31.26; Jós 1.8; 8.34; 2Kon 22.8,11; Neh 8.3
28.62 Fámennur hópur 5Mós 4.27+ – sem stjörnur himins 5Mós 1.10+ – hlýða boði Dottins 5Mós 4.30+
28.63 Land til eignar 5Mós 1.21+
28.64 Ísrael dreift 5Mós 4.27-28; 28.36; Sír 48.15
28.65 Döpur augu 5Mós 28.32
28.67 Örvænting Job 24.22
28.68 Aftur til Egyptalands 5Mós 17.16+