1Öldungurinn heilsar hinni útvöldu frú og börnum hennar, sem ég elska í sannleika. Og ekki ég einn, heldur einnig allir, sem þekkja sannleikann.2Vér gjörum það sakir sannleikans, sem er stöðugur í oss og mun vera hjá oss til eilífðar.3Náð, miskunn og friður frá Guði föður og frá Jesú Kristi, syni föðurins, mun vera með oss í sannleika og kærleika.4Það hefur glatt mig mjög, að ég hef fundið nokkur af börnum þínum, er ganga fram í sannleika, samkvæmt því boðorði, sem vér tókum við af föðurnum.5Og nú bið ég þig, frú mín góð, og er þá ekki að skrifa þér nýtt boðorð, heldur það, er vér höfðum frá upphafi: Vér skulum elska hver annan.6Og í þessu birtist elskan, að vér lifum eftir boðorðum hans. Þetta er boðorðið, eins og þér heyrðuð það frá upphafi, til þess að þér skylduð lifa í því.7Því að margir afvegaleiðendur eru farnir út í heiminn, sem ekki játa, að Jesús sé Kristur, kominn í holdi. Þetta er afvegaleiðandinn og andkristurinn.8Hafið gætur á sjálfum yður að þér missið ekki það, sem vér höfum áunnið, heldur megið fá full laun.9Sérhver sem fer of langt og er ekki stöðugur í kenningu Krists, hefur ekki Guð. Sá sem er stöðugur í kenningunni, hann hefur bæði föðurinn og soninn.10Ef einhver kemur til yðar og er ekki með þessa kenningu, þá takið hann ekki á heimili yðar og biðjið hann ekki vera velkominn.11Því að sá, sem biður hann vera velkominn, verður hluttakandi í hans vondu verkum.12Þótt ég hafi margt að rita yður, vildi ég ekki gjöra það með pappír og bleki, en ég vona að koma til yðar og tala munnlega við yður, til þess að gleði vor verði fullkomin.13Börn systur þinnar, hinnar útvöldu, biðja að heilsa þér.

1 Öldungurinn 3Jóh 1 – hin útvalda 1Pét 5.13; 2Jóh 13; sbr 2Tím 2.10; Tít 1.8 – sannarlega Ef 4.15; 1Jóh 3.18; 2Jóh 3-4 – þekkja sannleikann Jóh 8.32; 1Tím 4.3; 1Jóh 2.21
2 Í oss Jóh 8.37; 1Jóh 1.8,10; 2.4,14,24,27; 3.9,17 – hjá oss til eilífðar Jóh 14.16-17
3 Náð, miskunn, friður 1Tím 1.2; 2Tím 1.2
4 Lifa í sannleikanum 2Jóh 6; 3Jóh 3-4 – eins og faðirinn bauð oss 1Jóh 4.21
5 Nýtt boðorð 1Jóh 2.7-8 – frá upphafi 1Jóh 2.24+ – elska hvert annað 1Jóh 3.11+ ; 1Pét 4.8
6 Lifa eftir boðorðum hans Jóh 14.15,23-34; 1Jóh 3.23; 5.3
7 Afvegaleiðendur og andkristur Matt 7.15; 1Jóh 2.18-19,22,26; 4.1-3; 2Pét 2.1
8 Verk Jóh 6.29 – laun Matt 10.42
9 Á ekki Guð 1Jóh 3.24+ ; 4.15 – á föðurinn og soninn 1Jóh 2.23-24
10 Taka ekki á móti Matt 10.14; Róm 16.17; 1Kor 5.6,9; Ef 5.11; 2Þess 3.6; Tít 3.10
11 Taka þátt í 1Tím 5.22; Opb 18.4
12 Skriflega 3Jóh 13 – munnlega 4Mós 12.8; 3Jóh 14 – gleðin fullkomin 1Jóh 1.4