Stutt lýsing

Í ár rennur jólasöfnun Hins íslenska biblíufélags til lestrarkennslu fyrir fullorðna í Burkina Faso. Burkina Faso er í vesturhluta Afríku og læsi í landinu er eitt það lægsta í heiminum. En um 42% íbúa eldri en 15 ára voru læs árið 2025. Konur eru í miklum meirihluta þeirra sem eru ólæs og það hefur mjög neikvæð áhrif á tækifæri þeirra til að lifa sjálfstæðu lífi og dregur úr aðgengi þeirra að hvers kyns samfélagsþjónustu.

Í tengslum við þýðingu Biblíunnar á þau tungumál sem eru töluð í landinu, hefur Biblíufélagið í Burkina Faso boðið upp á lestrarkennslu á fjölmörgum tungumálum fyrir fullorðna með sérstaka áherslu á þátttöku kvenna.

Kostnaður Biblíufélagsins á hvern nemanda er um 6000 krónur á ári.

Lestrarkennsla til valdeflingar kvenna

á vegum Hið íslenska biblíufélag Guðmundsson

  • 500.000 kr.

    Markmið söfnunar
  • 0 kr.

    Upphæð sem hefur safnast
  • 0

    Dagar til stefnu
  • Markmið

    Söfnun lýkur þegar
Prósent sem hefur safnast :
0%
Lágmarskupphæð pöntunar kr.3000 Hámarksupphæð er kr.3000 Setja gilda tölu
kr.
Reykjavik, Ísland

Ítarlegar upplýsingar um söfnun

Í ár rennur jólasöfnun Hins íslenska biblíufélags til lestrarkennslu fyrir fullorðna í Burkina Faso. Burkina Faso er í vesturhluta Afríku og læsi í landinu er eitt það lægsta í heiminum. En um 42% íbúa eldri en 15 ára voru læs árið 2025. Konur eru í miklum meirihluta þeirra sem eru ólæs og það hefur mjög neikvæð áhrif á tækifæri þeirra til að lifa sjálfstæðu lífi og dregur úr aðgengi þeirra að hvers kyns samfélagsþjónustu.

Í tengslum við þýðingu Biblíunnar á þau tungumál sem eru töluð í landinu, hefur Biblíufélagið í Burkina Faso boðið upp á lestrarkennslu á fjölmörgum tungumálum fyrir fullorðna með sérstaka áherslu á þátttöku kvenna.

Íbúar Burkina Faso eru 23,5 milljónir. Múslimar eru um 64% íbúa, en um 26% íbúa tilheyra kristnum kirkjum. Rétt um 60 tungumál eru töluð í landinu.

Tveir af hverjum fimm íbúum lifa undir fátækramörkum og líkt og annars staðar í heiminum eru bein tengsl milli fátæktar og þess að geta ekki lesið. Í tengslum við læsiskennslu fyrir þá sem veikast standa, býður Biblíufélagið í Burkina Faso upp á fjölþættan stuðning við nemendur í samstarfi við kirkjur í landinu.

Kostnaður Biblíufélagsins á hvern nemanda er um 6000 krónur á ári.


Vitnisburður Gouba Miriam

Ég heiti Gouba Miriam, er gift og á eina dóttur. Daginn sem ég lærði fyrsta stafinn í stafrófinu fylltist ég mikilli gleði. Ég fór heim og eyddi öllum deginum í að skrifa stafinn aftur og aftur. Seinna lærði ég að skrifa nafnið mitt. Það var mikilvægur áfangi. Það var samt hápunkturinn fyrir mig þegar kennarinn kenndi okkur að lesa stutt og einföld biblíuvers, því ég þráði svo heitt að lesa Biblíuna. Fyrir mér eru þau sem gerðu okkur kleift að læra að lesa englar frá Guð.

Áður en ég lærði að lesa og skrifa, skammaðist ég mín í hvert sinn sem ég sá lítið barn lesa. Nú hef ég öðlast nýja gleði og stolt. Ég nýt virðingar innan fjölskyldu minnar fyrir að vera læs. Lestrarkunnáttan sem ég hef öðlast gerir mér kleift að lesa nöfn þorpa á vegskiltum þegar ég ferðast, svo ég villist síður. Ég get líka skrifað niður versin sem kennarinn kenndi okkur, sem hjálpar mér að læra utanbókar.

Kennarinn ætlar að kenna okkur fleiri biblíuvers, auk þess að hjálpa okkur með stærðfræði. Það mun hjálpa mér við dagleg störf, auðvelda mér að bæta hreinlæti á heimilinu mínu og hjálpa mér að passa upp á heilsuna. Ég hlakka til þess að læra nýja hluti og mér finnst ég geta gengið með höfuðið hátt í hópi vina minna.

Einhvern tímann mun ég geta skrifað og sent smáskilaboð með síma til eldri bróður míns, sem býr erlendis. Þá mun hann frétta að litla systir hans geti nú lesið og skrifað.

Það sem ég hef lært og mun læra hjálpar mér að bæta hjónaband mitt, hjálpar mér að styðja við menntun dóttur minnar og styrkir andlega heilsu. Ég vil miðla því sem ég hef lært til allra í kringum mig svo lífskjör okkar allra batni.


Vitnisburður Kanyala Yolande

Ég heiti Kanyala Yolande, er gift og á tvö börn. Einn daginn sendi systir mín, sem býr erlendis (á Fílabeinsströndinni), mér bréf á móðurmáli okkar (Lyélé).

Ég var ólæs og þurfti að biðja einhvern um að lesa bréfið fyrir mig. Þegar hann las bréfið upphátt, áttaði ég mig á því að bréfið innihélt leyndarmál, sem aðeins ég átti að fá að vita af. En nú vissi sá sem las bréfið fyrir mig um leyndarmál mitt og systur minnar. Ég varð mjög ráðvillt. Ég vissi ekki hvort ég ætti að taka bréfið af honum eða láta hann að lesa bréfið til enda. Ég hugsaði sem svo að hann hefði líklega lesið allt bréfið áður en hann útskýrði efni þess, svo ég lét hann halda áfram. Þegar lestrinum lauk dró ég djúpt andann og hann laut höfði. Ég þakkaði honum fyrir hjálpina.

Á þessum degi ákvað ég að læra að lesa og skrifa, hvað sem það kostaði. Þegar tilkynnt var að halda ætti lestrarnámskeið fyrir fullorðna í kirkjunni vissi ég strax að Guð hefði komið mér til bjargar og svarað bæn minni. Ég var meðal þeirra fyrstu til að skrá mig. Ég trúi og trúði því að Guð hefði stigið inn í líf mitt og komið þessu námskeiði á fót mín vegna. Þetta hafði enda verið bæn mín lengi.

Ég fylgist vel með öllu sem kennarinn segir á námskeiðinu, því ég vil aldrei aftur lenda í sömu aðstæðum og ég upplifði vegna bréfsins frá systur minni.

Gleði mín var mjög mikil þegar ég gat lesið fyrsta stafinn á mínu eigin tungumáli. Ég hlakka til þess að geta lesið Biblíuna sjálf, jafnvel fyrir söfnuðinn í kirkjunni minni. Ég hef öðlast aukna þekkingu á heilsu, hreinlæti, samfélagslegri ábyrgð, stærðfræði og mörgu fleiru. Þessi þekking hefur gert mér mögulegt að bæta lífskjör fjölskyldu minnar og styðja mig í vinnunni minni. Ég er þakklát Drottni, Biblíufélögunum og samstarfsaðilum þeirra.