Hið íslenska biblíufélag (HÍB) var stofnað 10. júlí 1815 og er elsta starfandi félag á Íslandi. Markmið þess er að vinna að útgáfu, útbreiðslu og notkun Biblíunnar. HÍB er samtök fólks úr öllum kirkjudeildum og kristnum trúfélögum. Allir geta gerst félagar.
Félagið tekur þátt í starfi Sameinuðu Biblíufélaganna (United Bible Societies, UBS) á alþjóðavettvangi. Með því að efna til safnana fyrir þýðingu og útbreiðslu Biblíunnar í fátækari hlutum heimsins stuðlum við að útbreiðslu Biblíunnar víða um heim. Nokkrum sinnum á ári eru sendar út kynningar á þeim verkefnum sem félagið vill styðja. Hverjum og einum er frjálst að taka þátt í þessum söfnunum.
Sérstakur Biblíudagur er haldinn árlega annan sunnudag í níuvikna föstu (venjulega í febrúar). Þá er vakin athygli á félaginu og starfi þess m.a. Í guðsþjónustum og á safnaðarsamkomum og tekin samskot til starfsins á alþjóðavettvangi.
Félagið gefur út B+, fréttabréf um starf félagsins og annarra biblíufélaga víða um heim. Einnig gefur félagið út árlega BIBLÍULESTRARSKRÁ sem dreift er til félagsfólks.
Allir geta orðið félagar í Hinu íslenska biblíufélagi. Einnig er hægt að gerast stuðningsaðili og fá þeir sendar allar kynningar á þeim söfnunum sem félagið sendir út.
Póstfang: Hið íslenska biblíufélag, Bt. Biskupsstofa, Borgartúni 26, 105 Reykjavík.
Netfang: hib@biblian.is